Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1983, Side 40
t
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983.
Mál Einars
Bollasonarfyrir
Hæstarétt ígær:
Hárra
skaðabóta
krafist
Málflutningur í Máli Einars G.
Bollasonar gegn fjármálaráöherra
fyrir hönd ríkissjóös fyrir gæsluvarö-
hald að ósekju fór fram fyrir Hæsta-
rétti í gær. Sat Einar í gæsluvaröhaldi
að ósekju í alls 105 daga á árinu 1976,
ásamt þeim Viðari Olsen, Magnúsi
Leopoldssyni og Sigurbirni Eiríkssyni.
Mál Einars er viðamest af málum
þeirra fjórmenninga, en málflutningur
í máli Viðars, Magnúsar og Sigur-
b jöms f er fram í dag.
Fjórmenningarnir fara allir fram á
skaðabætur og í undirrétti vom þeim
dæmdar bætur að upphæö 150—190
þúsund krónur. Af hálfu Einars Bolla-
sonar er gerð krafa um tæplega 1,3
milljónirkróna í skaöabætur.
Gunnlaugur Claessen, sem flutti
málið fyrir hönd ríkissjóðs, gat þess
m.a. í málflutningi sínum að til varð-
halds hefði komiö af óviðráðanlegum
ástæðum. Slíkt varðhald væri þó að-
eins tímabundin röskun á högum
manna en ekki varanleg. Skaöabóta-
upphæöir væru ennfremur of háar og í
ósamræmi viö öll fordæmi sem fyrir
væru.
Ingvar Bjömsson, lögmaður Einars
Bollasonar, sagði hins vegar að hand-
taka Einars og varðhald hefði verið
með öUu óþörf og hefðu haft slæm áhrif
á hann og fjölskyldu hans. Fjárhags-
legt tjón Einars og aðra röskun í einka-
lífi mætti rekja beint tU gæsluvarð-
haldsins. Ingvar gat þess einnig aö
rannsóknaraðilum hefðu orðið á alvar-
leg mistök og þeir hefðu sent frá sér
viUandi fréttatUkynningar. Hann sagði
að bætur til skjólstæðings síns gætu
aldrei bætt aö fuUu það tjón er hann
varö fyrir, bæði andlega og líkamlega.
-PÁ
Tívolí í sumar
Fyrirtækið Kaupstefnan hefur
ákveðið aö flytja Tívolí til landsins í
sumar og reka þaö í júnímánuöi. Kaup-
stefnan hefur tvisvar áður rekið Tívolí
í tengslum við sýningar í Laugardal en
þetta mun í fyrsta skipti sem tilraun er
gerö til sjálfstæðs tívolírekstrar síöan
gamla tívolíiö í Vatnsmýrinni hætti
fyrir tæpum þrjátíu árum. Tívolí það
sem nú er fyrirhugað að flytja hingað
næsta sumar verður viðameira en þau
sem rekin hafa veriö í tengslum við
sýningarnar. Að sögn forráðamanna
Kaupstefnunnar gæti það jafnvel orðið
vísir að skemmtigarðsrekstri og hug-
myndin er að láta reyna á hvort,
rekstur sumartívolís geti gengið í
framtíðinni. -óm.
LOKI
Maður var illa fjarrí góðu
gamni á Aragötunni.
„Þaö er rétt. Þetta er út af aga- nema. haldið fögnuð í húsi við Aragötu, þar læknadeildarinnar fyrir sunnan
broti þar, eða hvað við eigum að „Gjöreyðingarpartí” var þaö orð sem þeir hafa haft lestraraðstöðu. I Landspítalann.
kalla það á hátíölegu máli,” sagði sem ónafngreindur viðmælandi þessu sama húsi hafa prófessorar Háskólarektor var spurður hvort
Guðmundur Magnússon háskóla- blaösins notaði um þaö mál sem há- deildarinnar einnig haft aöstöðu. fögnuður tannlæknanema heföi leitt
rektor, aðspurður um hvort rétt væri skólaráð telur ástæðu til að ræða sér- Tannlæknanemamir voru að fagna afséreignatjón:
að háskólaráö kæmi saman í dag til staklega. Nemar í tannlæknadeild brottflutningi frá Aragötunni í hin „Það er nú eitthvað, já. En ekki
að ræða mál sem snertir tannlækna- munu fyrir nokkrum dögum hafa nýju, glæsilegu húsakynni tann- stórvægilegt.” -KMU.
