Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Síða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982 17 Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hvatt til lögsóknar á hendur ATVR —■ vegna heilsutjóns og dauða af völdum tóbaks „Virðulegir aðilar balda áfram að selja tóbak eins og hverjar aðrar sjáiísagðar lifsnauðsynjar,” — seglr Jenni R. Uia- son, Borgamesi. Jenni vill láta lögsækja ÁTVR. Jenni R. Ólason, Borgamesi, skrifar: Föstudaginn 29. október síðast- liðinn flutti sjónvarpið þátt sem meðal annars fjallaöi um astbest- mengun og hræðilegar afleiöingar hennar. Ekki er ástæða til þess að rifja þær upp hér, en aftur á móti undirstrika hitt, að bótaréttur fórnarlambanna hefur verið rækilega staðfestur fyrir dómstólum. Sú niðurstaða er nú á góöri leið með að gera alla helstu astbestframleiöendur i heiminum gjaldþrota. Stjórnandi þáttarins, ögmundur Jónasson, endaöi útsendinguna með þvi að sýna á mjög áhrifaríkan hátt svipað eðli astbests- og tóbaks- mengunar. Þá rann upp fyrir mér ljós. Skynsamir og góðviljaðir menn hafa á liðnum árum sannað og leitast við aö kynna almenningi skaðsemi tóbaksreykinga. Ekki hafa menn þó haft erindi semerfiði. Astæöur þess eru aö minu mati einkum tvær. önnur er sú, að sam- kvæmt reynslu geta aðeins fáir þeirra sem ánetjast hafa tóbaki hætt notkun þess. Hin er að virðulegir aðilar halda áfram að selja tóbak eins og hverjar aðrar sjálfsagðar nauðsynjar. Með þessum hætti er augum og eyrum venjulegs fólks lokað fyrir öllum viðvörunum. Baráttan gegn tóbaksreykingum hefur því fram til þessa reynst árangurslítil. 1 því efni fer allt á sama veg og í baráttunni við verðbólguna. Á meöan menn fást aðeins við að milda afleiöingar, í staö þess að grafa fyrir rætur meina, næst enginn árangur fremur en í sandburðinum sem sagt er að tíðkast hafi á Kleppi. En er þá engin leið til úrbóta? Jú, svo sannarlega, og þar komum við aftur að hugvekju ögmundar Jónassonar. Til þess að ná árangri í baráttunni við heilsutjón og dauða af völdum tóbaks verður að beina spjótum að framleiðendum og seljendum eitursins. Það er grundvallarregla, að mönnum er skylt að bæta öðrum það tjón sem þeir kunna að valda þeim. V aldi einhver manni heilsu-eða liftjóni er honum því skylt aö bæta slíkt fébótum og gjaman aö svara til saka og taka út persónulega refsingu aö auki. Það getur því naumast farið milli mála að þeir sem stunda pyntingar og morð á fólki með framleiöslu og sölu á eitri séu ábyrgir gerða sinna að lögum. Slíkt orkar ekki tvímælis varðandi vímugjafa og eiturlyf eins og hass, heróín og fleira af því tagi sem ekki er dreift hér á vegum ríkisins. Það er því tiliaga mín, að einhverjir þeirra, sem hér á landi hafa orðið fyrir varanlegu heilsutjóni af völdum tóbaks- reykinga, lögsæki Afengis- og tóbaksverslun ríkisins og krefji hana um fébætur. Eg trúi ekki, að óreyndu, að islensk löggjöf tryggi ekki rétt einstaklingsins eins vel og bandarísk löggjöf tryggir rétt þarlendra manna gegn eituráhrifum astbestsmengunar. Þar fór skriðan af stað með einni kröfu og varð gersamlega óstöðvandi. Eins er ég viss umaðfærigagnvarttóbakinu. En einstaklingar þurfa uppörvun og stuðning, jafnvel til þess að sækja sjálfsagðasta rétt sinn þegar viö sterk öfl, eins og til dæmis ríkis- valdið, er að etja. Þið hjá Dag- blaðinu-Vísi lýsið því yfir nær dag- lega í auglýsingum, að áhrif blaðsins séu tvöföld og jafnvel ótrúleg. Ekki skal dregið í efa að svo sé. En slík áhrif þarf að virkja i þágu góðs mál- staðar enn betur en gert hefur verið. Því heiti ég á ykkur að taka þetta mál upp og beita nú áhrifunum við verulega stórbrotið verkefni. Þá myndu afleiðingamar ekki aðeins takmarkast við Island, heldur ná til heimsins alls. Otaldar milljónir manna myndu með þakklæti og virðingu minnast þeirra semhrundu skriðunniaf stað. Sovéskar sjónvarps- útsendingar: Skyldi þetta veröa látið við- gangast 6575—6218 hringdi: Við erum einir 40 vinnufélagarnir sem álítum aö Ríkisútvarpið hafi einkaleyfi á sjónvarpsrekstri hér. Það gekk nú ekkert smávegis á, hér á árunum, þegar hópur 60 manna krafðist þess að Keflavíkur- sjónvarpinu yrði lokað — og hafði sitt fram. Okkur finnst það því vera all maka- laust ef líða á útsendingar frá rúss- neska sjónvarpinu, sbr. fréttir blaöanna sl. föstudag, t.d. Þjóðviljans. Skyldiþetta verðalátiðviðgangast? | GETRAIMN næst drögum wé um Dregið 15. nóvember - SENDU INN SEÐIL - ÁSKRIFTAR- SÍMINN ER 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.