Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 6
6 DV. LAUGARDAGUR 4. JUNÍ1983. Ferðamál Ferðamál Ferðamál ísraelar treysta á að ferða- menn bjargi efnahagnum Stjórnvöld í Israel hafa haft uppi geysimikinn áróöur á Vesturlöndum á undanförnum mánuöum í því skyni að fá fleiri erlenda ferðamenn til landsins. Efnahagurinn er bág- borinn um þessar mundir í Israel enda útgjöld til hermála gífurleg og verðbólga líklega jafnmikil og hérlendis eða jafnvel meiri. En y firvöld þar í landi segja að engin ein aðferö til að auka þjóðartekjurnar komist í hálfkvisti við aukinn fjölda erlendra ferðamanna. Og Israelar gera sér ljóst að það kostar peninga að skapa peninga og því hafa þeir varið miklum fjárhæðum til kynn- ingar á Israel sem ferðamannalandi. Árið 1981 skilaöi ferðaþjónusta hvorki meira né minna en 956 millj- ónum dollara í þjóðarbú Israels og munar um minna. Um leið og dró úr komum erlendra ferðamanna varð þess áþreifanlega vart í efnahags- lífinu. Þetta skeöi á síðasta ári enda voru veður þá válynd í Israel og ná- grannalöndunum, sérstaklega í Líbanon. Ferðamönnum fækkaði til muna og gjaldeyristekjurnar hröp- uðu. Snúa vörn í sókn Israelar sáu að við svo búið mátti ekki standa og sneru því vöm í sókn. Þeir hófu öflugt kynningarstarf Flugvélar EL AL eru nú aftur komnar þangao — þar sem þær eiga heima — uþþi i háloftunum. En auðvitað verða þær að lenda afog til iika eins og þessi hárna. erlendis, buöu fjölda blaöamanna í kynnisferöir á þekkta staði í landi sínu og lögðu sérstaka áherslu á að kynna staðinn Eilat við Rauðahafiö, en þar hefur veriö byggður upp nýr ferðamannabær ef svomá segja. Þar hafa veriö byggð ný hótel og enn fleiri eru í byggingu og verða opnuð á þessuári. Israelar hafa víða náö góðum árangri í viðleitni sinni til að auka straum erlendra ferðamanna til landsins. Má nefna sem dæmi að í sumar verða 18 flugferðir á viku milli Bretlands og Israel með fimm þúsund sætum. Þar af munu flug- félögin E1 A1 og British Airways flytja helminginn í áætlunarflugi en afgangurinn fer með hinum ýmsu leigufélögum. Breskar ferðaskrif- stofur bjóða mjög f jölbreyttar ferðir til Israel og er verðið allt niður í 160 sterlingspund fyrir vikuferð. El Al úr öskustónni Israelska flugfélagið E1 A1 hefur hafið áætlunarflug að nýju fyrir nokkru, eftir að flugflotinn hafði staðið ónotaður í fjóra mánuði. Strangtrúarmenn höfðu fengið því framgengt að félaginu var bannað að fljúga á laugardögum. Stjómendur flugfélagsins sögðu þá óhjákvæmi- legt að breyta öllu rekstrarfyrir- komulagi og segja upp hluta af starfsliði. Stéttarfélögin lögðu niður vinnu í mótmælaskyni og var þá starfseminni hætt að mestu. Þessi deila leystist seint og um síðir og nú • A í InflíA nA iti'rki TTInlrtn / Israelgeta ferðamenn til dæmis sullað bæði i Rauðahafinu og Dauðahafinu. I þessum vagni eru sjónvarpstæki, video hvað fleira. „Geimskutla” á vegiim útl „ Það vakti nokkra athygli hérlendis þegar farið var að útbúa langferða- bíla videotækjum. Þótti sumum þetta fim mikil og spuröu hvað kæmi næst. En þetta þykir ekki ýkja merkilegt í útlandinu lengur þar sem samkeppni rútufyrirtækja hefur farið sífellt harðnandi. Fyrirtæki í Skotlandi sem rekur