Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Side 36
36
DV. MIÐVIKUDAGUR 23. MARS1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Skilin. Loni flutti út úr íbúð Burts eftir að upp úr sauð í samkvæmi þar sem Burt
kyssti og kjassaði mörg glæsikvendin.
Og þetta er sú sem skipti sköpum. Loni trylltist þegar Burt kyssti fyrrum vinkonu
sína, sveitasöngkonuna Tammy.
Ástin hjá
Burt og
Loni
kólnuð
Snurða hefur nú hlaupið á þráðinn á
milli þeirra Burt Reynolds og Loni
Anderson. Segja heimildir að Loni sé
flutt út úr íbúð Burts, feikilega reið, og
þau hafi hætt viö giftinguna sem stóð
fyrir dyrum hjá þeim.
Astæðan fyrir þessu öllu er sú að
Burt treysti sér ekki til að hætta að búa
einn. „Hann vill vera ógiftur áfram,”
segja kunningjar hans.
Burt var byrjaður aö efast um hvort
hann ætti að búa með Loni um aldur og
ævi. „Gamli góði Burt er einfaldlega
ekki „einnar konur maður,” segja þeir
semtil þekkja.
Þaö slitnaði upp úr sambandi þeirra
Burts og Loni er Burt hélt veislu þar
sem mörgum glæsikvendunum var
boöið. Þegar þær streymdu inn var
Burt ekkert nema fleðulætin og kyssti
þær með miklum stælum. Afbrýðisem-
in kom upp í Loni.
Þegar svo Burt tók að kjassa fyrr-
verandi vinkonu sína, sveitasöngkon-
una Tammy, sprakk blaðran hjá Loni.
Húnn gekk að Burt og sagði: ,,Ef þú
heldur þessu áfram Burt, þá er ég far-
in.
Burt byrjaöi að hlæja og gera lítið úr
þessu, enda hafði þetta vakið athygli
allra viðstaddra í veislunni. Loni tók
þetta óstinnt upp og rauk i burtu og
flutti síðan úr íbúð Burts.
Og nýjustu fréttir herma að vinkona
Burts þessa stundina sé stúlka að
nafni Donna Dixon. Burt haföi séð
hana í sjónvarpsþætti og gerði sér lítið
fyrir og hringdi í stúlkuna og bauð
henni í samkvæmi með sér. Stúlkan
þáði boðið og framhaldið er þekkt.
Sú nýjasta hjá Burt, Donna Dixon.
Hamborgarar
á þorrablóti
Frá Hans Sætran, fréttaritara DV í
Hamborg.
Félag Islendinga í Hamborg hélt sitt
árlega og vinsæla þorrablót fyrir
stuttu. Um fimmtíu manns komu og
tóku þátt í blótinu á þorra karlinum, en
athöfnin fór fram í gömlu óðalssetri í
nágrenni borgarinnar.
Gómfreistingar voru aðsendar frá
Islandi. En þegar hinn sérlegi mat-
reiðslumeistari Islendingafélagsins,
Jost Borack, hafði tekið til höndum við
tilreiðsluna, rann ljúfmetið léttilega.
Blótkarlar hugsuðu þó um fleira en
blótið. Hátíðin byrjaði nefnilega á því
að formaður félagsins, Sverrir
Schopka, bauð gestina velkomna.
Síöan stjómaði blótstýra athafn-
arinnar, Liselotte Oddsdóttir Singer,
f jölþættum gamanmálum.
Þá upplýsti Elín Jónsdóttir tiiurð og
framgang þorrablóta og Katja Singer
las þýska þýðingu íslensks þjóðkvæðis.
I minni kvenna staðfesti Gylfi Þór
Magnússon dásemd fljóöanna og minni
karla hélt Sigríður Jónsdóttir
Tankyar. Síðan voru sungin minni
karla og kvenna.
Maður er manns gaman stendur
einhvers staðar og því var auðvitað
margt að spjalla, en þó var fótmenntin
iðkuð af krafti fram eftir kvöldi og
þegar yfir lauk kom enn einu sinni í
ljós hve blótin eru gott gaman.
Allan veg og vanda af þorrablótinu að
þessu sinni áttu hjónakornin Stella
Gísladóttir og Ta-Lee Thomsen.
Sannarlega vel undirbúið blót hjá
þeim.
-JGH.