Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Page 16
16
DV.MIÐVIKUDAGUR27. OKTOBER1982.
Spurningin
Spurt í Verbúðinni Ásgarði, Höfn í
Homafirði.
Hvernig líkar
þér að vera á Höfn?
Vera Guðmundsdóttir Bíldudal: „Það
er bara ágætt. Allavega skemmtilegt,
miðaö við heima. Hér er sitthvaö um
að vera t.d. bíó og svoléiðis.”
Helena María Ágústsdóttir Reykjavík:
„Svona ágætlega. Það er ekki mikið
um að vera hérna en mér líkar ágæt-
lega viðyinnuna.”
Hallfríður Bjamadóttir Hveragerði:
„Ágætlega, það er betra en að vera
heima. Það er ágætt aö vinna hérna en
það er ekki mikiö um að vera fyrir
utan vinnuna.
Litla-Hraun. „Ekki fer fyrir miklum höftum á feröir fanganna innan svæðisins.
þangað inn, svosem t.d. fikniefnum" — segirm.a. ibrófiS.K.
Ganga þeir frjáisir um alla lóðina og auðvelt er að henda einhverju
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Menntunarmál fanga og meðferð:
VANTAR EKKIMEÐALVEGINN?
— mildi og miskunn „í garð manna sem hvorugt sýna né virðast þekkja”
S.K. skrifar:
Það er af sem áður var. Fyrstu árin
var Litla-Hraun fangelsi, í merkingu
þess orðs. Nú eru aðstæður „fanga”
sem hér segir: Þeir hafa frítt húsnæði,
frítt fæði, borga enga skatta og þurfa
ekki að borga krónu fyrir það sem þeir
eyðilögöu fyrir öðrum. Á Hrauninu
vinna þeir fyrir ágætis kaupi enda eru
fangaklefamir eftir því. Þar eru dýr-
ustu stereo-græjumar á landinu og
fleiramættitelja.
Fangarnir era í fótbolta, stunda alls-
konar líkamsæfingar og striplast í
heita pottinum á þessu hressingar-
heimili. Svo er það videoið, en í því er
aðallega horft á glæpa- og ofbeldis-
myndir. (Það myndefni er sennilega
talið sérlega uppbyggjandi fyrir ná-
kvæmlega þennan hóp).
Ekki fer fyrir miklum höftum á ferð-
ir fanganna innan svæðisins. Ganga
þeir frjálsir um alla lóðina og auðvelt
er að henda einhverju þangaö inn, svo
sem t.d. fíkniefnum. (Svo er talað um
hversu mikilum erfiðleikum þaö er háð
að stemma stigu við fíkniefnaneyslu
fanga.)
Finnst mér þetta vera nokkuð önnur
meðferð en maður fær sem tekinn er
fyrir ölvun — og fær ekki einu sinni
vatn að drekka í Hverfisteininum.
Vantar ekki meðalveginn í þessum
efnum?
En fólk hættir sennilega ekki að
skrifa um úrbætur afbrotamönnum til
handa fyrr en þeir eru fluttir inn á
heimili skrifaranna. Skrif um mildi og
miskunn tel ég eiga lítinn rétt á sér í
garð manna sem hvorugt sýna né virð-
ast þekkja. Annaðhvort verður að
refsa mönnum fyrir lögbrot eöa horf-
ast í augu við stjórnleysi.
Mér þætti gaman að spyrja S.G.H.,
sem skrifar á lesendasíðu DV 20. októ-
ber sl., hvort hann myndi kæra sig um
að bam hans sæti á skólabekk við hlið
þeirra þriggja fanga er öll þessi skrif
hafa snúist um; þriggja manna, er
hlotið hafa þunga dóma, varla að til-
efnislausu. Við skulum hafa það hug-
fast að við vitum ekkert um fyrirætlan-
ir þessara pilta.
Þaö er lágmarkskrafa að kennsla
þessara manna fari fram á Litla-
Hrauni. Það vilja þeir auðvitað alls
ekki. Þeir vilja meira frelsi enda voru
þeir fljótlega komnir á flakk í búðirnar
á Selfossi.
Gróa Guðmundsdóttir Selfossi: „Fínt
aö vera hérna, já, já. NEI, ég vildi sko
ekki búa héma, það er alltof lítið um að
. vera fyrir utan vinnuna.”
Grein Víkurfrétta var óréttmæt
segir unglingur í Keflavík
8925-9614 skrifar:
Ég sendi þetta bréf vegna ádeilunn-
ar sem svokallaður Isbar í Keflavík
varö fyrir. Er ég eindregið sammála
Inga Guðmundssyni sem birti bréf í
DV 15.10. síðastliðinn um þetta mál.
Hvar eigum viö unglingamir annars
staðar að vera hér í Keflavík? Eigum
við kannski að ganga um göturnar eða
sitja heima og glápa á allt þetta fjöl-
breytta og skemmtilega dagskrárefni
sem sjónvarpið sýnir á meðan þið for-
eldrarnir eruð úti að skemmta ykkur?
Einnig vil ég koma því til Víkur-
frétta að reykingar eru stranglega
bannaöar á þessum staö. Og einnig er
bannað að drekka.
Það getur nú samt komið fyrir, þar
eins og annars staöar, að einstaka
maður komi inn með vín undir hönd-
um. En ef verður vart við það þá er
honum vísað strax út þaöan.
Vil ég vona að barnaverndin reyni þá
að opna annan stað áöur en hún kemur
nálægt þessum svo við unglingarnir
höfum þá annaö athvarf áður en þið
takið þetta af okkur. Ætla ég aö vona
að svo veröi ekki.
Eg hef til dæmis eytt hundraðum, ef
ekki þúsundum, króna og sé alls ekki
eftir því fyrir alla þá skemmtun sem
ég hef haft upp úr þessum spilum.
Ef svo vill verða aö eigi að loka Is-
barnum þá stöndum saman krakkar og
segjum NEI. Hvað ef við unglingamir
tækjum okkur nú saman um aö láta
loka öllum vínveitingastööunum í
borginni? Þá myndi sjálfsagt heyrast í
mörgum. Látið okkar skemmtistaði í
friði: Grein Víkurfrétta var óréttmæt.
Guðný Björnsdóttir Bíldudal: „Það er
ágætt að vera hérna. Það er ágætur
mórall hérna í verðbúðinni og bara fínt
þar semég vinn.”
Hjördís Geirsdóttir Reykjavík: „Það
er ágætt að vinna hérna, en ég vildi alls
ekki búa hér.”
Keflavik. Vegna skrifa um ísbarinn þar spyr unglingur: „Hvar eigum við unglingamir annars staðar að vera hór iKefiavik?"
Vegna skrifa um ísbarinn í Kef lavík: