Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 8
DV. LAUGARDAGUR 4. JUNl 1983. 8____________________ DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarrilstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn. SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI84611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáaugtýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI 19. Áskriftarverð á mánuöi 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr. Helgarblað22 kr. Utan og ofan veruleikans „Það er ógerlegt að láta þessar áorðnu hækkanir dynja á bændum/'sagði talsmaður landbúnaðarins á blaða- mannafundi, þar sem hann reyndi að útskýra, af hverju landbúnaðarvörur þurfa að hækka um 22—33% meðan laun hækka um8%. Launþegar og neytendur telja margt fleira „ógerlegt” en þetta eitt, en þeir hafa ekki sama vald og talsmaður landbúnaðarins hefur, með starfsmann landbúnaðar- ráðuneytisins sér á aðra hliö og Torfa Ásgeirsson sem „fulltrúa neytenda” sér á hina. Launþegar og neytendur telja fleiri en bændur hafa orð- ið fyrir „áorðnum hækkunum” á síöustu þremur mán- uðum. Og ofan á þau 22% hefur nú bætzt enn ein „áorðin” hækkun, sem felst í 22—33% hækkun á verði landbúnaðar- afurða. En launþegar og neytendur hafa ekki sömu stöðu í kerf- inu og landbúnaöurinn. Þeir verða að sæta Torfa Ásgeirs- syni, sem enginn kannast við, að launþegar eða neyt- endur hafi valið til að gæta hagsmuna sinna gegn úlfum kerfisins. „Það er ógerlegt að láta þessar áorðnu hækkanir dynja á launþegum,” gæti forseti Alþýðusambandsins reynt að segja. En slík skoðun utan úr bæ hefur ekki ákvörðunar- gildi eins og tilskipanir talsmanns landbúnaðarins hafa. „Það er ógerlegt að láta þessar áorðnu hækkanir dynja á neytendum,” gæti formaður Neytendasamtakanna reynt að segja. En slík skoðun utan úr bæ hefur ekki ákvörðunargildi eins og tilskipanir talsmanns landbúnað- arins hafa. Sá valdamikli maður veit líka, að fleira er „ógerlegt” en frávik frá ýtrustu verðhækkunum einokunarafurða landbúnaðarins. En þau „ógerlegu” atriði varða öll hags- muni kerfisins, sem myndaö hefur verið um hinn hefð- bundna landbúnað. Það er til dæmis „ógerlegt” að leyfa í Reykjavík sölu á ódýrari jógúrt í betri umbúöum frá Húsavík, því að sam- kvæmt lögum hefur Mjólkursamsalan í Reykjavík einka- rétt á að nauðga launþegum og neytendum á því svæði. Það er einnig „ógerlegt” að leyfa frjálsa sölu á eggj- um, því að eggjaverö, sem er lægra en „gerlegt” verð að mati landbúnaðarstjóra, er að mati þeirra ekki í þágu neytenda, svo sem þeir hafa rakiö í löngu máli að undan- förnu. Það er einnig „ógerlegt” að leyfa frjálsa sölu á svína- kjöti af sömu ástæðum. Því miður fyrir talsmanninn felldu svínabændur meö eins atkvæðis meirihluta að níð- ast á neytendum á sama hátt og hinn hefðbundni landbún- aður gerir. En það kemur dagur eftir þennan dag. Og talsmaður, landbúnaöarins hefur auðvitað góöar vonir um, að svína- bændur sýni sama félagsþroska og eggjabændur og falli í faöm hins sjálfvirka kerfis, þar sem allt óþægilegt e." „ógerlegt”. Það er ennfremur „ógerlegt” að selja neytendum aðrar kartölfur en smælki, af því að það er of smávaxiö fyrir verksmiðjurnar, sem framleiða franskar kartöflur. Og ekki má flytja inn stórar kartöflur, meðan