Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Qupperneq 8
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. OKTOBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Samningar hafnir um herstöð vamar i Grikklandi —Papandreou nú til viðtals við Bandaríkin um „hæfilegt giald” Grikkland og Bandaríkin hef ja í dag viöræöur um hvaö verða skuli um f jór- ar meiri háttar herstöðvar Banda- ríkjamannaí Grikklandi. Viöbúiö þykir að samningaviöræð- urnar veröi bæöi langar og strangar en ef þær leiöa ekki til samkomulags er haft eftir embættismönnum úr stjóm Papandreous aö herstöðvamar veröi lagöar niöur. Þessar viöræöur, sem sumir spá aö muni standa í níu mánuöi að minnsta kosti, er fyrsti prófsteinninn á sambúö Grikklands og Bandaríkjanna síöan sósíalistar komust til valda undir for- ystu Andreas Papandreou forsætisráö- herra, sem í kosningabaráttunni lagöi áherslu á andstööu gegn Bandaríkjun- um, gegn NATO og gegn EBE. Aöstoöarutanríkisráöherrann Yann- is Kapsis veröur fyrir grísku viðræöu- nefndinni en Reginald Bartholomew, starfsmaður bandarísku utanríkis- ráöuneytisins, formaöur bandarísku nefndarinnar. Á dagskrá er endurskoð- un 108 samkomulagsatriöa sem undir- rituö hafa veriö síðan 1958 og gilda um herstöövamar. Papandreou hefur lýst þeim sem nýlendusinna og sagt aö stöövamar þjónuöu ekki landvamar- hagsmunum Grikkja. Um er aö ræöa eina flugbækistöö (til könnunarflugs) viö Hellenicon-flugvöll Aþenu. önnur stöð er í Nea Makri og er miklvægur hlekkur í fjarskiptakerfi bandaríska flotans. Hinar tvær eru á eyjunni Krít og elektrónísk hlustunar- stöö í Gournies, skammt frá Heraklí- ón. I kosningabaráttunni í fyrra hét Papandreou aö draga Grikkland út úr Nato og loka herstöðvunum, sem hann sagöi aö hýstu kjarnorkuvopn. Síöan hefur þó stjóm hans sýnst mýkjast í af- stööu sinni og taliö meir snúist um þjóðarnauðsyn og þarfir í öryggismál- um. Er gríska stjómin nú til viðtals um aö Bandaríkjamenn hafi herstöðvarn- ar áfram gegn aukinni aöstoð í efna- hagslífinu og á hernaðarsviðinu. Einn- ig vill hún aö NATO ábyrgist austur- landamæri Grikklands gegn árás utan frá, en þar eru auðvitaö augun höfð á deilu Grikkja viö Tyrkland um yfirráð nokkura eyja og ákveðins hafssvæöis á Eyjahafinu. Indverska lögreglan í erjum við Sikha. Veckans Eko gjaldþrota Sænska tímaritiö Veckans Eko er nú endanlega gjaldþrota. Varö þaö bana- biti blaðsins aö því var í annaö skiptiö neitaö um ríkisstyrk og samtímis neit- uðu skattayfirvöld aö taka nokkra ákvörðun um söluskattfrelsi blaösins fyrr en að þremur vikum liðnum. Veckans Eko hefur ekki komiö út síðan í ágúst vegna skulda og var talið aö ekki væri hægt að bíöa eftir því leng- ur aö fá úrskurö um söluskattfreisi. Blaöiö var ekki gamalt í hettunni. Þaö hóf göngu sína í febrúar í fyrra og kom það út á vegum Umhverfisvemd- arsambandsins og baráttufélags gegn kjarnorkuverum. Þegar best lét voru áskrifendur aö blaðinu 7.400. FlóðáSpáni Vatnavextir á Spáni hafa verið svo miklir aö stjómvöld hafa oröið aö flytja 100.000 manns á brott frá heim- ilum sínum á SA-Spáni vegna flóða- hættu. Þúsundir Spánverja eiga í erfiö- leikum meö aö fá matvörur og nauö- synlega hjálp þar sem flóöin hafa eyðilagt vegi