Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 32
I t ► ' I I I 1 I I i I. Það verð ég að segja alveg eins og er að þungarokk — heavy metal — höföar ekki til tónlistarsmekks míns. Sumir hafa þó merkilega gaman af slíkri músík. Og þeir eru fleiri en margan grunar. Að því tel ég mig hafa komist. Helgarpoppið hefur ekki gert „bárujámsrokkurum” góð. skil að undanförnu og liggja til þess ýmsar ástæður sem óþarfi er að tí- unda. Nú er þó ætlunin að bregða út af vananum og gera þeirri þunga- rokkshljómsveit skil sem hvað al- mennastri hylli hefur náð, að minnsta kosti í Bretlandi og hér á Is- landi. Það er að segja af þeim „heví- metalböndum” sem enn eru starf- andi. Þeir kalla sig Iron Maiden og nefna sig eftir pyntingatæki sem vin- sælt var á hinum myrku miðöldum. Nýverið kom út fjórða breiöskífa Iron Maiden og nefnist hún Piece Of Mind. Hið íhaldsama popptímarit, Melody Maker, sem sjaldan hefur hlaðið lofi á þungarokkara brýtur nú odd af oflæti sínu og gefur plötunni háa einkunn. Þannig að Jámfrúnum er ekki alls varnað i samskiptum sín- um við íhaldssamari poppöflin. n. I upphafi var Steve Harris og hjá honum var bassinn. Drengurinn sá ætlaði sér lengi vel að verða atvinnu- knattspymumaður en hann féll á miðri leið fyrir þungarokkinu. Iron Maiden var upphaflega stofnuð á miðju ári 1976 og næstu þrjú árin þeyttust drengirnir milli klúbba og pöbba í East End hverfinu í London og léku rokkið sitt þunga. Á þessum ámm átti þungarokkið erfitt upp- dráttar. Þungarokkið lá í glatkist- unni. Margir bára járnsrokkarar gáf- ust upp, klipptu hár sitt, fengu sér nælur í eyru og nef og gengu í lið með pönkurum. Slíkt kom aldrei til greina hjá Harris og gítarleikaran- um unga, Dave Murray. Þeir voru hinir einu í Iron Maiden sem héldu út ailan tímann. En þótt blöðin gerðu þungarokkinu lítil skii átti það marga æsta aðdáendur — svokaliaða „neðanjarðarfylgjendur”. Haustið 1979 áttaði pressan sig loks á hlutun- um og frasinn „New Wave of British Heavy Metal” komst á allra varir. m. I nóvember 1979 gaf Iron Maiden út sína fýrstu smáskífu upp á eigin reikning. Innihaldiö var þrjú lög sem notið höfðu niikilla vinsælda í klúbbi nokkrum kenndum viö Sound- house og vegna sífelldra fyrirspuma voru demoupptökur settar á plast og gefnar út. „The Soundhouse Tapes” nefnist platan og er ófáanleg. Hún var gefin út í 5000 eintökum sem seld- ust i?)p þrátt fyrir litla sem enga aug- lýsingu. Plötufyrirtækjunum barst þetta til eyrna og í desember 1979 skrifaði Iron Maiden undir samning viðEMI.Á þessum tíma var liðsskip- an þannig: Harris, Murray, Pau| Di’Anno, söngur, og Doug Samson, trommari. Stuttu síðar varð Samson að halda sína leið af heilsufarsástæð- um en við kjuðunum tók Clive Burr. IV. I ársbyrjun 1980 kom fyrsta breið- skífan út — Iron Maiden — og skaust upp í 4. sæti á vinsældalistanum breska. Á eftir fylgdi hljómleikaferö um Bretlandseyjar í fylgd með Jud- as Priest og með Kiss um Evrópu. I október bættist gítarleikarinn Adrian Smith í hópinn í stað Dennis Stratton, sem leikið haföi með á fyrstu breiöskífunni. Næsta ár kom önnur breiðskífan — Killers — og nú hafði frægðin borist um allan heim. I hönd fór fyrsti kon- serttúrinn til annarra heimsálfa — The Kilier World Tour —; Bretland, Evrópa, Japan, Bandaríkin og Kan- ada. Iron Maiden heimsótti 15 lönd á átta mánuöum. Söngvarinn, Di’Anno, þoldi ekki álagiö og hætti. Viö stööu hans tók söngvari hljóm- sveitarinnar Samson, vöðvafjallið Bruce Dickinson. Að loknum tveggja vikna æfingum var haldið tilltalíu. V. Þriðja breiðskífan — The Number Of The Beast — kom út 22. mars 1981 og í kjölfar þess var haldið í aðra heimsreisu — The Beast On The Road —. A tíu mánuðum hélt Iron Maiden 179 hljómleika í 4 heimsálf- um og 16 löndum, lék fyrir yfir mill- jón áheyrendur og lagði að baki 50.000 kílómetra í flugi og 90.000 kíló- metra á landi. Ferðin hófst í Bret- landi 25. febrúar, um svipað leyti og smáskífan Run To The Hills skaust í 7. sætiá lista. Þegarbreiðskífankom út fór hún beint í efsta sæti vinsælda- listans. Hún gerði það einnig ágætt vestanhafs. Komst hæst í 33. sæti á Billboard listanum og var alls 37 vik- ur á listum. Eftir að hafa leikið á 20 konsertum í Bretlandi og 35 í Evrópu hélt Iron Maiden til Bandaríkjanna og Kan- ada. Þar voru haldnir 103 hljómleik- ar á tæpum sex mánuðum en í ágúst skruppu drengimir heim og léku á Reading rokkhátíðinni í einn dag. Ekki byrjaði ferðin vestra vel því á fyrstu hljómleikunum tognaöi Dick- inson illa á hálsi sökum óláta á sviði og næstu sex vikur varð hann að ganga með „stífkraga” um hálsinn. Hann (stífkraginn) var þó fjarlægð- ur á hljómleikum. I Bandaríkjunum vora Iron Maiden í fyrstu sérstakir gestir Rainbow, síöar Scorpions og léku auk þess með Foreigner og Lov- erboy. Að endingu slógust þeir í för með Judas Priest. Nákvæmlega þremur áram eftir aö Iron Maiden hafði fyrst boðið útsendurum hljóm- plötufyrirtækja á kynningarkonsert í Swan klúbbnum í London fylltu þeir hið víðfræga Madison Square Gard- en í New York, en þar voru þeir sér- stakir gestir Judas Priest. Frá Bandaríkjunum og Kanada lá leiðin til Ástralíu og Japan. Þegar heim kom, í lok síðasta árs, fékk Iron Maiden fjöldann allan af viðurkenn- ingum fyrir NOTB, sem þá hafði selst í 2 milljónum eintaka. VI. Er hér var komið sögu hafði Clive Burr, trommari, fengið nóg og yfir- gaf hann hljómsveitina. Nýi tromm- arinn hét Nicko McBrain, er áður hafði barið húðir með einni nafntog- uöustu rokkhljómsveit Frakka — Trast —. Nú tóku við plötuupptökur á fjóröu breiðskífunni í Nassau á Ba- hamaeyjum. Upptökum var lokið í mars og í apríl kom út smáskífan Flight Of Icaras. Og enn var haldið í heimsreisu — World Piece Tour — en platan nýja heitir Piece Of Mind sem áður segir. Hún kom út um miðjan síðasta mánuð. Þegar þetta er skrif- að er Iron Maiden að ljúka hljóm- leikaferð um Bretlandseyjar og er væntanlega á leiöinni út í hinn stóra heimennáný. -TT. > -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.