Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Blaðsíða 13
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. OKTOBER1982. 13 að ef ég hefði ekki vitað að þetta var einn af borðstofustólunum okkar hefði ég getaö dáðst aö þessari jurt löngum stundum. Til að gera langt mál stutt, þá tókst mér aö lokum að koma upp snúrunum, en það er gott dæmi um óheppni okkar háaloftsbúa, að um leið og ég hafði lok- ið við að festa síðasta krókinn, bilaði þvottavélin. Vinnuaðstaða II Á meðan ég var að pára þetta um verstu vinnuaðstöðu sem þekkist í ver- öldinni fór ég aö hugsa um hverjir byggju við næst lökustu aðstöðuna. Lengi vel fannst mér það hlytu að vera alþingismenn því að þegar sýndar eru myndir frá Alþingi eru þeir sjaldnast í salnum en sitja gjaman í gluggakist- um eða kaffistofu, en þegar ég hugsaði mig betur um komst ég að þeirri niður- stööu að númer tvö í röðinni neöanfrá væru þeir sem vinna hjá Landhelgis- gæslunni. Forðum tíð var landhelgin aöeins þrjár mílur og þá gátu menn sinnt starfinu með þvi einfaldlega að ganga fjörur, síðan var fært út í tólf mílur og þá voru keypt skip sem hétu María Júlía, held ég, og skutu lausumskotum að landhelgisbrjótum í gríð og ergi, samkvæmt fréttum í útvarpi, og við strákamir héldum að væru alvöruskot sem dræpu ef til vill eins og helminginn af áhöfn landhelgisbrjótanna, en frétt- um síðar að væru púöurkerlingar, ófærar um að granda nokkmm manni en hins vegar tilvaldar til að skjóta gömlum konum og körlum skelk í bringu á gamlárskvöldi. Næst var landhelgin færð út í fimmtíu mílur og að lokum í tvö hundmð og þótti þá mörgum nóg um, ekki síst þeim sem gengu f jömr í gamla daga. Eg man mjög vel eftir því að Oðinn og Þór vom alltaf ööru hvom að taka skip í landhelgi og meira aö segja María Júlia, með púðurkerlingamar sínar, lét ekki sitt eftir liggja í því efni, en nú les maður í blöðunum að varð- skipin séu notuð til að flytja ráðherra á milli Reykjavíkur og Akraness og arf- taki Júlíu, þyrlan, hafi það helst á sinni könnu að smala fyrir bændur og flytja byggingarefni fyrir skiðamenn upp á fjöll og aldrei hljómar gamalkunna setningin á öldum ljósvakans: afli og veiðarfæri gert upptækt. En sjálfsagt á þetta sínar eðlilegu skýringar eins og það hvers vegna stóllinn minn er enn úti í garði. • Kveðja Ben. Ax. —— Iðnskólinn i Reykjavík. . 5. Aukin áhersla verði lögð á skemmt- anir ýmiskonar, sem hagnaður renni af til iðnnáms fatlaðra. Liðir 1 og 4 era úr ályktum félags- rnálanefndarinnar en eigendur hug- myndanna sitja nú í stjórninni, en liðir 3 og 5 eru frá stjóminni og hafa komiö fram á þeim tveimur fundum sem haldnir hafa verið þegar þetta er ritað. Ýmsir aðrir möguleikar hafa fengið nrikla umfjöllun en ekki þykir ástæöa til að opinbera þá að svo stöddu. Gagnrýnin og ábyrgðin Um hina ungu og efnilegu stjóm hefur verið sagt, að henni sé ekki treystandi til að leysa úr ýmsum kjara og réttindamálum vegna þekkingar- skorts. Þessi gagnrýni hefur nær eingöngu komið frá aðilum úr fyrri stjóm, en eins og kunnugt ergerðu þeir með sér samtök á þinginu um að draga sig allir til baka úr kjöri, eftir að ljós uröu úrslit úr fomanns- og varafor- mannskjöri. Sú gagnrýni hittir því eig- endur sina sjálfa i hnakkann, þó þeir virðist eiga dálítið erfitt með að skilja það. Þannig má segja að ábyrgð þeirra sé í raun og veru tvöföld. Á síðasta kjörtímabili bera þeir ábyrgð á and- vana samtökum og á þessu kjörtima- bili leggja þeir stein í götu nýkjörinnar stjórnar. Ja&ivel starfsmaöur INSl (hinn duglegi, ábyrgi og hlutlausi) til- kynnir uppsögn sína eftir formanna- kosningar. Þykir nú breiöfylking farin aö skíta í nytina sína. Einn ágætur maður úr fyrrverandi stjórn studdi kröfu sína um afsögn nýkjörinnar stjómar með því, að það hafi tekið hann „eitt ár, að læra að svara í símann á skrifstofunni.” Auövitað meinti hánn þetta ekki bókstaflega, enda væri hæpiö að hann gengi þá laus, en menn spyrja samt sjálfa sig hvort það sé nú ekki eitthvaö bogið við þetta. Því hefur verið haldið fram, að „starfið” í INSI hafi „sjaldan” verið „viðameira,” svo talað sé í fréttafyrir- sögnum úr DV. Þetta væru ánægjuleg ummæli ef fyrir þeim væri flugufótur. Möguleiki er að starfið hafi verið neðanjarðar, og er það raunar eini möguleikinn, því þetta „viðamikla” starf hefur því miður farið framhjá flestum. Fram hefur komið að mikið starf og erfitt sé að svara í síma, en spuming er hvort það megi kallast „viðamikið”. Það er fullkomlega ljóst að fyrrver- andi stjórn mun halda dauðahaldi í það sem eftir er af Iönnemasambandi tslands, enda fengju þeir annars skömm í hattinn frá Sigurjóni frænda. Kannski er ljósasta dæmið um hið „viðamikla” starf það, að ómögulegt er fyrir þetta staðnaða lið aö koma saman löglegum stjómarfundi, því hið sökkvandi skip er orðið mannafátt. Haraldur Kristjánsson, formaður Iðnnemasambands íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.