Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Page 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982 Spurningin Hvernig líkar þér að láta taka af þér myndir? Guðlaug Jónsdóttir afgreiöslumaður: Það er ekkert þægilegt. Nei, mér er ekkert illa viö það en heldur ekkert vel. Eg hef á tilfinningunni að ég myndist Ula. Dagbjört Sigurbergsdóttir sölumaður: Allt í lagi. Eg myndast bara þokka- lega. Manni bregður bara ef tekið er óvænt. Þetta er í góðu lagi ef maður veit þegar á að taka mynd. Ólafur Pálsson: Mér er illa viö það, tóm vitleysa. Mér líður samt ekkert illa fyrir framan myndavél. Brynjar Kristmundsson skipstjóri: Ef ég tolli á myndinni þá er þetta allt í lagi. Svo er gaman að sjá hvemig maður kemur út. Nei, mér er ekkert illa við að láta mynda mig. Unnur Ólafsdóttir veöurfræðingur: Mér er alveg sama. Ég hugsa aö ég myndist frekar illa. Nei, það er ekkert óþægilegt að standa fyrir framan myndavél. Guðrún Maríasdóttir húsmóðir: Eg er litið hrifin af því. Já, mér líður illa að vera fyrir framan myndavélar, er óvön því og ég myndast illa. Það er lík- lega af því að ljósmyndaramir erul ómögulegir, myndavélamar lélegar og I bakgrunnurinn ljótur. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Reyðarfjörður. Uppbygging atvinnulífs á Reyðarfirði Jóhann Þórólfsson skrifar: Eg vil geta þeirra er ég tel hafa byggt upp atvinnulíf Reyöarfjarðar undanfarin 60—70 ár. Skal þá fyrst nefna Þorstein Jónsson kaupfélags- stjóra, hann var mikill hugsjónarmað- ur og stór atvinnuveitandi. Það má segja að hann hafi verið faðir Reyðar- fjarðar. Sjálfur var hann hörkudug- legur maöur, oddviti hreppsins í mörg ár og gegndi ýmsum trúnaöarstörfum fyrir Reyðarfjörð. Þá er að minnast á Rolf Johannsen kaupmann sem var umsvifamikill atvinnurekandi og mikill athafnamaöur. Hann átti 2 mótorbáta sem hann geröi út á sumrin heima en frá Hornafirði á veturna. Allan fisk af þeim lét hann sjálfur verka, þvo og þurrka. Skaffaði það mikla atvinnu, sérstaklega fyrir konur. Nú, þá er komiö að þeim bræörum Hallgrími, Gunnari; Valdóri og Jóni Jónssonum. Þeir voru allir' útgerðar- menn. Má geta þess að Valdór heitinn byggði íbúðarhús, sjóhús og bryggju fyrir sunnan fjörðinn og gerði út 9 tonna bát. Niðjar þessara manna erfðu þennan dugnað frá feðrum sinum og eru allir miklir dugnaðar- og afkasta- menn. Fyrstan vil ég þar nefna Bóas Jóns- son skipstjóra sem réöst í það, ásamt fleirum að kaupa 70 tonna bát, sem hlaut nafniö Snæfugl. Bóas var skipstjóri á Snæfugli í mörg ár og var mikill aflamaður. Þá er að geta um Jónas, bróðuf hans, skipstjóra, afla- sælan mann sem margir kannast við. Reyðfirðingar standa í mikilli þakkar- skuld við þessa tvo bræður. Nú þá er eftir að geta þess að Hallgrímur Jónasson framkvæmdastjóri og Hjalti Gunnarsson útgerðarmaður hafa nú keypt togara er heitir einnig Snæfugl, og reka jafnframt söltunarstöð. Skapar þetta mikla atvinnu í byggðar- laginu. Gísli Þórólfsson er einn þess- ara atorku- og dugnaðarmanna. Hann byggði hraöfrystihús, keypti nýjan 150 tonna bát ásamt bróður sínum og mági. En því miður brást heilsa Gísla og varð þess vegna að selja bátinn. Nú hefur Gísli byggt síldarsöltunarstöð, rekur hana og er með 30 manns í vinnu. Ekki verður skilið við þetta bréf ööruvísi en að minnast á verkalýðs- félagið. Kemur mér þá í hug nafni Björnsson blessaður sem var for- maður þess í mörg ár og það á erfiðleikaárum. Eg man það að hann átti oft í erfiðleikum við atvinnu- rekendur í samningum en með prúðmennsku og kurteisi tókst honum ævinlega að leysa þau mál farsællega, eins og allt er hann tók sér fyrir hendur. Eg leyfi mér að færa honum þakkir fyrir vel unnin störf. Eg held að ekki sé á neinn hallað þótt ég telji þessa menn, er ég hef hér nefnt, vera frumherja atvinnulífs míns heima- byggðarlags, Reyðarfjarðar. Það má i leiðinni minnast á þaö að Reyðfirðingar fengu rafmagn um haustiö 1930 (vatnsaflsstöð). Má fullyrða aö hvergi hafi verið eins ódýrt rafmagn á Austurlandi og þó víöar væri leitað. Þá vil ég geta þess að á stríðs- árunum var 6 þúsund manna setulið í kauptúni sem hafði 300 íbúa