Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Qupperneq 9
DV. MIÐVIKUDAGUR27. OKTOBER1982.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Kafbátaleitinni
hætt í Svíþjóð
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DVíLundi:
Skipulagöri leit að óþekktum kafbát-
um í skerjagaröinum út af Stokkhólmi
var hætt í gær. Talsmenn sænska vam-
armálaráðuneytisins segjast ekki í
neinum vafa um aö óþekktur kafbátur
hafi verið inni í Haarsfirðinum en telja
að hann hafði sloppið út hinn 7. októ-
ber. Þann dag taldi sænski sjóherinn
sig hafa séð örugg merki þess að bátur-
inn væri enn inni í firðinum.
Síðari hluta þess dags voru sprengd-
ar nokkrar sprengjur við kafbátagirð-
inguna í noröurhluta f jarðarins vegna
merkja um kafbát þar.
Talsmenn vamarmálaráöuneytisins
segja nú að kafbátagirðingarnar, sem
loka áttu Haarsfirðinum, 'hafi aldrei
verið eins þéttar og fjölmiðlar vildu
vera láta. Hinsvegar hafði herinn ekki
séð neina ástæðu til þess að leiðrétta
fjölmiðla um þetta atriði. Hugsanlegt
er talið að kafbáturinn hafi laskast við
flóttann úr Haarsfirðinum vegna þess
að stór olíubrák kom upp á þeim stað
sem sprengjurnar sprungu á 7. októ-
ber.
Lennart Ljung, yfirmaður sænska
hersins, segir það áfall fyrir herinn að
svona hafi farið en augljóst sé að
sænski herinn þurfi á betri tækniútbún-
aði að halda í viðureigninni við kaf-
báta.
Alls var 36 djúpsprengjum varpaö í
leitinni að kafbátnum. En Olof Palme
forsætisráðherra hefur lýst því yfir að
hér eftir þurfi ókunnir kafbátar sem
læðist inn í landhelgi Svía ekki að
vænta neinna griöa. Þeir verði
sprengdiríloftupp.
Sósíaldemókratar
mut
— sem gef ur ekki kost á sér til kanslaraf ramboðs aftur.
Sigurvonir Kohls kanslara og kristilegra
demókrata stórauknar í næstu kosningum
leiöi hans á andstöðu vinstri armsins í
flokknum við stjómarstefnu hans í
efnahags- og öryggismálum hefði tölu-
verðu ráðið um þessa ákvörðun hans.
Sósíaldemókratar þykja nú staddir á
krossgötum eftir fráhvarf Schmidts og
líklegt að flokkurinn þreifi fyrir sér um
samstarf viö „Græningja”, umhverfis-
verndarmenn, sem með vaxandi fylgi
hafa náð oddaaðstöðu í tveim fylkis-
þingum.
I leit að hugsanlegum kanslara-
efnum sósíaldemókrata í stað
Schmidts beinast augu manna helst aö
Hans-Jochen Vogel, leiötoga stjórnar-
andstöðunnar í Vestur-Berlín, og
Jóhannesar Rau, forsætisráðherra
N or ður-Rín-V est-Phalíu.
Vogel var dómsmálaráðherra í
Bonnstjórninni 1974—81, en Rau leiddi
Helmut Schmidt lætur af kanslara-
embætti: Ætlar ekki að berjast um
það á ný.
Sigurhorfur Helmuts Kohls
kanslara, ef til kosninga kæmi næsta
vor í V-Þýskalandi, þykja hafa vaxið
stórlega eftir að Helmut Schmidt,
fyrrum kanslari sósíaldemókrata,
lýsti því yfir í gærkvöldi að hann
mundi ekki gefa kost á sér aftur í
kanslaraembættið.
Þykir þaö mikiö áfall fyrir sósíal-
demókrata því að persónulegt fylgi
Schmidts hefur þótt flokknum til
mikils framdráttar í átta og hálft
ár sem hann var kanslari. Svo mikils-
virtur hefur Schmidt veriö heima fyrir
og erlendis að álit hans þótti engan
hnekki bíða þótt mið- og hægriflokk-
arnir felldu stjórn hans í byrjun þessa
mánaðar með vantrausti. Fremur
hafa skoðanakannanir og einstaka
fylkiskosningar sýnt vaxandi fylgi
flokksins, sem margir rekja til sam-
úðar kjósenda meö Schmidt, eftir aö
frjálslyndir demókratar hlupust úr
stjórn hans.