Verulegt tap á
innanlandsflugi
— Flugleiðir töpuðu um 20 mill jónum króna í fyrra
„Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
fyrir árið 1982 er tapið á innanlands-
fluginu um tuttugu milljónir króna,”
sagði Bjöm Theodórsson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs Flug-
leiöa, í samtali við DV.
„Til þess að jöfnuður hefði náðst
hefðu fargjöldin, að öllu öðru jöfnu,
þurft að vera fimmtán prósentum
hærri að meöaltali yfir allt árið,”
sagði Björn ennfremur. Hann sagði
að þeir Flugleiðamenn kenndu
stefnu stjórnvalda í verðlagsmálum
umtapið.
„Það er fróðlegt að benda á að sú
eftirgjöf gjalda, eða svokallaður
styrkur stjómvalda vegna Norður-
Atlantshafsflugsins er nokkurn veg-
inn sú sama upphæð og okkur hefur
raunvemlega verið skipaö af stjóm-
völdum að tapa á innanlandsfluginu.
Þannig að þaö er sama fjárhæö og
ríkið réttir okkur og tekur svo af okk-
ur í innanlandsfluginu með hinni
hendinni, ” sagði Björn Theodórsson.
„Það liggja enn engar tölur fyrir
en þó er ljóst að það er verulegt tap,”
sagði Agnar Friöriksson, fram-
kvæmdastjóri Amarflugs, er DV
spurði hann um rekstur innanlands-
flugs félagsins á síðasta ári.
Agnar sagði að f járhæðirnar væru
ekki stórar þar sem innanlandsflugið
væri lítill hluti af heildarrekstrinum.
Hann sagöi að félagið hefði sett fjóra
starfsmenn til aö fara yfir rekstur-
innáþessuflugi.
-KMU.
Fjölda-
handtökur
Fjöldahandtökur fóru fram í
Reykjavík af hálfu rannsóknarlög-
reglu ríkisins og lögreglunnar í
Reykjavík í gærkvöldi. Flestum hef-
ur verið sleppt að undanskildum
fimm manns, fjóram karlmönnum
og einni konu, sem sitja nú í haldi hjá
rannsóknarlögreglunni.
Rannsóknarlögregla ríkisins stað-
festi í morgun að handtökurnar
hefðu farið fram. Var upplýst aö þær
hefðu átt sér stað á nokkrum stööum
í bænum. Fimmmenningarnir sem
sitja í haldi era allir um tvítugt.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
era handtökurnar í tengslum við
þjófnaðarmál sem er til rannsóknar.
Ekki hefur þó fengist upplýst um
hvaða mál sé að ræða.
Fimmmenningamir hafa ekki ver-
ið úrskurðaðir í gæsluvarðhald en ef
svo verður mun það verða gert í dag.
Rannsóknarlögreglan vildi ekki
gefa frekari upplýsingar um þetta
mál þar sem það gæti skaðað rann-
sóknmálsins.
JGH
Hér er einn hinna handteknu
á leið inn i lögreglubil.
DV-mynd: S
Nítján ára
piltur á gjör-
gæsludeild
— eftir sprengingu
í Vélsmiðju Ólafsfjarðar
Nítján ára piltur hlaut talsverð
meiðsl þegar vatnstankur sprakk í Vél-
smiðju Olafsfjarðar á mánudagsmorg-
un. Hann var strax fluttur með flugi til
Reykjavíkur og liggur nú á gjör-
gæsludeild Borgarspítalans.
Að sögn lögreglunnar á Olafsfirði
varð slysið laust fyrir klukkan níu um
morguninn. Var verið að þrýstiprófa
vatnstank í vélsmiðjunni, þegar hann
skyndilega gaf sig. Þeyttist botn hans
harkalega í piltinn, sem var að vinna í
námunda við tankinn.
Pilturinn var fluttur á slysadeild
Borgarspítalans, þar sem hann gekkst
undir langa aðgerð, en hann er meðal
annars handleggs- og f ótbrotinn.
Þess má geta að svo öflug var
sprengingin að allar rúður í vélsmiðj-
unnibrotnuðu. -JGH