Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Side 11
DV. MIÐVIKUDAGUR27. OKTOBER1982.
11
VIÐTAUÐ:
Jóhannes Sigurjónsson, rrtstjóri,
auglýsingastjóri, dreifingarstjóri,
Ijósmyndari og framkvæmda-
stjóri Víkurblaðsins.
D V-mynd GS/Akureyri
„Víkurblaðið er meira sveitablað
en mörg önnur blöö. Við segjum frá
því hvað fólk er að dunda sér við, les-
endum til skemmtunar og fróðleiks,
auk þess sem blaöið er vettvangur
fyrir alla til að koma skoðunum sin-
um á framfæri. En við ætlum ekki að
reyna að bjarga heiminum.”
Við erum komin í heimsókn á rit-
stjórnarskrifstofu Víkurblaðsins
sem gefið er út á Húsavík. Það er
sjálfur ritstjórinn, Jóhannes Sigur-
jónsson, sem hefur orðið. Hann er
borinn og barnfæddur á Húsavík;
hefur ekki sótt annaö nema til náms.
Hann var spurður um upphafið að
Víkurblaðinu.
„Ætli hugmyndin hafi ekki kvikn-
að í öldurhúsi í upphafi,” svaraði
Jóhannes., jSíöan fór boltinn að rúlla
og hlaöa utan á sig. Arnar B jömsson
og Kári Kárason voru með mér í
þessu í upphafi og við Amar stöndum
saman að útgáfunni enn. Okkur þótti
það skömm að ekki skyldi vera gefið
út blað í Þingeyjarsýslum þar sem
Þingeyingar hafa verið þekktir fyrir
að hafa alltaf haft nóg til málanna að
leggja. 31. júlí 1979 sá síöan fyrsta
blaðiðdagsinsljós.”
— Hefur blaöiö komið reglulega út
síðan?
„Nei, ekki alveg,” svarar Jóhann-
„Ætlum ekki að
bjarga heiminum”
— Spjallað við ióhannes Sigurjónsson,
ritstjóra Víkurblaðsins
es. „Við hættum á timabili vegna
fjárhagserfiðleika. En viðbrögðin
voru ánægjuleg fyrir okkur. Við
fengum hátt í 200 bréf þar sem skor-
að var á okkur að halda áfram og
góðir menn komu okkur til styrktar á
ýmsan máta. Það má því segja að
lesendurnir hafi komið fótunum
undir blaðið á ný og málunum var
kippt í lag á einum mánuði. Síðan
hefur blaöiö komið út reglulega og
stendur vel undir einum starfs-
manni.”
— Hvað um útbreiðslu?
,,Við höfum hátt í 1000 áskrifendur,
þar af um 500 á Húsavík, sem er
mjög gott,” svarar Jóhannes og er
greinilega stoltur af. Við gefum hon-
um orðið áfram. „Síðan bætast við
um 150 áskrifendur hér í nærsveitum
en þess utan eigum við lesendur um
allt land, meira aö segja fara ein 15
blöð til annarra landa. I nær öllum
tilfellum er þar um að ræöa burt-
flutta Þingeyinga sem vilja fylgjast
meðgangimálaheimafyrir.” "
- vlkurblaðið er „frjálst og óháð”,
en hvernig hefur gengið að halda því
utan við flokkapólitík?
„Það hefur tekist hingaö til, það á
enginn flokkur hauk i blaðinu. Hins
vegar er búið að kenna mig við alla
flokka. Það eru nefnilega til þeir
menn sem liggja yfir blaðinu til að
reyna að finna höggstað á „óháða”
stimplinum. Og það er aUt tínt til.
Mér er til að mynda minnisstætt
þegar við birtum mynd af Eyjólfi
Konráð Jónssyni með grein um fund
sem Sjálfstæðisflokkurinn hélt.
Myndin af Eyjólfi þótti slæm. Þar
með vorum við stimplaðir andstæð-
ingar Eyjólfs og Sjálfstæðisflokks-
ins.
Við þiggjum heldur ekki ríkis-
styrk, eins og flest önnur blöð gera.
Hins vegar hefur einn og einn vel-
unnari blaðsins litið inn tU okkar og
gaukað aö okkur pening. Oftast eru
þar gamlar og góðhjartaðar konur á
ferðinni.”
— Hefur blaðið vakiö athygU á
hagsmunamálum ykkar Húsvíkinga
eða Þingeyinga sem síðan hafa kom-
ist i höfn, beint eða óbeint fyrir þrýst-
ing fráblaðinu?
„Sko, við ætlum ekki að bjarga
heiminum, eins og ég sagöi þér í
upphafi,” sagði Jóhannes. „Það er
hins vegar rétt að ýmis verkefni
hafa farið í gang eftir' að við höfðum
bent á nauðsyn þeirra í blaðinu.
Menn eru til með að skammast og
rífast úti í horni, jafnvel við sjálfa
sig, en síðan gerist ekkert í máUnu
nema þá aö um það sé fjaUaö í fjöl-
miðlum. Það er eins og málefnið sé
ekki trúverðugt fyrr en það er komið
á prent,” sagði Jóhannes Sigurjóns-
son í lok samtalsins.
-GS/Akureyri.
TIL SÖLU
Varahlutir og aukaútbúnaður á J.C.B. III—D 1978,
opnanleg afturskófla. Snjóskófla. Olíuverk nýtt,
afturdekk á J.C.B. felgum.
Uppl. í símum 36135 og 44018.
ÍTALSKAR STERKAR OG GÓÐAR
SNJÓÞOTUR
Teg: 780 kr. 326,00.
Teg: 781 kr. 383,00.
'J
\
Teg: C 811 Competition kr. 496,00.
PÓSTSENDUM
ÚTILÍF
Glæsibæ — Sími 82922
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ!
AUKABLAÐ UM
AKUREYRI
KEMURUTUM MIÐJAN NOVEMBER
Þeir auglýsendur á Akureyri og nágrenni, sem áhuga hafa á að auglýsa vöru sína og
þjónustu í þessu aukablaði, vinsamlegast hafi samband við Pál Stefánsson
auglýsingastjóra DV sem verður á Hótel KEA, Akureyri, sími 22200
dagana 27.-29. okt. og mun hann aðstoða við auglýsingagerð.