smælkið er ekki uppselt. „Það er ógerlegt að láta þessar áorðnu hækkanir dynja á bændum,” er dæmigerð yfirlýsing úr lokuðu kerfi, sem ekkert tillit þarf að taka til umheimsins og telur raunar umheiminn hafa þann eina tilgang að þjónusta þetta kerfi. Utan og ofan við veruleika íslenzks þjóöfélags er kerfi, sem fléttað hefur verið úr innflutningsbanni á búvörum, einokun á sölu þeirra og sjálfdæmi um verð. Því er leyft að „dynja” með ofurþunga á launþegum, neytendum — og ekki sízt skattgreiðendum. Jónas Kristjánsson. Efnahagsþættlrnir þola ekki átök! Eg las í vikunni bréfkom sem Alþýöubandalagið, Alþýöuflokkur- inn, Bandalag jafnaðarmanna og Kvennaframboö sendu hinni nýlega mynduðu ríkisst jórn Steingríms Her- mannssonar. I þessu bréfi kemur meðal annars fram að þessir flokkar vilja að þing verði kallað saman hið fyrsta. Þá er ótvirætt greint frá því að þessir flokkar eru mótfallnir afnámi samningsréttar og vilja að „tekið verði með samræmdum hætti á öllum þáttum efnahagslífsins” sem, að því er segir í bréfkorninu, hefur ekkiveriðgert. Þetta bréf er allt í frekar óvinsam- legum tón og það fer ekki hjá því að lesendur þess dragi þá ályktun af því að þessir flokkar séu á móti stjórn- inni hans Steingríms. Þaö er bæði eðlilegt og sjálfsagt að vera á móti þessari stjóm og þess vegna mun ég hér eftir nefna þessa fjóra flokka „stjómarandstöðuflokka”, eða jafn- vel, þegar sá er gállinn á mér „stjómarandstöðuna”. En því miður kemst ég ekki hjá því að halda uppi gagnrýni, málefnalegri að sjálf- sögöu, á málflutning þann sem kem- ur fram í bréfkomi stjórnarand- stöðuflokkanna til Steingríms. Það er auövitað fyrst og fremst athugasemdir stjórnarandstöðu- flokkanna um „samræmt” átak á öll- um þáttum efnahagslífsins sem ég á hér við. Mér þykir gæta þar nokkurr- ar óbilgirni af hálfu stjórnarandstöð- unnar og kýs því að fjalla hér nokkuð um efnahagslífið, á málefnalegan hátt, aðsjálfsögðu. Þættir efnahagslífsins eru ákaf- lega margir og til þess að henda reið- ur á þeim verðum viö að greiða þá í sundur nokkuð. Fyrst er auðvitað sjávarútvegurinn: Það er vitað mál, og hefur verið þaö lengi, að það er engum tökum hægt að ná á sjávarút- vegi, samræmdum eða öðrum. Þeir sem það hafa reynt (og öllum hefur þeim mistekist) segja að það sé auð- veldara fyrir drukkinn mann í sturtu að ná taki á blautu sápusty kki en fyr- ir dauðlegan mann aö ná tökum á sjávarútvegi. Að lokum má svo minna á ummæli LÍO-mannsins, (LlO-menn finnast víða, til dæmis fann Richard Leakey einn slíkan síð- asta sumar á ströndum Tanganyka- vatns) þess efnis að bráöbirgðalög Steingríms og félaga um nýskipan hlutaskipta myndu setja útgerðina á hausinn. Af þessu má sjá að hin ósýnilega og kalda hönd ríkis- stjómarinnar mun rústa fleira en fjárhag heimilanna í landinu þegar fram líöastundir. Annar þáttur efnahagsmála er auövitað landbúnaöurinn. Á honum hafa framsóknarmenn nú fest hend- ur og engin ástæða til þess að óttast að hann renni þeim úr greipum. Við megum og kunnum aö hafa áhyggjur af landbúnaðarmálunum, en við komumst ekki að þeim í bili. Og víst er það að framsóknarmenn munu halda fast á landbúnaðinum og ekki gleyma samræmda hættinum að heldur því að einhverjar hugmyndir munu uppi um að samræma eggja- og svínakjötssölumál