Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 28
28 DV. LAUGARDAGUR 4. JUNt 1983. Afmælismót Bridgef élags Stvkkishélms: Enn sigrar Jón! Jón Baldursson frá Bridgefélagi Reyk javíkur geröi þaö ekki endasleppt um sl. helgi þegar hann, ásamt Siguröi Sverrissyni, vann þriðja stóra tví- menningsmótið á stuttum tíma. Aö þessu sinni varö afmælismót Bridgefélags Stykkishólms fyrir val- inu en þaö var haldið í samvinnu viö Ferðaskrifstofuna Urval og Hótel Stykkishólm. Jón og Sigurður fengu 230 stig yfir meöalskor á mótinu og var þaö helm- ingi meira en næsta par sem voru Al- freö Kristjánsson og Skúli Ketilsson frá Bridgefélagi Akraness. I þriöja sæti voru Ellert Kristinsson og Krist- inn Friöriksson frá Stykkishólmi. Fyrstu verölaun voru 15.000 króna ferðaúttekt frá Úrvali, önnur verðlaun 8.000 krónur og þriöju verðlaun 5.000 krónur. Hér er toppur, sem Jón krækti sér í, frekar fyrirhafnarlítiö. Suöur gef ur/aUir utan hættu. Nobour + D852 C 1072 O G874 + A6 Vl.STUH Aostúr * KG A 1043 <? DG86 :> ÁK93 O 1052 O AD6 + D932 SUÍHJH + Á976 64 O K93 + KG87 + 1054 Bridge Stefán Gudjohns Þar sem Sigurður og Jón sátu n-s, gengusagnirá þessa leið: Suður Vestur Noröur Austur pass pass pass 1T pass lGx) pass pass dobl pass 2Lxx) pass pass dobl redobl pass 2S pass pass dobl pass pass pass x) Tvímenningstaktik þ.e. aö fara fram hjá hjartalitnum. xx) ViU fá dobl, til þess aö geta bent á hina litina meö redobli. Vestur, kunnur lögfræðingur úr Reykjavík, uggöi ekki aö sér og dobl- aöi tvö laufin eftir pöntun, meöan aust- ur, efnUegur tannlæknanemi, vildi ekki láta sitt eftir Uggja, þegar tveir spaöarkomutU hans. Þaö var barnaleikur fyrir Jón að vinna tvo spaöa og fyrir þaö fengust 470. DobUö reynist hins vegar ekki hafa neina þýöingu, því að 110 hefði orðið sami toppurinn. Þaö sem skipti sköpum var faldi hjartaliturinn, því aö a-v geta barist upp í þrjú hjörtu meö góöum árangri. Sveitakeppni Bridge- sambands Austurlands Um hvítasunnuhelgina fór fram ár- leg sveitakeppni Bridgesambands Austurlands. Bridgefélag Fljótsdals- héraös sá um mótiö og var þaö í Vala- skjálf á Egilsstöðum. Sautján sveitir frá sex félögum komu til keppni en eitt félag kom ekki þátttöku viö. Einmenningsmeistari varð Páll Sigurðsson, B.F., 3730 stig. 2. Árni Stefánsson, B.H., 3591 stig. 3. Jóhann Sveinsson, B.H., 3392 stig. Bridgedeild Skagfirðinga Firmakeppni: 1. Malarvinnslan sf., Egilsstööum, 1978 stig. Spilari: Páll Sigurösson. 2. Sýslusjóöur A-Skaft., Höfn, 1832 stig. Spilari: ÁrniStefánsson. 3. Snekkjan, Stöövarfirði, 1823 stig. Spilari: Jónas Ölafsson. 4. Búnaöarbankinn, Egilsstöðum, 1803 stig. Spilari: Sigfús Gunnlaugs- son. 5. -6. Hafnarhreppur, Höfn, 1789 stig. Spilari: Jón G. Gunnarsson. 5.-6. S.I.B.S., Borgarfiröi, 1789 stig. Spilari: Sveinn Bjarnason. Keppnin um Austurlandsmeistarann í sveitakeppni var mjög hörö og úrslit réðust ekki fyrr en í síðasta spili en þá voru tvær sveitir jafnar aö stigum. Þeirri sveitinni sem sigur bar af hinni í leiknum þeirra á milli var dæmdur sig- urinn. 1. Þorbjörn Bergsteinsson, B.F., 44 stig. 2. Sigurþór Sigurösson, B.F., 44 stig. 3. Aöalsteinn Jónsson, B.R.E., 43 stig. Auk Þorbjarnar í sigursveitinn eru Öli Metúsalemsson, Þórarinn Hall- grímsson og Steinþór Magnússon. Keppnisstjóri var Björn Jónsson, Reyöarfiröi. Þriöjudaginn 31. maí var spilaður tvímenningur í tveim 10 para riðlum. Efst urðu eftirtalin pör: A-riðill 1. Baidur Ásgeirss.