Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Síða 14
14 DV. MIÐVKUDAGUR 27. OKTOBER1982. MOTOROLA Alternatorar Haukur og Ólafur Ármúla 32 - Sími 37700. AÐALFUNDUR &&& Aöalfundur Samtaka áhugafólks um áfengis- vandamáliö verður haldinn fimmtudaginn 28. október nk. í húsakynnum samtakanna Síðumúla 3—5, og hefst fundurinn kl. 20.30. Dagskrá: Aðalfundarstörf. Stjórnin. „Karlleg” og „kvenleg” gildi FISKKYNNING er á morgun Gjörið svo vel — komið og smakkið Kjörbúð Hraunbæjar Hraunbæ 102 — Sími 75800 SNYRTING '82 Velkomin á hið glæsilega fræðslu- og skemmtikvöld Félags íslenskra snyrti- fræðinga að Hótel Sögu (Súlnasal) þann 4. nóvember nk. kl. 20.30. Húsið opnað kl. 19.30. Skemmtiatriði Glæsilegt happdrætti Tískusýning, o.m.fl. óvænt. Míssið ekki af þessu stórgíæsiíega og skemmtilega kvöidi okkar jafnframt því sem þið kynnist öllu því nýjasta fyrír haustið og veturínn hjá hinum ýmsu snyrtivörumerkjum. Félag ís/enskra snyrtifræðinga Ath.: Miðar seldir við innganginn. „Eg vil minna á eftirfarandi setn- ingu Marx: „Mönnum ber framar öllu að forðast þaö, að stilla upp ein- staklingi og samfélagi sem nýjum sértekningum.” Og það ekki einung- is af þeim sökum að ÖB samfélög eru mynduð af einstaklingum og að allir einstaklingar lifa í samfélögum, sem í sjálfu sér er meinlaus orðhengils- háttur; heldur í mun dýpri skilningi af þeim sökum, aö þaö sem við köllum „einstakling” er félagslegt sköpunarverk og í innviðum einstaklingsins felst „sálin”, sem ekki er félagslegt sköpunarverk. En það er fyrir tilstuðlan hinnar félags- legu mótunar einstaklingsins ásamt með starfsemi hinna sálrænu ferla og íhlutun þeirra í samfélagsþróun- ina, sem samfélagið helst viö lýði og endurskapast og breytist án afláts.” (Constantin Castoriadis í Castoriad- is og Cohn-Bendit: „De l’écologie 'a l’autonomie.” — Editions du Seuil 1981, s. 63). Greinar þær er hér fara á eftir eru tilraun til að gæða þá umræðu er síð- asta kastið hefur farið fram um kvenmenningu og karlmenningu nýrri vídd. Utgagnspunktur þessara greina eru þannig ekki skrif t.d. Helgu Sigurjónsdóttur (DV) eða Guðmundar Sæmundssonar (DV), sem eru raunar hin athyglisverð- ustu. Ekki heldur hin velviljuðu, en kannski eilítið skammsýnu skrif GuðjónsFriðrikssonar (Þjv). I þessari fyrstu grein er gerð tilraun til að varpa ljósi á fyrirbærin „karllegt” og „kvenlegt” á grund- velli söguskoðunar s.k. „kven- menningarsinna”. Að stofnin- um tií byggir grein þessi einkum á bók Dananna Lis Thorbjörnsen og BentWindelöv: „HunogHanSymbo- lik”, — Viborg 1979. Tilvitnuninni í grísk-franska heim- spekinginn Castoriadis er ætlað aö endurspegla þá grundvallarsýn, að það séu ekki einungis efnislegir, hag- rænir eöa félagslegir þættir, sem taka ber tillit til við greiningu á sam- félagslegum fyrirbærum og/ eöa þróunarferlum eins og verið hefur hinn ríkjandi andi marxískrar sögu- skoðunar, heldur beri þar einnig að taka mið af óefnislegum, einstaklingsbundnum þáttum. Manneskjan — hluti af náttúrunni Fyrmefnd bók Thorbjömsen og Windelöv er tilraun til að rita at- vinnu- og hugmyndasögu í ljósi fornra tákna og út frá s.k. kven- menningarsjónarmiði. Hér mun að sjálfsögðu stiklað á mjög stóru og byrjað á f ornum akuryrk jusamf élög- um. T og W telja aö þessi samfélög hafi snemma gert sér ljóst sambandiö Kjallarinn Lárus Már Björasson milli gangs himintungla og hring- rásar náttúrunnar. Á hellisveggjum má víða finna hringi, sem tákna