enda sást þá varla Islendingur. Að sjálfsögðu var mikil atvinna í sambandi við herliðið. þessarra manna væri sonur eða bróðir. Ekki er ég heldur að tala fyrir afbrotum. Mér finnast morð, líkams- meiðingar og kynferðisafbrot gagnvart börnum hinir hryllilegustu glæpir sem ég get hugsað mér. En þá komum við að því hvað þjóðfélagiö getur gert til þess að sú refsing, sem þessir menn fá, komi að tilætluðum notum. Það er að betrumbæta. Það mætti hugsa sér að dómarar hefðu um meira að velja en fangelsi og sektir. Eg held að refsing kæmi að meira gagni ef fangar yrðu gerðir enn á- byrgari gerða sinna, t.d. ef gerður væri út bátur og fangar væru látnir vinna um borð, leggja síðan upp aflann á Stokkseyri og á meöan landaö væri myndu þeir vera vaktaðir af lögreglu. Fangar væru iátnir borga hvem eyri aftur af því sem þeir hefðu stolið eða skemmt fyrir öðrum. Ég er viss um að fangar fengju þannig réttlátari og varanlegri refsingu, þetta gæti átt við um þá sem eru með stutta dóma. Svo er annaö mál að sum afbrot er ekki hægt að bæta með peningum. Það eru alvarleg afbrot og menn fá langa dóma fyrir. Þá ætti aukin menntun að geta stuðlað að því að fangar kæmu betri menn út að refsitíma loknum. Þeir heföu þá ef til vill meira sjálfstraust. Við megum ekki gleyma því að 90% af föngum eiga við fíkniefnavandamál að stríða og mjög margir hafa fengið litla skólagöngu. Þar í liggur sennilega á- stæðan fyrir ógæfu margra þeirra sem í fangelsum dvelja. Eg bið fólk að hugleiða nú hver meö sér þann mikla vanda, sem steðjar að íslensku þjóðfélagi, það er aukin neysla á fíkniefnum. Meö aukinni neyslu fer innbrotum f jölgandi, líkamsmeiðingar verða daglegt brauð. Þetta er sú reynsla, sem aörar þjóöir hafa, og það er ekkert sem segir að öðruvisi fari hér, því miður. Þetta er vandamál okkar allra. Stöndum vörð um íslenskt æskufólk. Andrea Þórðardóttir skrifar: Að undanförnu hefur veriö skrifað mikið í DV um fanga á Litla-Hrauni sem sækja skóla á Selfossi. Flestir, sem hafa skrifaö, lýsa yfir hneysklun og reiði vegna þess aö fangelsisyfir- völd skuli voga sér aö mennta saka- menn á meðal almennra borgara. Mér finnst þessi skrif vera grimm og ósann- gjöm og vil ég taka fram nokkur atriði er skýra það sjónarmið. Á Litla-Hrauni eru 4 menn sem sitja inni vegna þess að þeir hafa gerst brotlegir við lög landsins og upp um þá hefur komist. Brotin eru misstór, frá morðum niður í smáþjófnaði. Fang- arnir eru á ýmsum aldri og með mis- langa dóma sem fara eftir eöli brota. I blaðaskrifum eru þessir menn allir brennimerktir stórglæpamenn, það er ósanngjamt, þeir em eins misjafnir og við hin sem emm úti í hinu frjálsa samfélagi. 1 mínum huga em mun hættulegri menn úti í þjóðfélaginu heldur en margir þeirra sem á Litla-Hrauni sitja. Það þykir ömurlegt að brjótast inn og stela en sumum þykja skattsvik bera vott um klókindi. Eg tei að það gildi það sama um fanga og aöra menn, það er ekki sama að vera Jón og séra Jón þótt allir eigi að vera jafnir fyrir lögunum. Fangelsi á, samkvæmt lögum, að vera betrunarstofnun; á að bæta menn, þó mér sé til efs að fangelsi bæti nokkum mann. Nú þegar starfs- menn og stjórn fangelsisins em að reyna að framkvæma eins og lög mæla fyrir þá ætlar allt vitlaust að verða. Eg segi aöeins: þökk fyrir. Forstjóra og starfsfólki á Litla-Hrauni er vel treyst- andi til að meta hvað óhætt er að leyfa föngum og Litla-Hraun er sennilega eitt af fáum fangelsum í heiminum þar sem unnið er að mannrækt og gætu margar þjóðir þar lært af okkur. Núveitégaðeinhversegir: „Konan veit ekkert hvað hún er aö segja og myndi áreiöanlega ekki skrifa svona ef einhver af hennar nánustu hefði orðið fyrir óþægindum frá þessum mönnum”. Eitthvað má vera til í því en ég segir aftur á móti, þeir sem hafa skrifað á móti föngum þeir hefðu heidur ekki skrifaö svona ef einhver „Fangelsi á, samkvæmt lögum, að vera betrunarstofnun; á að bæta menn þó mér sé til efs að fangelsi bæti nokkurn mann,” segir Andrea Þórðardóttir. Enn um menntunarmál fanga á Litla-Hrauni: Fangelsi á að vera betrunarstof nun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.