-Magnús HaUdórss. 129' 2. Agnar Ívarss.-Guðm. Kr. Sigurðss. 124, 3. BirgirSigurðss.-HjörturBjarnas. 122: 4. Sigmar Jónss.-Vilhj. Einarss. 113: I B-riðiil 1. Guðrún Hinriksd.-Jón Andréss. 129 2. Högni Torias.-Steingr. Jónass. 126 3. Bjami Péturss.-Ragnar Björass. 121 4. Björa Hermannss.-Lárus Hermannss. 113 Næsta þriöjudag verður enn spilaður tvímenningur og er þátttaka öllum heimil. Spilað er í Drangey, Síðumúla 35, og hefstkeppnikl. 19.30stundvíslega. Björn Pá/sson afhendir sigurvegurunum verðiaun. Frá vinstri: Þorbjörn Bergsteinsson, Steinþór Magnússon, Þórarinn Hallgrimsson og Óli Metúsalemsson. Krlstiim Bergþérsson Hinn 29. maí sl. lést Kristinn Berg- þórsson stórkaupmaður sem var einn af fremstu bridgemeisturum landsins um langt árabil. Bói, eins og hann var kallaður í vinahópi, spilaði i hinni frægu , Jfarðarsveit” sem réö lögum og lofum í bridgekeppnum hérlendis á fimmta áratugnum. Á þeim árum spilaði hann oft í landsliði Islands og var m.a. í sveit Islands sem náði þriöja sæti á Evrópumeistaramótinu í Brighton áriö 1950. Hársbreidd munaði þá að Island eignaöist sína fjTstu Evrópumeistara því aö þegar ein umferð var eftir var Island eitt af þremur löndum sem átti möguleika á sigri. Gaman var aö heyra frásögn Bóa af þessum spennandi augnablikum því aö frásagnarlistina hlaut hann í vöggugjöf. Bói var flestum mönnum fljótari aö spila og hafði lag á því að keyra upp hraðann í spilamennskunm. Hann og makker hans um árabil, Lárus Karlsson, voru eitt besta par lands- ins á þessum árum, eldsnöggir aö segja á spilin, fljótir aö sjá mögu- leikana í úrspilinu og framkvæma sínar áætlanir fljótt og vel. Að sama skapi var Bóa oft tíörætt um „sleöana” en svo nefndi hann þá spilara sem seinir voru í sögnum og spilamennsku. Viö Bói vorum oftast andstæöingar í keppni, utan einu sinni þegar við spiluöum saman í sveit. Það var áriö 1970 og vann Bói þá sinn sjötta Is- landsmeistaratitil. Mun það hafa verið síðasta landsmótið sem hann tók þátt í. Bói haföi yndi af rúbertubridge og stóöust fáir honum snúning á því sviði. Oft vorum viö makkerar gegnum árin og minnist ég þess með söknuöi nú þegar góður vinur er allur. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég eiginkonu Kristins og tveimur bömumhans. Tigran Petrosjan — 20 ár fráþví liaiin vard helmsmelstari i skák A skákmótinu í Tallinn í Eistlandi í marsmánuði var fyrrum heims- meistari, Tigran Petrosjan meöal þátt- takenda. Hann er einn þeirra skák- manna sem eiga litlu fylgi aö fagna meðal áhorfenda því að hann er varkár og jafnteflin vilja oft veröa nokkuö mörg. I seinni tíö er afar sjaldgæft aö hann tapi skák, flestum skákum hans lýkur meö jafntefli, en í hverju móti tekst honum venjulega að vinna nokkrar og ná þar meö viðunandi sæti. I Tallinn varö hann t.a.m. í 3.-5. sæti á eftir Tal og Vaganjan. Petrosjan sigraöi Botvinnik í heims- meistaraeinvíginu 1963 og varö þar með heimsmeistari í skák. Titlinum hélt hann 1966 meö sigri gegn Spassky en Spassky náöi fram hefndum þremur árum síðar. Petrosjan var umdeildur heimsmeistari, ef svo mætti aö orði komast. Mörgum fannst afar lítið til hans koma, töldu að þurr og leiðin- legur skákstill hans gæti síst orðið skáklistinni til framdráttar. Aðrir skynjuöu dýptina í skákum hans og hrif ust af varnartækninni. Fram aö skákmótinu í Tallinn til- heyrði ég fyrmefnda hópnum og gat vart hugsað mér leiðinlegri