Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1983, Blaðsíða 37
DV. MIÐVIKUDAGUR2. MARS1983.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Linn Ullmann með „Bambínó" sór
við hlið i diskótekinu Zenon.
Passaðu
þig
— hann Bambínó minn
ergóðurboxari
Litli fuglinn okkar, hún Linn
Ullmann, sem nú þegar hefur getiö sér
gott orö, sem fyrirsæta, aðeins sextán
ára aö aldri, erkomin meölífvörö.
Hann er kallaöur „Bambínó” og er
fyrrverandi hnefaleikari og rugbyspil-
ari.
Linn sem oft sést á diskótekinu
Zenon í New York mætti fyrir stuttu
með „Bambínó” meö sér og hún fór
meira að segja út á gólf meö kappan-
um.
Við segjum nú ekki annað en aö Linn
ætti að vera örugg um sig meö boxar-
ann fy rrverandi sér viö hlið.
Hefur Robert Mitchum ofleikið?
Frekar ræni
ég nú banka
Þaö er stundum talað um aö menn
ofleiki og slíkt fellur vægast sagt illa í
geö áhorfendum.
En það má með sanni segja að hann
Robert Mitchum hafi ofleikiö og þá er
þaö meint í öörum skilningi.
Hann var nefnilega beöinn um að
leika í nýrri sjónvarpsauglýsingu en
slíkt mun Mitchum ekki hafa tekið sér
fyrir hendur til þessa.
„Aldrei, vinir mínir. Eruö þiö gengn-
ir af göflunum eða hvað? Frekar ræni
ég nú banka en taka slíkt aö mér,”
svaraði Robert með látum.
Mynd af Monu Lisu
Þaö er ekki á hver jum degi sem viö
í Sviðsljósinu förum út á götur og
tökum myndir. En þaö gerðist þó
síðastliðinn laugardag og árangur-
inn finnst okkur bara vera nokkuö
góöur. Aö minnsta kosti hafa menn
verið ánægöir meö sig siöan. I raun
ætti að segja aö menn séu í meira
lagi montnir.
Tildrög myndatökunnar voru þau
að undirrituöum gafst kostur á aö
sækja námskeiö í ljósmyndun sem
haldiö var fyrir okkur blaöamenn
DV hér á blaðinu í síöustu viku. Aö
sjálfsögðu gripu menn tækifærið og
um hádegisbilið síðastliöinn laugar-
dag rann stóra stundin upp. Fariö
var niður í bæ og teknar myndir.
Kominn með Canon á bringuna,
eins og bandarískur ferðamaöur, var
sprangað niöur á Lækjartorg og fólk,
sem beið þar eftir strætó, myndað í
bakogfyrir.
Ekki var búist við miklu enda
menn aldrei veriö gefnir fyrir aö
taka myndir. Almennt látiö duga aö
skoöa myndaalbúmin hjá fjöl-
skyldunni og vinum.
Þegar svo var farið aö framkalla
íilmuna og skoöa árangurinn ætlaöi
allt vitlaust aö veröa í framköllunar-
herberginu. Þaö ómögulega haföi
gerst. Sjálf Mona Lisa fest á filmu.
Og þaö af algjörum viðvaningi niöri
á Lækjartorgi. Slíkt gerist ekki á
hverjumdegi.
Finnst ykkur svo nokkuö skrítið þó
aö þaö sé svolitið loft í mönnum
þessa dagana?
-JGH
*! M
Mona Lisa stödd á Lœkjartrogi i hádeginu síðastliðinn laugardag.
Þegar myndin var tekin snjóaði litillega og þvi er vinkona okkar með
blautt hárið. Það kom j>ó ekki að sök við myndatökuna þvi hún fór
fram innandyra. Ekki þart tleiri oro um þesse mynd frekar en um mál-
verkið forðum, hún skýrir sig sjálf.
DV-mynd: JGH