og símalínur og á vissum svæöum er vatnsborö fljót- anna 2 metrum hærra en eölilegt er. Og alit er þetta regninu aö kenna sem hefur herjaö víöa á Evrópu aö undanfömu í óvenju miklum mæli. Umsjón: Guðmundur Pétursson VÖRUSKORTliR AUSTANTJALDS Mikill vöruskortur þjakar nú austan- tjaldslöndin. Um tíma var ekkert smjör að fá í Austur-Berlín og er nýtt smjör kom á markaöinn haföi þaö aö geyma alltof mikið magn af vatni. Einnig er ákaflega erfitt aö fá ávexti og grænmeti í borginni og má sjá lang- ar biðraðir viö verslanir er selja þessa vöru. Rafmagn er þar líka mjög af skornum skammti. I Júgóslavíu fengu ökumenn bensín- skömmtunarseðla afhenta í október og eiga þeir aö duga þeim til áramóta. Hljóöa skömmtunarseölamir upp á 200 lítra af bensíni. Bannað er aö hita íbúð- ir upp í meira en 19 gráður á daginn og á nóttunni er alls ekki kynt. Sjónvarps- dagskrá lýkur klukkan 10 á kvöldin og bannaö er að hafa íþróttasýningar eöa mót á kvöldin. Götulýsing verður ekki höfð á á nóttunni. Er fjarðarhestur- inn norski f hættu á að deyja út? Meöal Norömanna eru nú auknar umræöur um hættuna á aö „fjarðarhest- urinn” norski sé aö deyja út sem hestastofn eöa kyn, nema fyrir hann finnist ný not. Hann er af smáhestakyni eins og hinn íslenski frændi hans og hefur orö á sér fyrir aö vera fótviss í f jallendi. Fjarðarhesturinn þykir auötaminn og hefur veriö jafnvel notaður í sirkus, en notkun hans var alhliöa, þótt nú séu til umræöu hugmyndir um aö beita honum meir í kerruakstur á veðhlaupabrautum, fremur en til reiðar. Þar sem hann hefur veriö notaöur til reiðar í skipulagðar fjaliaferöir fyrir almenning hefur hann einnig gefist vel. Even Alme, formaöur hestamannafélagsins í Nordfjord, segir að vaknaður sé áhugi fyrir því aö setja upp kerruveöhlaupabrautir í Nordfjörd og í Sogni. Til þessa hafa verið haldnar nokkrar kappreiöar á síðustu fjórum til fimm árum fyrir fjaröarhestinn sérstaklega og hlotiö töluveröa aösókn. — Engu aö síður, hefur fjaröarhestum fariö fækkandi. Réðst að lögreglu- manni með reidda exi Vopnuö lögregla heldur uppi eftirliti í bænum Amritsar, eftir aö tveir létu lífið og fimmtíu særðust í nýjustu óeirðumSikha á Indlandi. Þykja þessar óeiröir draga úr árangurslíkum viöræöna yfirvalda á Indlandi viö leiötoga Sikha, sem krefj- ast róttækra breytinga , pólitískra og trúariegra, fyrir Sikhana og einnig aukinnar sjálfstjórnar fyrir Punjab- fylki, þar sem Sikhar eru fjöl- mennastir. Hafa leiötogar Sikha hótaö nýjum ó- eiröum í byrjun nóvember, ef stjómin í Nýju-Dehlí veröur ekki viö kröfum þeirra. Oeirðirnar í gær í Amritsar, hinni helgu borg Sikha, brutust út eftir aö háttsettur lögregluforingi skaut til bana einn Sikha, sem réðst aö honum meö exi á lofti. Tveim sprengjum var varpaö aö lögregluflokki utan viö gullna musteriö, sem er mesti helgi- staöur Sikha. önnur sprakk ekki en hin varð einum manni að bana og særöi um 50 manns, þar af 20 lögreglumenn. I tilraun til þess aö sýna sam- komulagsvilja sinn fyrirskipaði Indíra Gandhi forsætisráöherra í síöustu viku aö látnir skyldu iausir 25 þúsund Sikhar sem verið hafa í haldi frá því í sumar fyrir mótmælaaögeröir og óeiröir. Útlönd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.