Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1982, Qupperneq 20
20
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. NOVEMBER1982
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Derwall tók
Sehuster loks í sátt
Jupp Derwall, landsliðseinvaldur V-Þýskalands,
hefur tekið vandræðabamið Berad Schuster, sem
leikur með Barcelona, í sátt og valið hann í lands-
liðshóp sinn sem leikur gegn N-írlandi í Evrópu-
keppni landsliða í Belfast 17. nóvember. — Ég er
búinn að ræða við Schuster og er allur ágreiningur
úr sögunni, sagði Derwall þegar hann tilkynnti
landsliðshópinn sinn í Bonn í gærdag.
Það bendir því allt til aö Schuster muni leika sinn
fyrsta landsleik í átján mánuði í Belfast en hann var
settur út úr landsliðshópnum í mai 1981 þegar hann
neitaði að fara í samkvæmi meö öðrum leikmönnum
v-þýska liösins eftir landsleik gegn Brasilíu og gaf
síðan út ýmsar yfirlýsingar í dagblöð sem Derwall
varekki sáttur við.
Schuster, sem er 22 ára og leikur með Barcelona,
er talinn einn litríkasti knattspymumaöur V-Þjóð-
verja síðan Frans „keisari” Beckenbauer var og
hét. Derwall ætlar honum að taka stöðu Paul
Breitner á miðjunni í landsliði sínu og stjóma
þannig miðvallarspilinu.
Einn nýliði er í landsliðshópnum — það er marka-
skorarinn Rudi Völler hjá Bremen, sem er 22 ára.
Eins og við höfum sagt frá tilkynntu fjórir sterkir
leikmenn eftir HM að þeir væru hættir aö leika með
v-þýska landsliðinu. Það vora þeir Paul Breitner
hjá Bayem, Klaus Fischer hjá Köln og Hamborgar-
leikmennirnir Horst Hrubesch og Felix Magath.
Landsliðshópur Jupp Derwall er skipaður þessum
leikmönnum:
•Markverðir: Tony Schuhmacher, Köln og Eike
Immel, Dortmund.
• Varaarleikmenn: Hans-Peter Briegel, Kaisers-
lautem, Bernd Foerster og Karl-Heinz Foerster,
Stuttgart, Manfred Kaltz, Hamburger, UM Stielike,
Real Madrid og Gerd Strack, Köln.
•Miðvallarspilarar: Thomas Allofs, Kaisers-
lautem,, Stefan Engels, Köln, Lothar Matthaeus,
Mönchengladbaeh, Berad Schuster, Barcelona og
Norbert Meier, Bremen.
• Sóknarleikmenn: Klaus Allofs, Köln, Pierre
Littbarski, Köln, Juergen Milewski, Hamburger,
Karl-Heinz Rummenigge, Bayera og Rudi Völler,
Bremen.
Varaarleikmaðurinn Wolfgang Dremmler hjá
Bayern var ekki valinn í hópinn vegna þess að hann
var rekinn af leikvelli í leik í „Bundesligunni” á
dögunum. -SOS
Sammy Lee
ílandsliðshóp
Englands
Bobby Robson, landsliðseinvaldur Englands,
hefur tilkynnt landsliðshóp sinn sem leikur gegn
Grikklandi i Evrópukeppni landsliða í Salonika 17.
nóvember. Robson hefur kallað á þrjá unga leik-
menn tU liðs við sig — þá Sammy Lee, Liverpool,
Danny Thomas, Coventry, og Paul Goddard, West
Ham.
— „Sammy Lee hefur leikið mjög vel með Liver-
pool að undanförnu og þá var hann frábær með 21
árs landsUðinu gegn V-Þjóðverjum,” sagði Robson
um Lee, sem var fyrirliði enska landsliðsins skipað
leUanönnum undir 21 árs aldri, sem varð Evrópu-
meistari í Bremen á dögunum.
Danny Thomas, bakvörðurinn snjaUi hjá
Coventry, sem verður 21 árs á föstudaginn, hefur
einnig leikið vel að undanförau og er reiknað með að
hann taki stöðu'Viv Anderson sem hægri bakvörður,
en Anderson er meiddur.
Ray WUkins, fyrirliði enska landshðsins, er
meiddur og þá er Glenn Hoddle, miðvallarspUari
frá Tottenham, ekki búinn að ná sér fullkomlega
eftir meiðsli í hné og missir hann þvi af því að taka
við fyrirliöastöðu Wilkins. Reiknaö er meö að Brian
Robson hjá United verði fyrirliði.
Steve CoppeU, sem hef ur átt við meiðsli að stríða í
hné, er aftur kominn í landsliðshópinn. Robson
hefur ekki valið þrjá leikmenn sem léku gegn V-
Þjóðverjum á Wembley á dögunum — þá Russell
Osman hjá Ipswich, David Armstrong hjá
Southampton og CyriUe Regis hjá W.B.A., sem áttu
mjög slakan leik.
Þá eru þeir John Bames hjá Watford og Mark
Chamberlain hjá Stoke ekki í landsliðshópnum þar
sem þeir leika meö 21 árs Uöinu gegn Grikkjum í
Aþenu 16. nóvember.
Enski landsliðshópurinn er skipaður þessum leik-
mönnum:
• Markverðir: Ray Clemence, Tottenham, og
Peter Shilton, Southampton.
• Varaarieikmenn: PhU Neal, Liverpool, Danny
Thomas, Coventry, PhU Thompson, Liverpool,
Terry Butcher, Ipswich, Alvin Martin, West Ham,
og Kenny Sansom, Arsenal.
