Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 4. JUNÍ1983. 9 Berum höfudid hátt Þess er nú krafizt að Alþingi verði kallað saman hið bráðasta. Kvenna- listi krefst þess, Alþýðubandalag krefst þess, Alþýðuflokkur krefst þess og formaður þingflokks sjálf- stæðismanna krefst þess. En þjóöina varðar þetta öngu. Ekki verður séö að lýðræðið bíði við það hnekki þótt þing komi ekki saman fyrr en með haustinu. Tveir mánuðir til eða frá skipta ekki máli í því sambandi. Virðing Alþingis mun ekki aukast þótt þing komi saman nú til að stjórnarandstaðan geti haft í frammi flugeldasýningar í nokkrar vikur. Nýsett bráðabirgðalög njóta ótvíræðs fylgis meirihluta alþingis- manna svo niðurstaðan liggur ljós fyrir. Auk þess er rétt að gefa ríkis- stjórninni starfsfrið um nokkurt skeið, að öðrum kosti er ekki að vænta árangurs af efnahagsaðgerð- unum. Fólkið vill sól Sýnt hefur verið fram á að vinsæld- ir ríkisstjóma eru að jafnaöi allmikl- ar í upphafi efnahagsráöstafana, jafnvel þótt þær séu til skerðingar. Þessar vinsældir dvina svo þegar áhrif aðgerðanna fara að koma í ljós. Líklegt er að ríkisstjómin njóti boð- legs stuðnings þjóðarinnar enn um sinn í viðleitni sinni til að koma efna- hag landsmanna í viðunandi horf. Eins og sakir standa vill þjóðin sól en ekki karp í þingsölum. Launþegasamtökin hafa þegar sent frá sér harðorðar yfirlýsingar í kjölfar efnahagsráðstafananna. Svo hefur verið blásiö til ráðstefna þar sem leggja skal frekari línur um að- gerðir. Hætt er við að við þær aðstæð- ur sem nú em muni almenningur ekki krefjast róttækra aðgerða af of- forsi. Ekki er víst að launþegar séu undir verkfallsaðgerðir búnir. Af- borganakjör hafa í raun rýrt verk- fallsréttinn verulega. I svo mikilli verðbólgu sem hér ríkir og ríkt hefur að undanförnu er boginn spenntur til hins ýtrasta. Leggur ekki fyrir Almenningur í landinu leggur ekki fé fyrir til eyðslu síðar. Þess í stað er lausafé keypt með afborgunarkjör- um svo að ekkert má út af bregða svo ekki hrikti í. Á móti kemur að verk- fallssjóðir félaganna eru væntanlega sterkir nú því ekki hefur þurft að greiöa úr þeim lengi. Greiðslur það- an munu þó engan veginn nægja til að heimilin haldist á floti ef til verk- falla kemur. Þá er fólki nú sumar of- arlega í huga og sumarleyfi með til- heyrandi fj árútlátum. Þeir voru allir sammála Allir stjórnmálaflokkamir voru sammála um það fyrir kosningar að sá vandi sem einna brýnast væri að taka á væri vandi húsbyggjenda. Fólk bognar nú í baki undan afborg- unum á verðtryggðum lánum sem virðast hækka hraöar en launin i augnablikinu. Ríkisstjómin hefur þetta nú til meðferðar og starfandi mun nefnd á vegum Húsnæðisstjóm- ar og Seðlabanka sem vinnur að því að semja reglur um breytt fyrir- komulag afborgana á þessum lán- um. Ekki er að efa að margir bíða spenntir eftir að reglur þessar líti dagsins ljós. Á meðan em öldurhús bærilega mönnuð fyrir framan bar- borð og lítilfjörlegt gerviloft í launa- umslagi og von um léttari afborganir verður tilefni hátíðahalda. Þá var valið milli ráðuneyta Sjálfstæðismenn völdu fremur sex ráðherrastóla en forsætisráðuneyti. Þetta var skynsamlegt val. Gæta skal að því að rugla ekki vali þessu saman við persónu Geirs Hallgríms- sonar. Það snerist ekki um hana. Hins vegar skipuöust mál svo farsæl- lega með þessari niðurstöðu að í hlut sjálfstæðismanna kom ráöuneyti utanríkismála undir forsæti Geirs. Því má búast við að aðkallandi mál á þeim vettvangi eins og flugstöð og Helguvík fái nú skjótan og farsælan framgang. Hver hirði sínar tennur Fyrir kosningar tók Svavar Gests- son, þáverandi heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra, upp á því að lofa endurgreiðslu á hluta af tannlækn- ingakostnaði. Auðvitað var sem minnst hugað að því hvar finna skyldi fé I góma þessa en hjalað óljóst um einhvern tekjuafgang. Kosningar vom á næsta leiti og því nauðsynlegt að sýna tennumar. Nú er það svo að tannskemmdum er á margan hátt á annan veg farið Laugardags- pistill Óskar Magmisson fréttastjóri en öðmm sjúkdómum. Að verulegu leyti geta menn sjálfir gætt tanna sinna auðveldar en annarra líkams- hluta sem hættir við sjúkdómum. Það má því vera umhugsunarefni hvort yfirleitt skuli beita almannafé í þessum tilgangi. Um það skal ekkert fullyrt en ágætt væri aö staldra ögn viö og huga að markvissari aðferð- um til að félagsleg hjálp komi þeim til góða sem