sólina; stundum er hesti beitt fyrir tvíhjólaðan vagn og á þriðja hjólinu, sem haft er í togi, hvílir hringurinn, sólartáknið, sem keyrt er um himin- hvolfið á daginn, en til baka á bát þegar nátta tekur. Akuryrkjusam- félögin voru sér einnig meövituð um sambandið milli árstíðanna og gangs himintungla svo og áhrif tunglsins á sjávarföllin. Sólhjóliö, sem er upphaf almanaksins, hringur með tólf merkjum, hefur t.a.m. fundist á hellisveggjum í Egyptalandi til foma, svo og í Kina, meðal indíána í Ameríku og á Krít. Á Norðurlöndum var sólhjólið þekkt á mörkum stein- aldar og bronsaldar, eða ca 2000 árum f. Kr. Ekkert bendir til aö gert hafi verið upp á milli sólar og tungls hvaö mikilvægi eða mikilfengleika áhrærði. t tímans rás virðist sólhjólið hafa fengið yfirfærða merkingu meðal hinna ýmsu fornþjóöa. Þannig verður það að „rás tilverunnar”, „rás heimsins” og að „rás kærleik- ans”, enda kærleikurinn skoöaður sem sameiningarafl heimsins. Með þeim hætti tengjast því hugmyndir um frjósemi náttúrunnar og sam- runa konu og karls. Manneskjan er hér skoðuð sem hluti af náttúrunni, sem samstarfsaöili, ekki drottnari. Svik karlsins Til er forn goðsaga frá Mesópóta- míu (Súmerum) sem greinir frá svikum karlsins við konuna, svikum, sem urðu til þess, aö stoðunum var kippt undan heföbundnum atvinnu- vegum Súmera, akuryrkjunni, og í kjölfar drottnunar karlsins yfir kon- unni fylgir borgar- og stríðsmenning, samþjöppun eigna og framleiðslu- tækja, varnarmúrar eru reistir umhverfis borgarsamfélögin og sér- hæfð verkaskipting verður til, en sér- hæfð verkaskipting er skv. T og W það form vinnunnar, sem stétta- skipting og arðrán hvílir á. Hver stríðsmenningin tók viö af annarri, allar brenndar sama markinu, þ.e.a.s. firringunni frá náttúruöflunum og drottnunaraf- stöðu gagnvart leifum eldri menningarsamfélaga. Þannig tóku Babylóníumenn við af Súmerum sem drottnarar landsins milli fljótanna tveggja. Babylóníumaðurinn Abra- ham, er yfirgaf bæinn Ur í Kaldeu og lagði í gönguna miklu, sem varð upphaf Israelsríkis, var talsmaöur og tákn hins nýja tíma. Bein lína leysti hringinn af hólmi sem tákn framþróunar ogsem tákn mannlegr- ar drottnunar yfir náttúruöflunum. Hringurinn varð tákn fjölgyðistrúar og heiöni, fordæmdur af gyðingum. Ýmislegt bendir þó til þess að konur Israelsríkis hafi haldið áfram að líta hringinn sömu augum og forverar þeirra í Mesópótamíu (T og W, s. 24). Þannig ættu konur snemma að hafa orðið „berar” hinnar fomu heimssýnar, sem fól í sér einingu með náttúrunni og óskir um friðsam- leg samskipti meðan kariar böröust og lögðu undir sig ný lönd. Hin nýja heimssýn „hinnar beinulínu” endur- speglast í Mósebók og er hún skrifuð á þeim tíma er konan hefur veriö firrt þeirri valdaaðstöðu er hún naut í akuryrkjusamfélagi Súmera. Sköpunarsaga Biblíunnar þar sem konan er gerð úr rifbeini karlsins á sér samsvörun meðal Súmera en þar með öfugum formerkjum; rifbein konunnar er þar notað til að lækna og endurskapa hinn sjúka vatnsguð Enki, sem hefur svikið gyðjuna Nin- Hursog og þar með rofið eininguna í hringrás náttúrunnar. T og W eru þeirrar skoöunar að margt hinnar fomu sköpunar, syndaflóða og ann- arra goösagna hafi í sjálfu sér það Rj „Með tilkomu borgar- og stríðssam- félaga... verður umtalsverð breyting á bæði þeim táknum, sem menn nota, svo og virðingarstöðu „kventákna” annars vegar og „karltákna” hins vegar.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.