Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Side 40
NÝJA
AGFAFILMAN
ÓTRÚLEGA SKÖRP
OG ISJÆMFYRIR LITUM
ÓDYRARI FILMA SEM
FÆST ALLS STAÐAR
AFGREIOSLA
ÞVERHOLTI 11
PIERPOÍIT
Svissnesk quartz gæða-úr.
Fást hjá flestum
úrsmiðurn
866'1
AUGLÝSINGAR
MIÐVIKUDAGUR 27.QKTOBER 1982.
Maðurínn sem saknað er, Hafþór
Helgason, kaupfélagsstjórí á ísa-
firði. DV-mynd Bjarnleifur
Enn ekkert spurst
til vélarinnar
Enn hefur ekkert spurst til flugvél-
arinnar TF-MAO sem saknað er frá
því í gærmorgun. Með vélinni er
einn maður, Hafþór Helgason, kaup-
félagsstjóri á Isafirði, þrjátíu og sjö
áraaðaldri.
Myndin af Hafþóri er tekin fyrir
um hálfum mánuði er DV var á ferð
á Isafirði og átti viðtal við Hafþór.
Leit að vélinni veröur haldið áfram
idag.______________ -JGH.
Sambandslaust
við ísafjörð
Símastrengur á Breiðadalsheiði
slitnaði skömmu eftir miðnætti í nótt.
Af þeim sökum er símasambands-
laust við Isafjörð, Bolungarvík,
Suðureyri og Súöavík. Slæmt veður
er nú á Breiðadalsheiði. Ovist er
hvenær viðgerð lýkur. -KMU.
Engin ný tilfelli
á fæðingar-
deildinni
, ,Við erum aö vona að við förum aö
sjá fyrir endann á sýkingu, liklega
veirusýkingu, sem gengið hefur hér í
borginni og komið hefur fram í bæði
börnum og fullorðnum, sérstaklega
síðast í september,” sagði Gunnar
Biering, yfirlæknir á vökudeild
Bamaspítala Hringsins, á fæðingar-
deild Landspítalans.
— „Þessi sýking er frábrugðin
venjulegri veirusýkingu í þvi að
nýfædd börn virðast vera móttækileg
fyrir henni. Nú eru þó engin nýtilfelli
á fæðingardeild. Þetta kom upp í
innan við tveimur tugum barna og
greindum viö heilahimnubólgu hjá
tæpum helmingi þeirra. Veikindin
hafa þó, sem betur fer, verið væg.
Fyrir einum tíu dögum síðan
fundum við að vísu tvö tilfelli, en
engin höfðu þá gert vart við sig í tvær
vikur. Við erum því vongóðir um að
nú sé verulega að draga úr þessu,”
sagðiGunnaraðlokum. -FG.
Skreið tii baka frá Ítalíu
verður forsíðufréttin
okkar á morgun
Hundruð lífeyrisþega
misstu símafríðindi
Nærri 300 ellilífeyrisþegar misstu
eftirgjöf afnotagjalds síma í septem-
ber. Samkvæmt upplýsingum frá
Pósti og síma eru margar orsakir til
þess. Helstar eru þær að fólk dettur
út af lista Tryggingastofnunar um þá
sem njóta óskertrar tekjutryggingar
eða fer á sjúkrahús. Samkvæmt lög-
ein króna getur skipt sköpum
um eiga þeir sem njóta óskertrar
tekjutryggingar rétt á að fastagjald
símans sé fellt niður.
Sigurlaug Ottesen hjá Trygginga-
stofnun ríkisins sagði að með því að
miða við svokallaö frítekjumark sem
Þjóöhagsstofnun reiknaði út væri
fundiö út hverjir ættu rétt á óskertri
tekjutryggingu. I ár heföi þetta mark
hækkaö um 60% sem væri talsvert
meira en í fyrra. Hún sagði einnig að
margir aldraðir nytu nú lífeyris-
greiðslna úr Lífeyrissjóði aldraöra
sem gæti oft þýtt að fáriö væri fram
úr mörkum um skerta tekjutrygg-
ingu. Þama væri ákveðin lína og
þannig yrði það að vera. Ein króna
til eða frá gæti skipt sköpum um
hvort fólk fengi skerta eða óskerta
tekjutryggingu og þar með niðurfellt
símagjald.