á henni þurfa að halda en veröi ekki skrípaleikur einn. Og til em þeir menn sem hirða vel tennur sínar og vilja ekki greiða fyrir þaö þótt „SvavarGestsson” burstisínar tennur illa. Því skal aðeins bætt við í framhjáhlaupi, að gleraugnakostn- aöur hlýtur með tímanum að greið- ast af almannafé ef óbreytt stefna heízt. Þá verður endilega að gæta þess að selja bara eina tegund af gleraugum með félagslegri aöstoð. Þá getur stór hluti þjóðarinnar skynjað umhverfiö með félagslegum gleraugum. Þá þarf að opna margar fernur Á vettvangi landbúnaðar er komið upp eitt undramálið til. Jógúrt er seld of ódýr til að við megi una. Framleiðsluráð landbúnaðarins ber framleiðanda á brýn misbeitingu fjármuna án þess að rökstyðja þá fullyrðingu. Framleiðsluráðið finnur að umbúðum utan um jógúrt en sömu menn hafa unað glaðir við sams konar umbúðir utan um súr- mjólk í áraraðir. Segjast svo reynd- ar vel geta hugsað sér slíkar umbúð- ir ef neytendur vilji. Og ber nú nýrra við ef fara skal að vilja neytenda. I gildi eru dularfullar reglur um bann við flutningi mjólkurafurða milli svokallaðra mjólkursölusvæöa. Rétt er að vara ferðamenn við að fara með kaffir jóma í farteski í langferðir innanlands. En neytendur eru ekki spurðir hvort þeir vilji kaupa ódýra jógúrt. Neytendur eru ekki spurðir hvort þeim sé ekki dauðans sama hvar á landinu varan er f ramleidd ef hún aðeins er jafngóð og ódýrari. Verzlunin Hagkaup hefur nú í hyggju að hefja eigin framleiðslu á jógúrt. Sú verzlun hefur lengi fitjað upp á ýmsum nýjungum til lækkunar vöruverðs en oft rekizt á staðnað kerfi. Hætt er við að reynt verði að bregða fæti fyrir verzlunina ef hún reynir að hefja jógúrtframleiðslu. Reynt verður að stöðva hana með því að selja henni ekki mjólk með venju- legum hætti til framleiðslunnar. Við því má sjá með því aö rífa upp eins lítra fernur í stórum stíl og hella út í. Svo má líka nota þurrmjólk en þá fylgir sá ókostur að jógúrt framleidd úr þurrmjólk gæti orðið helmingi ódýrari en hin og verður því væntan- lega álitin banvæn. Efnismikið og fallegt Stórhuga fólk stofnar nú samtök til byggingar tónlistarhúss. Ekki er á þessari stundu vitað hvar finna skal fé til framkvæmdanna en vísast að það finnist eins og endranær þegar áhugi er f yrir hendi. Það þarf mikla bjartsýni til aö láta sér detta slíka framkvæmd í hug viö núverandi aðstæður. En hér er byggt á því „að Vestmannaeyjar skulu rísa”, svo hafi alltaf verið í efna- hagsmálum okkar. Vonandi rætist sú spá. Nýtt og vandað tímarit hefur verið gefiö út þjóöinni til afþreyingar og ánægju og til yndisauka á sófaborð- um. Tímaritið Storð er efnismikið og um margt áhugavert og auk þess er það fallegt. Þeir sem vilja ekki lesa geta því glatt augaö. Og svo fer það vel við „PéturFriðrik”. Vonandifær þetta framlag góðar móttökur. Hampton, Jones, Borge Hvert stórstimið á sviði menning- ar og lista hefur komið hingaö til lands á undanförnum dögum. Jass- istinn Lionel Hampton, heimsgrínist- inn Victor Borge og nú um heigina söngkonan og prestsdóttirin Grace Jones. Hampton heiðraði jassunnendur og heiilaöi á hljómleikum i Háskóla- bíói með stórbrotinni músíkleikfimi og annarri, sjötugur maðurinn. Grace Jones kom fram í gærkvöldi og kemur aftur fram í kvöld. Þeir sem standa fyrir komu erlendra skemmtikrafta af þessum kalíber taka á sig mikla fjárhagsáhættu. Vonandi fara þeir ekki flatt á þessum menningarauka. í kringum ekki neitt Borge kunni að hrífa salinn með sér. Hlátur áhorfenda var óstöðvandi á meðan hann var á sviðinu. Húmor Borge er sérkennilegur fyrir þá sök að hann er ekki spunninn í kringum neitt sérstakt. Hann þarf ekki á at- vikum úr stjórnmálum eða þjóðlífi að halda til að skapa sinn húmor. Orð og framkoma nægja honum, að ógleymdu píanóinu sem sífellt verð- ur honum aö yrkisefni. Hann horfir á píanóið og les: Steinway and. .. Og segir svo hugsandi: Eg vissi ekki einusinni að hann væri giftur. Það er mikill fengur í viðburðum sem þessum og engin ástæða til að láta deigan síga í andlegum efnum þótt skotsilfur sé af skornum skammti í augnablikinu. Berum höfuðið hátt, það hefði getað farið verr, sagöi Willy Breinholst. Alvaran er sæluhús grunnhyggninnar, sagði Oscar Wilde og hvað sagði ekki Jök- ull: Þegar sumir róa til fiskjar og aðrir rækta lítinn matjurtagarð þá þarf einhver að syngja. Oskar Magnússon.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.