innan tíðar. Úr ritvéfinni . ðlafur B. Guðnason Þá komum við að stórið junni og við skulum flýta okkur með hana. Stór- iðjan er á hausnum. Álfélagið þarfn- ast fjársöfnunar meðal almennings til að skrimta. Járnblendiverksmiðj- an er lokuð mestan hluta af ári hverju og svo eru þeir að bygg ja eina engu síðri f yrir austan. Á stóriðju má alls ekki taka. 1 allra mesta lagi má str júka henni blíðlega sem er einmitt þaö sem Steingrímur og félagar ætla að gera. Þeir vita það að ekki má fara harkalega aö s júklingum. Þá komum við að milliliðunum og nú verðum við að vera málefnaleg og raunsæ. Allt frá því að góðgerðasam- tök Hörmangara ráku verslun sína með halla á Islandi hafa Islendingar hatað kaupmenn. Þetta er reyndar alveg ástæöulaust! En mörgum hef- ur reynst erfitt aö þiggja ölmusu. Staðreyndin er auðvitað sú að haf- andi rústað efnahag heimilanna geta þeir Steingrímur og félagar hans í Múrnum ekki gengið öllu nær milli- liðunum, því að milliliðirnir hafa tekjur sínar af vinnandi fólki! Og þegar vinnandi fólk er oröið aö öreig- um hættir það að kaupa vörur. Og þá sitja milliliðirnir eftir í örðugleikum, stynjandi undan lagemum sem eng- innvilllosaþá við. Við skulum bara taka eitt raunhæft dæmi um raunverulegan milliliö! Heildsali úti í bæ, sem hér skal látinn ónefndur, keyrir um á notuðum bíl eins og ég! Eg er aðeins launaþræll, sem má þola kjaraskerðingu á þriggja mánaða fresti, en ég keyri um á notuðum bíl sem ég keypti um svipað leyti og heildsalinn keypti sinn notaða bíl. Að vísu er minn bíll tíu ára gamall Saab, sem er víst ónýtur í ofanálag, en bíll heildsalans er ársgamall Cadillac, en það er aukaatriði! Málið er auðvitað það aö efnahagur aum- ingja mannsins er ekki betri en svo að hann verður að sætta sig við þaö að keyra um á notuöum bíl sem er auðvitað hroðaleg niðurlæging fyrir neysluóðan Islending á þessum tím- um. Þannig held ég að það sé ljóst að milliliðimir þola alls ekki að á þeim sé tekið og síst af öllu með samræmd- umhætti! Ég held að það sé nú ljóst hversu illa ígrunduð gagnrýnin var sem kom fram í bréfkorni stjórnarand- stöðuflokkanna til Steingríms Her- mannssonar og félaga hans í rikis- stjóminni. Staöreyndin er nefnilega sú aö með því að rústa hag heimil- anna er þjóðarhagur af sjálfu sér lagður í rúst. Þannig ná Steingrímur og félagar settu marki með tiltölu- lega einföldum aðferðum meðan stjómmálamenn, sem reyrðir em í kerfishugarfarið, vilja setja upp nefndir, samræma aðgerðir og ganga fram til rústunar á félagsleg- um gmnni. Eflaust má setja landið á hausinn með þeirri aðferö líka! En það tæki miklu lengri tíma og yrði miklu dýrara. Og á þessum erf iðleikatímum verður að spara! Hafandi lagt fram þessa gagnrýni á málflutning stjórnarandstööu- flokkanna verð ég hér að viðurkenna að ég er á móti ríkisstjórn Stein- gríms. Það er ekkert til þess að skammast sín fyrir því að i lýðræöis- þjóöfélagi er stjómarandstaða jafn- nauðsynleg og stjórn. En það er vel skiljanlegt að Steingrímur vilji síður kalla þing saman því að það er oft svo mikið ónæði að stjómarandstöð- unni. Og nú ríður á að hafa snör handtök því að aldrei hefur þjóðar- búið legið betur við höggi en nú og óvíst hvenær svo gott færi býðst aö nýju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.