Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 21
20 DV. LAUGARDAGUR 4. JUNI1983. Þeir létu sig ekki muna um að gera rás i gegnum fjörukambinn og skapa þannig nýjan ós fyrir Skeiðará. Mörg sporin eiga gullleitarmenn á Skeiðar- ársandi. 1 hjörgiíiuirmenit ú Skeiðararsand! sdttír heim og farið i ökuferð á lláleííg, hilniim á þotudekkjununi fih m í 11 [i ll-M n 1 1 Fyrir neöan bæinn Skaftafell í Aust- ur-Skaftafellssýslu eru búðir manna sem hafa verið nefndir gullleitarmenn- imir eða guilgrafaramir. Nú loks hafa þeir fast aðsetur enda kominn árangur af 20 ára striti þeirra við að finna Indía- farið Het Wapen van Amsterdam sem strandaðiá Skeiðarársandi 19. septem- ber 1667. Skipið var þá, ásamt 8 öörum skipum Austur-Indíafélagsins hol- lenska, á leiðinni heim til Hollands. Het Wapen var stórt vopnað kaupfar, 45—47 metrar á lengd og 14 metrar á breidd. Á því vom 35—40 fallbyssur og 200—250 manna áhöfn. Ekki er vitað um allan farm skipsins, í því var þó mikið af vefnaðarvöm og kryddi og sagnir hafa verið um gull. Af því hefur verið talað um „gullskipið”. Áriö 1960 fékk Bergur Lárusson leyfi til að leita að skipinu og hagnýta verð- mæti þess gegn 12 prósenta greiðslu af söluandvirði verðmæta, að frádregn- um flutningskostnaði til sölustaðar. Einnig vora gerðir samningar við landeigendur um að þeir fengju 10 prósent af hugsanlegum hagnaði. Þessi leit að skipinu hefur svo staðið i 22 ár og hópur manna haft það sem hálfgert tómstundagaman að skreppa á sandinn vor og haust og freista þess að finna gullskipiö. Til þess hefur eink- um verið beitt bergmálsmælingum. Skipið er að sjálfsögöu löngu horfið í sandinn, sagnir eru til um að 100 ámm eftir strandið hafi ekkert sést af því. Löng og eljusöm barátta gullleitar- manna bar árangur 28. júlí 1982 þegar Het Wapen fannst um 180 metra frá há- kambinum i Ðæðarmálinu skammt austan ósa Skeiðarár. Þegar var farið að skipuleggja björgun og í byrjun maí vom „björgunarmenn” komnir austur með tæki sín og tól. Þeir ætla að ná „guliskipinu” upp hvað sem það kost- ar. Gullna hliðið Við blaðamenn DV komum austur í Skaftafell að morgni 30. maí. Daginn áður höfðu Grímsvötn sent úr sér gos- spýj u upp í loftið og búist var við því að Skeiöará myndi svara með einu af sinu alkunnu hlaupum. Engin merki sáust um slíkt en gulldrengimir höfðu slakað á, þrátt fyrir einurðina. Eftir öll þessi ár hafa þeir safnað sér upplýsingum um eðli sandanna og áhrif Skeiðarár. Það var ekki um annað að gera en bíða og sjá hver framvindan yrði. Ekkert var því unnið á sjálfum strandstaðnum en mennirnir voru í búðunum og dytt- uðu að tækjum, löguðu til og snyrtu. Með stuttum fyrirvara var hægt að flýja með hús, krana, vörubíla, ýtur og hefil. Samkvæmt áætlun átti aö flytja efnií stálþil í kringum skipiö austur í vikunni. Því hafði verið frestað um óákveðinn tíma. Afleggjarinn niður að búðum björg- unarmanna er rétt fyrir austan Skeið- arárbrúna. Þurfti að leggja um 11 kíló- metra langan veg niður á sandinn og vom þar reistar búðir og bækistöð. Þegar nær dregur sjónum verðursand- urinn blautari og því ekki sérlega greiðfær, auk þess sem sandfok getur orðið þar svo mikið, að ekki er hægt að haldast viö. Frá búðunum niður að sjó era um 12 kílómetrar. Fljótlega er komið að girðingu og á henni er hlið sem spaugsamir menn hafa málað á orðin „gullna hliöið”. Seinna í sumar verður reist veglegra hlið og öll umferð óviðkomandi bönn- uð. Augljóslega verða björgunarmenn WíOfW', að hafa starfsfriö og menn verða líka að hafa í huga að þarna niðureftir er ekkert skotfæri fyrir hvaða farartæki sem er. Dekk undan B-52 Kristinn Guðbrandsson stjórnar björgunHet Wapen. Hann hefur verið í leitinni í 17 ár ög þekkir sandinn vel. Hann bauð okkur upp á kaffi í róleg- heitum. Ekki var að sjá að mikill ugg- ur væri í neinum þarna vegna Skeiðar- árhlaups. Færi svo illa yrði bara pakkað saman og beðið næsta sumars. Uppgjöf er ekki til í hugum gulldrengj- anna en þolinmæði og þrautseigja í ómældu. Kristinn var að leggja af stað í skoðunarferð aö Skeiðarárósum og við fengum að fljóta með í furðujeppanum Hálegg. Sá er heimatilbúinn og 10 ára gamall, sérsmíðaður fyrir baráttuna viö sandinn. Dekkin em undan B-52 sprengiþotu, stærð 1700x16. Þrýsting- urinn í þeim er aðeins 4 pund og Krist- inn sagði að