• MiðvaUarspilarar: Gary Mabbutt, Tottenham,
Sammy Lee, Liverpool, Bryan Robson, Man. Utd.,
Graham Rix, Arsenal, og Alan Devonshire, West
Ham.
• Sóknarmenn: Steve CoppeU, Man. Utd., Ricky
HiU, Luton, Paul Mariner, Ipswich, Tony Woodcock,
Arsenal, Tony Morley, Aston VUla, Paul Goddard,
West Ham, og Luther BUssett, Watford. .gos
Einn hinna ungu og upprennandi júdómanna leitar ráða hjá hinum eldri og reyndari í íþróttinni, þeim HaUdóri Guð-
björassyni og Níels Hermannssyni, á Reykjavíkurmótinu á sunnudaginn. Júdóbúningurinn er enn of stór fyrir
kappann en það skipti engu máli þegar út í bardagann á gólfinu var komið.
DV-mynd Friðþjófur.
Reykjavíkurmótið í júdó:
— Pétur
„Ég er búinn aö gefa ÍR
ingum ákveðið svar. Éf
ætla að leika með þeim
vetur,” sagði Pétur Guð
mundsson körfuknattleiks
maður í samtali við DV
morgun.
„Valsmenn gáfust upp í
þessu máli einhverra hhití
vegna og þá kom ekken
annað félag en ÍR til greim
hjá mér. Ég fékk gott tilboi
frá þeim á laugardagim
To|
71
Norðurlandamótið í borðtenni:
verður baldið í Reykjavík á næst:
Litlu peyjarnir settu
mikinn svip á keppnina
Hinir keppnisvönu kappar í júdóinu,
þeir HaUdór Guðbjörasson, Kári
Jakobsson og Bjarai Ásg. Friðriksson,
urðu Reykjavíkurmeistarar í júdó
þegar Reykjavikurmótið var haldið
um síðustu helgi í íþróttahúsi
Kennaraháskólans.
HaUdór sigraöi í léttasta flokknum
— undir 73 kg — og hafði þar mikla
yfirburði. Sigraði hann alla andstæð-
inga sína á „ippon”. Rúnar Guðjóns-
son, JFR, varð annar en síðan komu
þeir Magnús Jónsson, Á, og örn
Amarsson.Á.
Kári Jakobsson, JFR, sigraði í undir
83 kg flokknum. Var mikil keppni mUU
hans og Níelsar Hermannssonar, Á, og
vann Kári þá viðureign með minnsta
mun. Þriðji varð svo EgiU Sigurgeirs-
son,Á.
1 þyngsta flokknum — yfir 83 kg —
var Bjarni Ásg. Friðriksson, Ármanni,
í sérflokki og lagði aUa sína andstæð-
inga á „ippon”. Kristján Valdimars-
son, A, varð annar og Runólfur Gunn-
laugsson,Á, þriðji.
I mótinu var einnig keppt í drengja-
flokki og mátti þar sjá marga unga og
bráðefnUega júdómenn. Var mikil
keppni mUU þeirra og kappið eftir því.
Var gaman að sjá tU þeirra og hresstu
þeir mikið upp á mótið sem hinir eldri
virðast vera heldur að missa áhugann
á.
Urslit í þessum drengjaflokkum
urðu þessi:
10 tU llára.
Asgeir Thoroddsen, Á
Eyþór HUmarsson, JFR
Ingimundur Kárason, JFR
EUas Bjarnason, JFR
12 tU 13 ára (undir 45 kg)
Friðgeir Eyjólfsson, A
Helgi Júlíusson, A
Magnús Kristinsson, Á
Karl Sigurbjömsson, Á
12 tU 13 ára (yfir 45 kg)
Ástvaldur Sigurbergsson, Á
GuðmundurMagnússon, A
Jónas Jónasson.Á.
14 tU 16 ára:
Guðmundur Sævarsson, Á
Viðarötly, A
Stefán Hjörleifsson, JFR
GunnarGuðnason, JFR.
-klp
Millstil
Sunderland
— sem borgaði
Ipswich 50 þús. pund
fyrirhann
Chelsea situr nú eftir með sárt
ennið. Mick MUls, fyrirUði Ipswich,
hætti við að fara tfi Lundúnafélags-
ins um helgina. Hann skrifaði undir
samning við Sunderland, sem
borgaði Ipswich 50 þús. pund fyrir
þennan snjaUa bakvörð.
Það er greinUegt að MUls hefur
ekki vUjað fara tU Chelsea þar sem
óvissuástand ríkir hjá félaginu,
sem á við fjárhagslega erfiðleika
að stríða eins og svo mörg önnur
félög í Englandi. Chelsea er á hvín-
andi kúpunni og einnig á HuU við
erfiðleika að stríða.
Þess má geta að Sunderland
bauð MUls að koma til sín sl.
keppnistimabU sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri og lelkmaður, en þá
vUdi Ipswich ekki láta hann fara.
-SOS
Ánægjuleg frétt
Tyrirþig
sem hefur áhuga
aiþrottum
Fjögurra síöna blaöauki um íþróttir fylgir Þjóövilj-
anum á hverjum þriöjudegi. Mikiö af myndum og
áreiöanleg skrif um innlenda og erlenda íþrótta-
viöburði.
Aö sjálfsögöu gleður þessi nýjung alla þá sem
vilja fylgjast vel með því sem er aö gerast á
vettvangi íþróttanría. Og ekki er þaö lakara aö
Víðir Sigurösson hefur umsjón meö blaðaukan-
um.
Sjálfstætt félk les Þjóðví Ijann
NOBVIUINN
Áskriftarsimi 81333