JBH
Mozart fékk skömm íhattinn fyrir Töfraflautuna þvíþar var hann talinn hafa ijóstrað
upp leyndarmálum frímúrara. íslenska óperan frumsýnir þetta sívinsæla verkannað
kvöld. DV-mynd: Bjarnleifur.
TVÆR TÆKNIDEILDIR
HJÁ SJÓNVARPINU
— og tveir verkfræðingar forstöðumenn
Tæknimálum Sjónvarpsins hefur
nú verið skipaö í tvær tæknideildir í
stað einnar. Jafnframt hefur verið
ráðinn annar verkfræðingur til stofn-
unarinnar og eru verkfræðingar
hennar báðir forstöðumenn.
Starfi forstöðumanns þróunar-
deildar Sjónvarpsins mun gegna
Hörður Frímannsson, sem verið hef-
ur yfirverkfræðingur og eini verk-
fræðingur stofnunarinnar.
Þá hefur Eyjólfur Valdimarsson
verkfræðingur veriö ráðinn forstöðu-
maður almennrar tæknideildar.
DV skýrði frá aðdraganda að þess-
um skipulagsbreytingum í síðustu
viku. I framhaldi af því óskar Pétur
Guðfinnsson framkvæmdastjóri eftir
því að skýrt komi fram að heimild til
þess að ráöa annan verkfræöing hafi
legið fyrir 18. ágúst. Einnig að staða
deildarverkfræðings hafi verið aug-
lýst undir nafni stofnunarinnar.
Frétt DV um þetta mál í síðustu
viku barfyrirsögnina: „Tæknistríðí
Sjónvarpi að ljúka?”. Samkvæmt
upplýsingum framkvæmdastjóra
Sjónvarpsins var framtíðarskipulag
tæknimálanna samþykkt skömmu
eftir að DV ræddi við framkvæmda-
stjórannummálið.
HERB
Alusuisse
Á næsta aðalfundi Alusuisse verða
talsverðar breytingar á yfirstjórn.
Þá tekur dr. Sorato við formennsku
framkvæmdastjómar og einnig við
daglegum störfumsemstjórnarfor-
maður hefur annast.
Dr. Miiller lætur af formennsku
framkvæmdastjómar en verður
áfram í stjórn. Mayer heldur áfram
sem stjórnarformaður nema í dag-
legum rekstrarþáttum. Hinn nýi
aöalstjórnandi daglegs reksturs
Alusuisse, dr. Sorato, er ítali sem
verið hefur varamaður dr. Miillers
umárabil.
Þeir dr. Miiller og Mayer ákváðu
fyrir nokkrum ámm og tilkynntu
síðast sérstaklega fyrir tveim árum
að þeir myndu láta af daglegum
stjórnunarstörfum við 65 ára aldur.
Annar þeirra nær þeim aldri í janúar
næstkomandi og hinn í mars.
Aðalfundur Alusuisse verður lík-
legaí apríl. , HERB.
ym r m m m
Farviðri
á Siglufirði
Fárviðri með mikilli úrkomu gekk
yfir Siglufjarðarbæ í gærkvöldi. Þök
fuku af húsum, bátar sukku og raf-
magnslaust varð í bænum um tíma.
Engin meiðsl urðu á fólki.
Að sögn lögreglunnar á Siglufirði
byrjaði aö hvessa verulega á milli
fimm og sex í gærdag. Síðan gekk á
með fárviðri. Tjón er verulegt á hús-
um. Af nokkmm þeirra fuku þök í
heilu lagi og mjög víða fuku þakplöt-
ur af. Trilla og árabátur sukku í
höfninni.
Lögreglan á Siglufirði sagði enn-
fremur að þetta væri. eitt alversta
veður er gengið hefði yfir bæinn í
langa tíð. Var ekki stætt utan dyra.
Þá skapaðist mikil slysahætta vegna
þakplatna er f uku um aUt í bænum.
-JGH
Lögreglunemar
gerðustnjósnarar
Nemendur í Lögregluskóla ríkisins
léku njósnara á stórslysaæfingunni í
gær. Af hálfu þeirra sem stóöu að æf-
ingunni var aUt gert tU að hvers kon-
ar hnökrar sem fram kynnu að koma
kæmu upp á yfirborðið svo af þeim
mætti læra. Vom því fengnir 26 lög-
reglunemar og höfðu þeir það hlut-
verk að vera óvirkir njósnarar hér
°?Þar. JBH