engu skipti þó keyrt væri yfir naglaspýtu enda dekkin rækilega vírbundin. „BíUinn er ekkert þýður á venjulegum vegi,” sagði hann ,,en á söndunum er hann það og kemst það sem maöur ætlar. Hann hefur staöið sig eindæma vel hér.” Og litlu breytir þó Háleggur hafi ekki fast undir hjól- um, í vatni er gripið tU skrúfu og stýris sem em undirhonum að aftan. Strandstaðurinn Eftir skamma ökuferð komum við á strandstaðinn. Kristinn hafði lýst því fyrir okkur að sandurinn væri nú þurr- ari en hann myndi eftir áður. Megin- ástæðan væri sú að þeir væru búnir að ræsa mikið fram. Ekki ættu því að verða teljandi vandræði með þunga- flutninga á strandstaöinn. Reka þarf stálþil, 20 metra niöur í sandinn allt umhverfis skipiö.. . Upp úr kvínni er síðan ætlunin að dæla sandinum, eftir- leikurinn liggur hins vegar ekki ljós f yrir ennþá. Búið er aö mæla fyrir útlínum skips- ins og reka niður stikur þar. Það var undarleg tilfinning aö ganga þarna um og hugsa til þess að um 11 metmm neð- ar skuli vera þetta margfræga skip. Kristinn sagði að árið 1981 heföu þeir fyrst orðið varir við þetta. Ekki var hægt að fá staðfestingu þá vegna þess að komið var fram á haust. Staðfest- ingin f ékkst í ágúst í fyrra. Háleggur öslar Við héldum áfram og komum að nýj- um ósi Skeiðarár. Björgunarmenn höfðu ekki látið sig muna um aö grafa í gegnum fjörukambinn spölkorn frá strandstaðnum og veita vatni frá vinnusvæðinu. Háleggur öslaði þama yfir og hafði lítiö fyrir. Aðalósar Skeið- arár eru nokkru vestar og þangað var ferðinni heitiö. Nú fann maður vel að bíllinn á bara heima á söndum. Hann leið mjúklega áfram en þó dró ein- staka sinnum niður í honum í sand- bleytu. Það stóð alltaf stutt. Kristinn hafði sagt okkur aö viö skyldum búast við aö sjá fleiri seli en við hefðum áður séö á einum staö. Reyndust það orð að sönnu. Osinn var bókstaflega iðandi og selirnir tóku mikinn kipp þegar bíllinn nálgaðist. Litlir kópar fengu far á baki mæðra sinna en Skeiöará hafði ekki tekið breytingum. Osinn hafði ekki breyst og engin merki sáust um hlaup. Voru hissa á auðninni Við ókum sömu leið til baka í búðim- ar. Háleggur stríddi ökumanni sínum með því aö hætta að ganga þegar skammt var ófarið. Kristinn var fljót- ur að sjá við honum, þetta var aðeins loft í olíunni. Það er nauðsynlegt að geta bjargaö sér út úr smáum vanda- málum og stórum úti í svartri sand- auöninni. Þeir urðu hissa að sjá þessa eyðimörk, hollensku blaðamennirnir sem komu um daginn. Komið var fram undir hádegi þegar við komum í búöirnar. Heimamenn voru aö fara í mat og gestunum var boðið með. Við snæddum öndvegis fisk, sem Anna María ráöskona haföi soðiö, og kvöddum saddir og ánægðir með • dvölina hjá þessum bjartsýnu köppum. Björgunarmennimir fengu sér „kríu”, eins og þeir kalla siðdegisblundinn. Það var rólegt þennan daginn en ef Skeiðará verður til friös er átakasum- ar framundan. Enginn bjargar gull- skipimeðhendurívösum. JBH Kristinn Guðbrandsson er einn afþessum bjartsýnismönnum sem fylgja hugsjónum sinum eftirþar tilsig■ ur vinnst. Hann erþarna við furðubíUnn Hálegg og undir stikunum hægra megin á myndinni er gullskipið. DV. LAUGARDAGUR 4. JUNI1983 Anna Maria Ragnarsdóttir i Skaftafelli er ráðskona i búðum björgunar- manna. Bergur Lárusson telst frumkvöðull þessa mikla gullævintýris. Við fætur hans er efsti hluti rörs sem gengur 6 metra niður isandinn. Með dælingu fá leitarmenn þar upp fyrsta flokks drykkjarvatn. Snætt i vistlegri matstofu. Lífsþægindi i hefðbundnum skilningi eru ekki mörg þarna á svörtum sandinum. Menn geta þó horft á sjónvarp, gefist timi frá störfum. Vinnudagurinn erlangur. H ?^§§j|íi JÉI 'W i II ;j|l| Blaðamaður DV opnar hið gullna hlið sandsins. Enginn var þar Pétur, að- eins jarðýta sem notuð var til að ryðja veg niður að Het Wapen Van Amsterdam. Dv-myndir Einar Ólason. n 21 Q LAUGARDAG og SUNmJDAG KL. 2-5 Sýndir verða: DATSIHST CHERRY — sá ódýrasti miðað við útlit og gæði. DATSUN StJNlSÍY — Fallegur og rennilegur DATSUN CABSTAR — vörubifreið OG TRABANT. Þeir þurfa engin slagorð Komdu baraogskoðaðu þá Verið velkomin og auðvitað verður heitt á könnunni INGVAR HELGASON HF. Sími 33560 SÝNINGARSALURINN / RAUÐAGERÐI Viðsendum íslenskum Flutningur er okkar fag EIMSKIP Sírni 27100 fi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.