skákmann en Petrosjan. Ég hafði aldrei gert til- raun til þess að rannsaka skákir hans sérstaklega og taldi víst að það hlyti að vera lítið í þær spunniö. En í Taliinn lenti ég fyrst í „návígi” viö Petrosjan, fylgdist með honum sundurgreina skákir sínar að þeim loknum og tefldi meira að segja við hann sjálfur. Ég komst aö því af eigin raun að skilning- ur hans á skák er stórkostlegur og engin tilviljun aö þessi maður skyldi hafa oröiðheimsmeistari. Vissulega stendur Petrosjan ekki lengur á hátindi ferils síns enda 20 ár síðan hann varð heimsmeistari. Hann verður 54 ára gamall 17. júní næstkom- andi og með aldrinum verður áhætta honum enn meir á móti skapi. Sagt er um Petrosjan aö hann skynji hættuna löngu áður en hún verður til og geri þá viðhlítandi ráöstafanir annaðhvort á borðieðaíorði. Eitt er þaö einkenni á skákstíl Petrosjans og viðhorfi til skáklistar- innar sem ég tók sérstaklega eftir í Tallinn: Hann hefur einkar næmt auga fyrir varnarmætti stöðunnar. Oft er það svo að hann gefur andstæöingnum mjög frjálsar hendur til sóknarað- gerða og kærir sig kollóttan þótt peða- fylkingin stormi fram borðið. Andstæð- ingurinn hugsar sér gott til glóðar- innar, en kemst að því er áhlaupið er aö ná hámarki sínu, að hann kemst ekkert áleiðis. Þá hefur hann oft brennt allar brýr að baki sér og situr uppi með veilur í stööu sinni sem Petrosjan notfærir sér listilega og kreistir líftóruna úr andstæðingnum. Skák mín viö Petrosjan í Tallinn er einkar gott dæmi um þetta. Petrosjan velur hægfara byrjunarafbrigði sem virðist ekki lofa góðu. Hvítur fær yfir- burði í rými og ógnandi stööu, auk þess sem riddarar Petrosjans lenda úti á kanti og virðast eiga litla framtíö fyrir sér. En Petrosjan heldur rósemi sinni og tekst með stórkostlegum riddaratil- færingum að draga vígtennurnar úr hvítum og fyrr en varir er riddari hans orðinn besti maðurinn á borðinu. Þá hefst leikur kattarins að músinni. Hvítur getur sig hvergi hrært, en í slíkum stöðum láta afleikirnir sjaldn- ast á sér standa. Fyrir 20 árum hefði Petrosjan vafalaust tekist að murka lífiö úr hvítu stöðunni, en aö þessu sinni var hann heldur of bráður á sér. Vann þó peð, sem reyndist ekki nægja tilsigurs. Taflmennska Petrosjans í fyrri hluta þessarar skákar er afar lærdómsrík og aðdáunarverð. Takið eftir riddara- leikjum hans. Ég hreifst svo mjög af, að ég tefldi mína bestu skák á mótinu í næstu umferð! Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Tigran Petrosjan Frönsk-vöm. I. e4 e6 2.d4 d5 3.Rc3 Rf6 4.e5 Rg8 Þessum leik bregður fyrir öðru hverju, en auðvitað er algengara að leika 4,—Rfd7. Svartur tapar leik, en staðan er lokuö og ekki auðvelt að færa sér þaðínyt. 5.f4 b6 6.Be3 Rh6 7.Rf3 Dd7 8.Dd2 Ba6 9.Bxa6 Hugmyndin er sú, að ginna riddarann út á kant þar sem hann sýn- ist illa staðsettur. En 9.0—0—0 kom sterklega til greina. 9. —Rxa610.BÍ2!? Ef strax 10Ji3, gæti kamið 10,—Rf5 II. Bf2 h5 með festu kóngsmegin. Nú nær svartur ekki að losa um sig á þann hátt og framrás hvítu peðanna er yfir- vofandi. 10. —c5 ll.h3(?) Svartur gæti svaraö ll.a3 með 11.— c4 og hefur þá gegnumbrotsmöguleika eftir b-línunni. En sterkast er ll.De2! með betra tafli á hvítt. 11. —cxd4 12.Rxd4 Bb4 13.a3 Bxc3 14.Dxc3 Rc515.g4 Hinn vanhugsaöi 11. leikur hvíts geröi það að verkum að svarti drottningarriddarinn hefur fundið sér * I S II é 1 «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.