Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1983, Page 35
DV. MIÐVIKUDAGUR2. MARS1983.
35
Þetta er ekki hefð-
bundin uppfærsla
— segir Guðjón Pedersen um Fröken Júlíu Gránufjelagsins
„Þetta er ekki hefðbundin uppfærsla
á Fröken Júlíu” — sagði Guðjón
Pedersen sem fer með hlutverk Jean
í þessu þekkta Strindberg-leikriti. —
„Við notum texta höfundar
óbreyttan en höfum bætt við tveim
hlutverkum, þeim Per Olof (Pelle)
og Carl Johan. Þeir eru vonbiðlar
Júlíu.
Tilgangur okkar með þessari viðbót
er sá að reyna aö rjúfa einangraðan
heim leikritsins.
Viö höfum gert eins vel og við
höldum okkur geta ein. Síðan kemur
til kasta áhorfenda að leggja sitt af
mörkum. Leikhús getur aldrei verið
neitt endanlegt svo við munum halda
áfram aö vinna og þróa þessa út-
færslu.
Vinna okkar felst mikið í spuna.
Markmiðið er síðan að halda þessum
spuna áfram. Þannig er ekki Ijóst
hvort útkoman verður sú að
sýningarnar verða tiltölulega ólíkar.
Samt er þetta ekki nein sjálfsfróun
leikara. — Eða það vonum við ekki.
Frumsýningin átti aö vera viku
fyrr en raun varð á en þá gerðist það
óhapp að ég þurfti endilega að slasa
Guðjón Pedersen fer með
hlutverk Jean i Fröken Júliu.
DV-mynd S.
mig í löppinni. Nú er ég samt mikið
að hressast og er líklegur til alis.
Við í Gránufjelaginu höfumáhuga á
að finna nýjar leiðir að hefðbundnum
verkum, þannig aö þau höfði til
okkar í samtíðinni. Við viljum ekki
að leikrit sé einangraður heimur
uppi á sviði. Mikill hluti af okkar
leikhúsi er þjálfun og leiksmiðju-
vinna.
Að þessu verkefni loknu munum
við skoða tvö verk. Annað gerist á
milli-stríösárunum og hitt í
nútímanum.
Mig langar annars til þess að allir
leikarar á Islandi geri saman eina
sýningu. Það gæti aðeins orðið um
eina að ræða. Þetta yrði nefnilega
svo erfitt ískipulagningu.”
Svo mörg voru þau orð. Eftir
stendur sú spurning hvort Fröken
Júlía er enn Fröken Júlía Strind-
bergs aö tveim persónum
viðbættum. Er Hamlet enn Hamlet
Shakespeare’s ef ég bæti þar við,
segjum átta manns? — Eða yrði ég
að finna eitthvert samheiti yfir nafn
leikritsins og mína viðbót?
Hver einstaklingur verður að
svara slíkum spumingum fyrir sig.
Það verður ekki gert án þess að sjá
þessa uppfærslu Gránufjelagsins;
sjá hvaða hlutverki viöbæturnar
tvær gegna — og hvernig farið er
meöleikritið. -FG.
BAe-146á Reykjavíkurflugvellii fyrra. Tilraunaþotan fann þá enga isingu við Island.
British Aerospace 146 þotan komin aftur:
D V-mynd Bjarnleifur.
SMÁauglýsinga- og
áskriftasími
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Hverfisgötu 108, þingl. eign Sigurvalda
Hafstcinssonar, fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl.,
Veðdeildar Landsbankans, Sparisj. Rvfkur og nágr., Gjaldheimtunnar
í Reykjavík, Ama Guðjónssonar hrl., Iðnaðarbanka Islands, Bene-
dikts Sigurðssonar hdl., Utvegsbanka Islands og Hafsteins Sigurðsson-
ar hrl. á eigninni sjálfri f östudag 4. mars 1983 kl. 14.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Grettisgötu 62, þingl. eign Eiríks Oskarsson-
ar, fer fram eftir kröfu Lífeyrissj. verslunarmanna á eigninni sjálfri
föstudag 4. mars 1983 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Funahöföa 17, þingl. eign Stálvers h.f., fer fram eft-
ir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Iðnþróunarsjóðs á cigninni
sjálfri föstudag 4. mars 1983 kl. 10.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Laugavegi 33 A, og 33 B, þingl. eign Victors h.f., fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á cigninni sjálfri
föstudag 4. mars 1983 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Flugáhugamenn hérlendis muna
örugglega eftir British Aerospace 146
þotunni sem kom til Islands í apríl í
fyrra til að fljúga í isingarskilyrðum.
Ekki tókst þá aö finna slík skilyrði við
Island. En nú á að reyna aftur.
BAe—146 er nú aftur komin til
Islands. Ætlunin er að fljúga þotunni í
ísingu, láta klakann hlaðast á skrokk
hennar og sjá hvort og hvernig ís-
vamarbúnaðurinn reynist.
Flugvélartegund þessi er enn ekki
komin á markað. Fyrst þarf að gera
margvíslegar tilraunir með hana.
Aður en hún fer í farþegaflug þarf hún
aðstandast hinar; ólíkustu kröfur. ,
British Aerospace 146 þotan er
fjögurra hreyfla. Hún getur notast við
stuttar og lélegar flugbrautir og gæti
því hentað ágætlega hér á landi. Fram-
leiðendur segja hana mjög hagkvæma
í rekstri. Hún á að geta borið allt að 109
farþega.
-KMU.
Eftir fyrsta flugið var strax kafað inn i mótora vólarinnar til að sjá hver
árangur hefði orðið. DV-mynd Loftur.
finna ísingu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 74., 76. og 75 tbl. Lögbirtingablaðs 1979 á Aðalstræti
8, þingl. cign Þorkels Valdimarssonar, fer fram eftir kröfu Gjald-
hcimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudag 4. mars 1983 kl.
16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 103., 107. og 111. tölublaði Lögbirtingablaðs 1982 á
Hamarsgötu 25, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Jóns B. Kárasonar, fer fram
samkvæmt kröfu Áma Halldórssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðjudag-
inn 8. mars 1983 kl. 10 árdegis.
Sýslumaðurinn íSuður-Múlasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 103., 107. og 111. tölublaði Lögbirtiugablaðs 1982 á
Túngötu 16, Eskifirði, þingl. eign Sigurðar Jónssonar, fer fram sam-
kvæmt kröfu Landsbanka Islands og Utvegsbanka Islands á eigninni
sjálfri mánudaginn 7. mars 1983 kl. 14.
Bæjarfógetinn á Eskifirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 103., 107. og 111. tölublaði Lögbirtingarblaðs 1982 á
Dalbergi, Djúpavogi, talinni eign Hjartar Asgeirssonar, fer fram sam-
kvæmt kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri þriðjudaginn 8.
mars 1983 kl. 14.
Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu.