Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Qupperneq 1
Lyf tingamaður á sjúkrahúsi:
NEYTTl HORMÓNALYFJA
Grunur hefur lengi leikið á því að
lyftingamenn noti hormónalyf en
ekki fengist áþreifanlegt dæmi um
það fyrr en nú. Fyrir skömmu var
lyftingamaður lagður inn á sjúkra-
hús í Reykjavík. Akveðinn þáttur í
veikindum hans varð ekki skýrður
fyrr en í ljós kom að hann hafði neytt
karlhormónalyfja. Hormónaneyslan
sem slík var ekki ástæöan fyrir veik-
indum mannsins, heldur kom hún
fram við rannsókn.
Læknir, sem DV ræddi við vegna
r
m r
málsins, sagðist hafa „sterkan grun
um að hér væri ekki um einangraö
fyrirbrigði að ræða. ”
Karihormónalyf eru á íslenskri
lyfjaskrá en aðeins gefin í einstaka
tilfellum. Samkvæmt upplýsingum
frá iandlækni hefur verið vandlega
fylgst með lyfjaútskriftum síðustu
árin og ekkert dæmi komiö upp um
þannig lyfjagjöf. Flest bendir því til
þess að hoimónalyf séu flutt inn á
óiöglegan hátt. Engin mál hafa kom-
ið upp hjá lögreglu og tollgæslu sem
tengjast ofnotkun eða ólöglegum inn-
flutningi á hormónalyfjum, eftir því
semDVkemst næst.
Ástæðan fyrir því að íþróttamenn
taka inn hormónalyf er sú að vöðvar
stækka og styrkjast. A móti kemur
það sem mönnum virðist ekki vera
nægjanlega ljóst, ofneysla þeirra
getur meðal annars haft í för með
sér að karlmenn verða ófrjóir. Eist-
un geta orðið óstarfhæf og sæðis-
frumur hætt að myndast. Talið er að
sá skaði sé varanlegur.
Varaformaður Lyftingasambands-
ins sagði nýlega í samtali við DV að
íslenskir lyftingamenn neyttu ekki
karlhormóna, svo hann vissi til. Tók
hann skýrt fram að innan íþrótta-
hreyfingarinnar væri neysla á slík-
um lyfjum stranglega bönnuð. Sjá
nánarábls.3 jbh
■
AUGLYSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
agbla
Ályktun krata:
Landið verdi
eittkjördæmi
sjábls.2
Símaraf
ýmsumgerðum
— sjá neytendasíðu
bls.6
Morðingja fagnað
— sjá erl. grein
bls. 10
• Fjögurríki
Sigmar B. með mótmæla
næturútvarp hvalveiðibanni
— sjá Sandkom — sjá erl. f réttir bls. 9
Mikiö tap hjá
Jassvakningu
—vegna tónleika Charlie Haden
Mikiö tap varð á tónleikum jassist-
ans Charlie Haden, sem hélt hér tón-
leika í síðasta mánuði á vegum Jass-
vakningar.
Að sögn Vemharðs Linnet, formanns
Jassvakningar, er tapið áætlað á bilinu
90 til 100 þúsund krónur og væri
ástæðan að mikið minni aösókn varð aö
tónleikunum en reiknaö hafði verið
með. Aðgangseyririnn dugði rétt fyrir
kaupi hljómsveitarinnar, en það sem
eftir stendur af skuldum er að mestu
við banka og aðra innlenda aðila.
Vemharður sagði að ekkert þýddi að
gefast upp heldur yrði að reyna að ná
inn þessum peningum með einhverju
móti og yrði þaö rætt frekar á aðal-
fundi Jassvakningar sem verður næst-
komandi laugardag. Á næstunni mun
Jassvakning standa fyrir jasskvöldi
með helstu jassistum landsins og í des-
ember er von á Mississippi Delta Blues
Band. ÖEF
Charlie Haden reyndlst
Jassvakningu dýr.
256. TBL. 72. og 8. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982.
Vextirnir hækka og grunnur Seðlabankans hækkar. Þar hefur verið steypt af krafti
undanfarið. DVmyndS.
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
a
iMi