Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Side 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd ÞÚSUNDIR FLÝJA HEIMILISÍN Á INDLANDIVEGNA HVASSVIÐRIS Vitaö er um að minnsta kosti fimm manns sem farist hafa í hvassviðri sem gengið hefur yfir vesturströnd Indlands en þúsundir manna hafa orðið að yfirgefa heimili sín vegna óveðursins. Vindhraði hefur komist allt upp í 200 km/klst og hafa gildustu tré slitnað upp, þak fokiö af húsum, rafmagns- og símastaurar brotnað og sitthvað fleira. I Gujarat-ríki norður af Bombay hefur veðrið komið harðast niður á fólki. Ottast er um 1.000 fiskimenn sem voru á sjó þegar óveðrið skall á. Vitað er að einhverjir komust til lands þar sem þeir biðu skipbrot. Flugvöllurinn í Bombay lokaðist í gær vegna veðursins en her og floti hafa verið kvaddir til björgunar- og hjálparstarfs í Gujarat. Eins og í óveðrinu í S-Evrópu hafa þessu fylgt miklar rigningar og víða flætt. I suðurhluta Bombay var gripið til þess að flytja um 10 þúsund manns burt frá heimilum þeirra, sem þóttu liggja ískyggilega lágt og vera í flóða- hættu. Oveður í S-Evrópu Mannskaðaveöur hefur gengiö yfir Spán, Frakkland, Sviss, Portúgal, Marokkó og Tangier um helgina og er vitað um 25 manns sem farist hafa í þessum löndum í veðrinu. Gleggstar fréttir eru af veörinu í suðurhluta Frakklands, þar sem þök hafa rifnað af húsum, voldug tré slitnað upp og bílar f okið um koll eða út af akbrautum. Rafmagnslinur hafa slitnaö og eru um 20 þúsund manns í rafmagnsleysi. Símalínur hafa einnig sums staðar farið. Urhellisrigningar hafa verið á þessum slóðum og í Frakklandi hafa ár flætt yfir bakka sína, spillt vegum og járnbrautarteinum, auk þess sem flætt hefur inn í hús. — 9—11 eru taldir af í Frakklandi. 8.500 lesta olíuskip hraktist í veðrinu og strandaði viö Narbonne. Annað olíu- skip strandaði eftir að það hafði slitnað upp í höfninni Mohammedia í Marokko og hafði þó áður losað 60 þúsund lestir af hráolíu í höfnina til þess að reyna aö lægja ölduganginn. Tíð slys hafa orðið á vegfarendum, hvort sem þeir hafa verið gangandi eða akandi. Flest vegna foks. De Cuellar tekur kvartanir starf s- f ólks S.þ. til yfirvegunar Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur skipað nefnd nokkurra deildar- stjóra og ráðgjafa sinna í aðalstöðvun- um til þess aö huga að kvörtunum starfsfólks samtakanna. Vinna var tví- vegis lögð niöur í aðalstöðvunum í síð- ustu viku og mótmælaaðgerðir starfs- manna urðu til þess að fundarstörf fóru úr skoröum. De Cuellar hefur lagt fyrir nefndina að skila sér skýrslu fyrir 27. nóvember, en fyrir liggur listi sem starfsmanna- f élagiö hef ur lagt fram með kvörtunar- efnum sinum. Ber þar hæst óánægja með að 21 erindreka starfandi hjá Sameinuðu þjóðunum hefur ekki verið náð úr pólitískri fangavist hér og þar í einræðisríkjum. Einnig finnst starfs- fólkinu mismunun ríkja við embættis- veitingar eftir þjóöerni og pólitík. DE LOREAN BER VIÐ SAKLEYSI Verjandi bílaframleiöandans, John De Lorean — sem kærður var fyrir samsæri um kókaínsmygl — segist ætla að byggja vörnina á því að réttvís- innar þjónar hafi freistað skjólstæðing hans til þess að brjóta lögin. Slík málsvörn hefur margsinnis dug- að til þess að ónýta málatilbúnað lög- gæslunnar í Bandaríkjunum gegn mönnum sem gengið hafa í gildrur lögreglunnar. Ennfremur saka lögfræðingar John De Lorean saksóknara þess opinbera um að hafa háð áróðursstríð í f jölmiðl- um gegn De Lorean. Bílaframleiðandinn mætti fyrir rétt í gær, þar sem honum voru birtar ákærumar á hendur honum, alls níu talsins. Hann sagöi sig saklausan af þeim öllum. Hann hefur gengið laus eftir að lögð var fram 10 milljón doll- ara trygging fyrir hann. Ákveðið hefur veriö að málflutning- urhefjist7. janúar. Tveir samsærismannanna úr kókaínsmyglinu, William Hetrick og starfsmaöur hans, Stephen Arrington, hlýddu einnig á ákærurnar gegn sér í gær og héldu sömuleiðis fram sakleysi sínu. Þeir voru leiddir handjárnaöir aftur í varðhald en hvorugur hefur get- að lagt f ram næga tryggingu. Hvalveiðar: Fjögur riki hafa mótmælt ráðgerðu banni. Fjögur ríki mótmæla hval- veiðibanninu —90 daga fresturinn rann út4. nóvember Sovétríkin, Japan, Noregur og Perú hafa hafnað því að hlíta algjöru banni viö hvalveiðum til söluvinnslu, sem ráðgert var að gengi í gildi 1986, eftir því sem alþjóða hvalveiðiráðið skýrir frá. Þessi fjögur ríki voru strax í upphafi andvíg hugmyndinni sem samþykkt var meö þrem-fjórðu atkvæða á ráð- stefnu hvalveiðiráðsins í Brighton í j úlí síðasta sumar. Aðildarríki hafa 90 daga frest til þess að koma á framfæri við ráðiö mótmælum sínum við sam- þykktum þess. Sá frestur rann út 4. nóvember. Island, Suður-Kórea og Brazilía, sem einnig greiddu atkvæði gegn sam- þykktinni, lögðu ekki fram mótmæli áður en fresturinn rann út. En þeim gefst annar 90 daga frestur til endur- skoðunar á afstöðu sinni, eftir að mót- mæli hinna komu f ram. Perú og Chile hafa einnig mótmælt hvalveiðikvótum sem settir voru á veiði í þeirra lögsögu. Þótt þessi ríki hafi sett fram mót- mæli sín er ekki vitað hvort þau hyggj- ast halda hvalveiði í stórum stíl áfram 1986 eða hvort þau hafa viljað tryggja sér nýjan frest til þess að halda öllum möguleikum opnum enn um hríð. Alþjóða hvalveiðiráðið getur ekki fylgt veiðibanni sínu eftir með refsiaðgerð- um, en Bandaríkjastjórn kann aö leggja viðskipta- og fiskveiðibann á þau ríki sem virða bannið að vettugi. Hvalveiðibannið tekur ekki til eski- móa eða veiðimannaþjóðfélaga sem framfærslu sína hafa af veiði hvala og annarra sjávardýra. Eftirlit með skipum skráðum f Honduras Floti Hondúras hefur tilkynnt að hann hafi sagt upp skráningu .500 skipa sem sigla undir fána hans án þess að vera í rauninni frá Hondúr- as. Fulltrúi flotans sagði að erlend skip sem sigla undir fána hans hefðu orðið uppvís að alls kyns lög- brotum. Ekki vildi hann þá útskýra nánar um hvaða lögbrot væri að ræða. Hann sagði að ekkert skip fengi að skrá sig í Hondúras eða nota fána þess án þess að nákvæm rannsókn færi áður fram eigendum skipanna. á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.