Kohl, kanslari kristilegra demó-
krata, hefur ekki á sínum stutta valda-
tíma áunnið sér slíkt traust og álit sem
Schmidt en möguleikar hans þykja
stórauknir ef í kanslaraframboð
sósíaldemókrata kemur annar en
Schmidt.
Schmidt, sem verður 64 ára í desem-
ber, ber viö heilsufarsástæöum, en
hann hefur átt við hjartakrankleika að
stríða og skjaldkirtilsveikindi. 1 fyrra
var græddur í hann hjartagangráður.
„Að mínu mati opnar þetta yngri
öflunum í okkar flokki leið,” sagði
hann í gærkvöldi og lét í veðri vaka að
Kohl fyrir framan mynd af Adenauer,
sem hann vill helst taka sér til fyrir-
myndar: Meiri sigurlíkur ef Schmidt
vill ekki kanslaraembættið.
sósíaldemókrata til hreins meirihluta
1980 í fjölmennasta fylki V-Þýska-
lands.
Fjörutíu manna framkvæmdaráö
flokksins mun taka til afgreiðslu á
föstudaginn spurninguna um
eftirmann Schmidts.
missa mikils í Hel
Schmidt
Sovésk
búhyggindi
Kúabú eitt í Sovétríkjunum var
bert að því aö kaupa mjólkuraf-
urðir í verslunum og síðan leggja
>ær aftur inn 1 ríkissamlagið tij
)ess að rétta af framleiðslu-
skýrslur sínar — og um leið
hagnast verulega fyrir niöur-
greiöslumar.
Búið var í Tadzhik-lýðveldinu í
Mið-Asíu og vakti á sér athygli
fyrir að auka framleiðslu sína um
455% á einu ári. — Bústjórinn hefur
nú verið dæmdur í fangelsi fyrir
svik.
Niðurgreiðslur á matvörum í
búðum hafa einnig komið bændum
til þess að kaupa braúö, kökur og
kex í fóðurbæti fyrir nautgripi,
enda ódýrara en venjulegt
kjarnfóöur.
Ágengirtílar
Fílar, sem sjúkú em í
appelsínur hjá ferðalöngum í
þjóögarði einum í Zimbabwe, eru
sagðir orðnir svo aðgangsharðir að
Uggi við slysum, þar sem þeir geti
troðiö fólk undir.
Þjóðgarðsverðir segja að fílar
hafi spillt tjaldbúðum gesta í Mana
Polls-þjóðgarðinum í leit að
appelsínum, sem þeim finnast
svalandi við þorsta og raunar á-
vallt hið mesta sælgæti. Þurrkar að
undanförnu gera þá enn ólmari í
appelsínumar.
Feröafólk, í tilraunum til að ná
nærmyndum af fílum í garöinum,
hefur vanið marga fílana á að
þiggja appelsínur og gert þá með
því mannvana.
Léstíátökum
útaffótbolta
Slagsmál milli aðdáenda fót-
boltaklúbbanna Hamburg og
Bremen í V-Þýskalandi leiddu ný-
lega til dauða 16 ára drengs.
Fannst lík hans í runna utan við
íþróttavöllinn í Hanaburg eftir leik
liðanna þar í borg. Sjálf ur var hann
frá Bremen. Haföi hann hrygg-
brotnað er til mikilla átaka kom á
milh u.þ.b. 100 unglinga aðleiknum
loknum.
Slysáíþrótta-
velliíMoskvu
Talið er aö nokkrir áhorfenda
hafi látist og a.m.k. 60 hafi slasast
á LeniníþróttaveUinum í Moskvu
sl. miövikudag. Geröist þetta í
kjölfar leiks milli Moskvuliðsins
Spörtu og hollenska liðsins
Haarlem.
Áhorfendur voru um 15.000 aö
tölu og var þeim öllum komið fyrir
á einum hluta íþróttavallarins.
Aðeins tvær útgöngudyr voru
opnar. Voru áhorfendur farnir að
tínast í burtu er Sparta skoraði
sigurmark sitt í leiknum (2—1) og
tróðst fólk þá til baka með ofan-
greindum afleiðingum.