Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Blaðsíða 18
18
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982
HIOKI
FJÖLSVIÐAMÆLAR
BMW518
BMW518árg. 1982 tilsölu, ekinn 17.000km.
Litur gulsanseraður, litað gler og rafmagnsspeglar.
Skipti á ódýrari bíl koma til greina.
Upplýsingar í síma 22184 og 10520.
MV-BUÐIIM
Ármúla 26, sími 85052 kl. 2—6.
LAUST EMBÆTTS
SEM FORSETIÍSLANDS VEITIR
Prófessorsembætti í geislalæknisfræöi í læknadeild Háskóla Islands er laust til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 5. desember 1982.
Prófessorinn i geisialæknisfræöi (röntgenfræöi) veitir forstjórn röntgendeild Land-
spítalans, sbr. 38 gr. laga nr. 77/1979 um Háskóla Islands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau
er þeir hafa unnið, ritsmiöar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Meö um-
sókninni skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækjenda,
prentuöum og óprentuöum. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6,101 Reykjavik. Menntamálaráðuneytið, 3. nóvember 1982.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 56., 59. og 61. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Hegranes 29 Garðakaupstað, þingl. eigin Elsu Sigurvins-
dóttur, fer fram eftir kröfu Innheimtu ríkissjóðs, Gjaldheimtunnar í
Reykjavik og Veðdeildar Landsbanka tslands á eigninni sjálfri
föstudaginn 12. nóvember 1982 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Meiabraut 57 Seltjarnarnesi, þingl. eign
John W. Sewell og Þórodds Skaftasonar, fer fram á eigninni sjálfri
föstudaginn 12. nóvember 1982 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 80., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Garða-
stræti 17, þingl. eign Tónlistafélagsins, fer fram eftir kröfn Gjald-
heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 11. nóvember
1982, kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta i Tunguseli 5, þingl. eign Þorvalds Björnsson-
ar, fer fram eftir kröfu VeðdeUdar Landsbankans og Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 11. nóvember 1982, kl.
13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 81., 86. og 89. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Seljugerði
8, þingl. eign Ölafs S. Björnssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtudag 11. nóvember 1982, kl.
15.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 81., 86. og 89. tbi. Lögbirtingablaðs 1982 á hluta í
Þórsgötu 27, þingl. eign Valdísar Kristjónsdóttur, fer fram eftir kröfu
Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudag 11. nóvember
1982, kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
stefán
Júlíusson
Atök oc
EINSTAKL”
INCAR
einstaklingar
eftir Stefán Júlíusson
Komin er út ný skáldsaga eftir
Stefán Júlíusson. Nefnist hún Átök og
einstaklingar en undirtitUl er Skáld-
saga úr bænum. Fyrir tveimur árum
kom út eftir Stefán skáldsagan
Stríðandi öfl. I Átökum og einstakling-
um er sagt frá sömu persónum og í
Stríðandi öflum en þó er þetta sjálf-
stæðsaga.
Á bókarkápu segir um bókína:
„Þetta er í raun saga þriggja fjöl-
skyldna og um leiö saga tveggja eða
þriggja kynslóöa. Sögumaðurinn rif jar
upp atburöi frá kreppuárunum og
styrjaldarárunum en jafnframt lítur
hann tU átta á líðandi stund. Hann rek-
ur átök og árekstra í bænum sem
tengjast landsviðburðum, pólitískum
vendingum og ástandi í þjóðfélaginu.
Burðarás sögunnar er þó lífshlaup
aðalpersónanna, viðhorf þeirra tU
vandamála, ástir þeirra, gleði og sorg-
ir. Þótt sagan gerist að mestu leyti í
bænum víkur henni þó vítt og breitt í
einstökum atriðum tU Reykjavíkur,
Kaupmannahafnar og vestur um haf.”
Átök og einstaklingar er 280 blað-
síöur, unnin í Prentsmiðju Hafnar-
fjarðar. Utgefandi er Bókaútgáfan
Björk.
BóluHjálmar
Laust mál
ísafold
Bólu Hjálmar
Ritsafn
I gær, 2. nóv., 1982, sendi Bókaforlag
Isafoldar frá sér endurprentun á Rit-
safni Bólu-Hjálmars. Ritsafnið hefur
veriö ófáanlegt um alUangt skeið. •■
Verkiö er heildarútgáfa af Bólu-
Hjálmari í þremur bindum.
Fyrsta tUraunin til heildarútgáfu af
Bólu-Hjálmari var gerð á Akureyri
1879. Aö henni stóðu síra Amljótur
Olafsson og fleiri. En hún datt niður
með upphafinu. Svo kom hin snotra út-
gáfa Hannesar Hafsteins 1888 en hún
var ekki nema kver. Næst kom útgáfa
dr. Jóns Þorkelssonar í tveim bindum,
1915—19, og var merkileg. Þá tók viö
útgáfa Finns Sigmundssonar lands-
bókavarðar 1949. Hún var í fimm bind-
um og tók með óbundið mál Hjálmars.
Síðan kom út 1960 sjötta bindið, æviá-
grip Hjálmars og ýmsir þættir um
hann. Allt ritsafn Hjálmars var endur-
prentað og nokkuð aukiö 1965 og kom
út í þremur bindum: Ljóðmæli, rímur
og laust mál. Finnur Sigmundsson sá
um útgáfuna. Er það endurprentun
þessarar útgáfu sem forlagið sendir
frá sér nú. Ritsafnið (þrjár bækur
fallega bundnar) kostar 1.235,- kr.
Hélublóm
eftir Erlu
Hélublóm, ljóöabók eftir skáldkon-
unaErlu, erkomin í annarri útgáfu.
