Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Síða 37
DV. MIÐVIKUDAGUR27. OKTOBER1982.
37
DÆGRADVOL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
„Stórkostlegt að vera
úti á sjó í góðu veðri”
— rabbað við Kristmund Jónsson á Bæjarins bestu
Þeir eru ófáir, sem komið hafa við
á pylsuvagninum í Tryggvagötu,
sem jafnan er kenndur við Bæjarins
bestu, og fengið sér eina meö öllu
eins og það er kallað. En þeir eru
ekki margir sem vita að eigandi
hans, Kristmundur Jónsson, er
mikill sportbátaáhugamaöur.
„Eitthvað það stórkostlegasta
sem maður lendir í er aö vera úti á
sjó í góðu veðri á bjartri sumar-
nóttu,” sagði Kristmundur, er við
röbbuöum nýlega við hann um
dægradvöl hans, siglingar á sport-
bátum.
Hann sagði okkur að hann hefði
byrjað í þessu sporti í kringum ’56 og
hefði ætíð haldið sig eingöngu viö
sjóinn. Hann sagöi ennfremur að þau
hjónin veiddu talsvert af fiski og í
mörg ár hafa þau ekki keypt fisk.
„Við notum eingöngu sjóstöng og
okkur finnst mesta sportið í að veiða
stórufsann,” sagði Kristmundur.
Aðspuröur sagði Kristmundur að
þau hjón hefðu aldrei farið hringinn
Bátur Kristmundar, Jón Sveinsson, er 24 feta norskur ptastbátur. „Dásamlegt að sigla um Breiða
fjörðinn og skoða eyjamar," segir Kristmundur. tjósmynd: Einar Kristinsson.
„STEFNIR í
RÉTTA ÁTT”
— segir Jón Ó. H jörleif sson
varaformaður Snarfara
„Þetta stefnir allt í rétta átt,”
sagði Jón 0. Hjörleifsson, varafor-
maður í Félagi sportbátaeigenda,
Snarfara, er við spurðum hann um
aðstööu siglingamanna.
„Við gerum okkur vonir um aö
geta tekið í notkun smábátahöfn
næsta vor, en hún verður Súðarvogs-
megin vestan við Elliðaámar. Það
verður algjör bylting þegar hún
kemst í gagnið.
Jón sagði að um þrjú hundruð og
fimmtíu félagar væru í Snarfara og
væru um áttatíu og fimm bátar á
skrá í klúbbnum. Hann sagði einnig
að starfið væri lítið á vetuma, en
byrjaði af krafti í apríl. „Við höldum
árshátíð og erum með nokkra rabb-
fundi á veturna,” sagði Jón
aðspurður aö lokum.
JAn Ú. Hjörieifsson: „Um þrjú hundruð og fimmtfu félagar eru i Snarfara."
svokallaða á bát, en þau hefðu oft
skroppið til Isafjarðar og Breiða-
fjarðar. „Það er dásamlegt að sigla
um Breiðafjörðinn og skoða
eyjarnar.”
Sigríður Júliusdóttir, kona Krist-
mundar, kom og fékk sér sæti hjá
okkur á meðan viö spjölluðum
saman. Eg spuröi hana strax hvort
þeirra hjóna væri meiri afiakló.
Sigríöur hló og sagðist nú ekki vita
þaö, en Kristmundur sagði þá strax
að hún ætti stærri lúður en hann.
„Hún hefur veitt tvær um tuttugu
kíló rétt fyrir utan Straumsvík og
slíkum hef ég ekki náð.”
Kristmundur sagði einnig að
siglingamar væru ákaflega
skemmtileg dægradvöl. Það væri í
reynd ólýsanlegt að vera úti á sjó og
dorga og að menn hefðu það á tilfinn-
ingunni að þeir ættu heiminn.
Kristmundur er í félagi í Hafiiar-
firði er heitir Bátaver og hann sagði
að um þrjátíu bátaeigendur væra í
þessu félagi. Þeir hefðu sínar eigin
reglur og sú mikilvægasta væri sú að
þeir hjálpuðu hver öðrum í nauð, ef
slíkt skyldi henda.
En hvenær skyldu þau Krist-
mundur og Sigríður helst sigla?
„Langmest um helgar. Oft hefur
komið fyrir að við höfum farið á
laugardagsmorgni og ekki komið i
land aftur fyrr enásunnudeginum,”
sagði Kristmundur.
Að lokum sagði Kristmundur að á
því léki enginn vafi að siglingar á
sportbátum yrðu sífellt vinsælli hér á
landi og þyrfti það ekki að koma á
óvart. „Sjórinn, fiskurinn og sjávar-
loftið heillar alltaf. ”
JARINS
T U
SUR
Kristmundur Jónsson fyrir utan pyskrvagnarm i Tryggvagötunni. SigKngar i sportbátum hafa verið
hans dægradvöl í um tuttugu og sjö ir.
Hanna ásamt syni sínum, Sigurði Ú/farssyni, mað góða lúðu fyrir nokkrum árum. Ekki annað að sjá en að
Sigurður sá hreykinn af feng mömmu. Ljósmynd: Úlfar Björnsson.
„Geysilega skemmtilegt”
segir aflaklóin Hanna Georgsdóttir, félagi í Snarfara
„Þetta sport á hug okkar allt sum-
arið,” sagði Hanna Georgsdóttir,
Félagi sportbátaeigenda,
Snarfara í Reykjavík, en hún veiddi
stærstu ýsuna á Sjóstangaveiðimóti
Snarfara í sumar. Og vó ýsan um
þrjú kíló.
„Það eru um fjögur ár síðan við
byrjuðum í þessu, en þá keyptum við
hjónin átján feta bát. Það má segja
að við bíðum á vetuma eftir að kom-
ast á sjó, enda er þetta geysilega
skemmtilegt. Og fjölskyldan fer
mikiö saman út,” sagði Hanna enn-
fremur.
Hún sagði einnig að það væri ekk-
ert sem jafnaðist á við það að fara út
á sjó á fallegu sumarkvöldi. „Kyrrö-
in sem þá er er dásamleg,” sagði
Hannaaðlokum.