langferðabifreiðar hefur tekið bifreið í notkun sem á aö slá allt út sem þekkst hefur í þessum bransa. Bíllinn er tveggja hæða og nefnist geimskutlan (The Space Shuttle). Hann er tveggja hæöa og rúmar 77 farþega. I geimskutlunni eru átta sjónvarpstæki, video, salemi og aöstaöa til að bera fram heita drykki. Klefi ökumanns er teiknaður með hliðsjón af flugstjórnarklefa geimskutlunnar Kólumbíu. Þessi gripur kostaði aðeins 170 þúsund pund og reikni nú hver sem hann getur á nýja genginu ef hann vill breyta þeirri upphæð í íslenskar króniu-. Geimskutlan skoska mun í sumar aka farþegum frá Edinborg, Manchester og London í sumar- leyfisferðir til Frakklands. Eig- andinn hyggst kaupa tvær geim- skutlur til viðbótar svo nú má Olafur Ketilsson f ara að vara sig. -SG. Feröahandbók fyrir fatlaða Þeir sem eru fatlaðir á einn eða annan hátt finna oft óþyrmilega fyrir því að flest hótel og veitingahús em eingöngu búin með þarfir ófatlaöra í huga. Það getur því reynst tímafrekt og erfitt að finna hótel við hæfi þegar fatlaöir eru að skipuleggja ferðir sínar út um heim. En nú ætti þetta að verða mun auöveldara. I Englandi er komin út bók á vegum Worldwide Publications sem heitir „Worldwide Travel Manual for the Handicapped”. I bókinni er að finna lista yfir um fimm þúsund hótel í mörgum verðflokkum sem geta veitt fötluðum góða þjónustu. Listinn nær yfir hótel í 100 löndum, þar á meöal í Evrópu, Bandaríkj- unum, Austurlöndum og á Nýja Sjálandi. I bókinni er einnig að finna ýmsar aðrar gagnlegar upplýsingar fyrir fatlaða og góð ráð um ýmislegt er varðar ferðalög þeirra. Bókin kostar 19,55 sterlingspund í Englandi og munu bókaverslanir hér geta pantað hana fyrir þá er vilja. Ferðamál Sæmnndnr Gudvlnsson starfsfólks var sagt upp, mörgum skrifstofum félagsins erlendis var lokað og ferðum fækkað. Rekstur flugfélagsins hefur því skroppið allmikiö saman frá því sem var áður en til stöðvunarinnar kom, en þjóðin fagnaði því mjög er vélar E1A1 hófu flug að nýju í janúar síðastliðnum. Félagið hóf þegar nýja baráttu fyrir tilveru sinni og hellti sér út í samkeppni við erlend flugfélög. Til dæmis bauð E1 A1 499 dollara verð milli New York og Tel Aviv fram og til baka og sló þar með TWA út á þessari leið. E1 A1 á nokkrar Boeing 767 í pöntun og sú fyrsta verður afhent í þessum mánuði. I haust mun 767 annast áætlunarflug milli London og Tel Aviv ásamt jumbo en E1 A1 tekur 707 út í staöinn af þessari leið. Ekki hefur orðið breyting á hvað varðar flug á laugardögum til Israel. Ekki má fljúga á sabbatdegi. E1 A1 hefur hins vegar leyfi til að hefja flug til Israel erlendis frá á laugardags- kvöldum og félagið býður upp á sér- staka þjónustu í mat og drykk í því næturflugitil Israel. Vonir Israela um að vinna aftur fjTri sess á ferðamarkaðinum byggj- ast að sjálfsögöu á því að friður haldist austur þar. Páfinn hefur tilkynnt að árið 1983 og fram á næsta ár verði „heilagt ár” og má búast við að það færi Israel mikinn fjölda pílagríma auk annarra ferðamanna. Kannski að ferðamálin og þær miklu tekjur sem ferðaþjónustan gefur af sér leggi drjúgan skerf til að koma í veg fyrir frekari ófrið á þessum slóðum. —SG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.