Það var hinn þekkti bókbindari og
bókasafnari Helgi Try ggvason sem gaf
bókina út í kreppunni 1937. Ekki mun
það hafa þótt búmannlegt fyrirtæki í
upphafi, en bókin náði vinsældum og
útbreiðslu.
Erla er skáldheiti. Höfundur Hélu-
blóma hét réttu nafni Guöfinna Þor-
steinsdóttir og fæddist að Stjögrastöð-
um í Skógum 26. júní 1891. Að henni
stóöu góðar bændaættir austanlands og
af Mýrum. Skáldgáfa gekk í arf í ætt
hennar og var hún m.a. skyld Páli og
Jóni Olafssonum.
Ævi og kjör Erlu hafa verið svipuð
og margra annarra húsmæðra á ís-
lenskum sveitaheimilum fyrr og síðar.
Hún ólst upp í Krossavík í Vopnafirði
frá átta ára aldri og fram til tvítugs.
Árið 1917 giftist hún Pétri Valdimar
Jóhannessyni frá Syörivík í Vopna-
firði. Þau byrjuðu búskap inni í heiði,
efnalaus, og eignuöust níu börn. Erla
lést árið 1972.
Hélublóm var fyrsta bók hennar og
hlaut lofsamlega dóma. Hún er nú
endurútgefin í 250 eintökum og fæst
aðeins í fornbókaversluninni Bókinni,
Skólavörðustíg 6. Hélublóm er 160 bls.,
offsetprentuð í Sólnaprent og kostar
kr. 250.
ÞIMUTIRS
WEBNER NIÉLSeN GUONI KOLBONSSON JðRGEN LÓVGBET O. FL.
Þrautir fyrir
börn
Bókaútgáfan Vaka bryddar enn upp á
nýjungum í bókaútgáfunni með bók-
inni ÞRAUTIR FYRJR BÖRN. Slíkar
þrautabækur hafa verið afar vinsælar' í
nágrannalöndunum en þar til núna
hafa þær verið næsta sjaldséöar á
íslenskum markaöi. Guðni Kolbeins-
son þýddi og staðfærði bókina.
Þrautir fyrir börn er þriðja bókin í
flokki, sem fengið hefur nafnið Tóm-
stundabækuraar. Áöur hafa komið út
bækurnar 444 gátur, sem varð meðal
metsölubókanna fyrir síðustu jól, og
Leikir fyrii' alla, sem kom nýlega á
markaöinn og hefur fengið góðar við-
tökur.
Þrautir fyrir böra hefur að geyma
hundraö skemmtileg, þroskandi og
myndræn viðfangsefni fyrir böm.
Sumar þrautirnar eru léttar en aðrar
svolítið þyngri. Við val á þrautunum
hefur veriö tekið tillit til þess að böm á
aldrinum frá 6—12 ára fái hér frí-
stundaverkefni við sitt hæfi. En bókin
er í raun fyrir böm á öllum aldri.
The Postwar
Poetry
of lceland
Ut er komið í Bandaríkjunum stórt
safn íslenskra ljóða, í enskri þýðingu
Sigurðar A. Magnússonar, undir heit-
inu The Postwar Poetry of Iceland.
Hefur það að geyma um 350 ljóð eftir
tæplega 30 skáld. Ljóðin eru ort eftir
lok seinni heimsstyrjaldar. Elstu
skáldin era Snorri Hjartarson og
Steinn Steinarr, þau yngstu Sigurður
Pálsson og Steinunn Sigurðardóttir.
Sigurður ritar alllangan inngang þar
sem hann rekur þróun íslenskrar
ljóðlistar frá Eddukvæðum til vorra
daga.
Bókin er gefin út af University of
Iowa Press í Bandaríkjunum og er sú
áttunda í flokki þýddra ljóðasafna sem
nefnist The Iowa Translations Series.
Þetta er yfirgripsmesta ljóðasafn
sem þýtt hefur verið úr norrænum
málum á ensku. Þaö fékk lofsamlegan
dóm i timaritinu Scandinavian
Review, þar sem sagt er að nákvæmni
og gaumgæfni þýðandans sé aödáunar-
verð og bókin sé ákaflega vel skrifuð,
þýdd ogunnin.
The Postwar Poetry of Iceland er til
sölu í hérlendum bókabúðum, og einnig
er hægt að panta hana frá Iceland
Review, pósthólf 93, Reykjavík.
565 GkEUR
BÖRGE JENSEN SiGURVEiG JÓNSDOrTlR JÖRGEN CLEVIN
* MAKA ^
555 nýjar og
glettnar gátur
Bókaútgáfan Vaka hefur sent frá sér
nýja gátubók. 555 GÁTUR er uppfull af
glettnum og skemmtilegum gátum,
eins konar framhald af 444 gátum, sem
sló svo rækilega í gegn fyrir síöustu jól.
Sigurveig Jónsdóttir þýddi og stað-
færöi 555 gátur eins og fyrri gátubók-
ina.
555 gátur er fjórða bókin í bóka-
flokknum Tómstundabækuraar. Hinar
heita Leikir fyrir aila, Þrautir fyrir
böra og 444 gátur, og svo er að sjá að
bókaflokkurinn hafi sannarlega hitt í
mark á íslenska markaðnum.
I upphafsútgáfu bókarinnar var val-
ið úr nær 30.000 gátum alls staöar aö úr
heiminum. Nú hefur íslenskum úrvals-
gátum verið bætt í safnið, svo að segja
má að úrvalið geti ekki verið meira.
Þá prýða frábærar teikningar í
hundraðatali bókina, einstaklega
líflegar og fullar af gamansemi.