Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 30
DV. LAUGARDAGUR 4. JUNI1983.
VMSÍ
Skrifstofur
Verkamannasambands
íslands
verða lokaðar 6.-9. júní nk. vegna flutninga.
Opnað veröur aftur föstudaginn 10. júní að
Suðurlandsbraut 30.
Sími 86410. VERKAMANNASAMBAND ÍSLANDS
SCStJtSÍJCStJíJCSCJCJCJíSÍStJÍJCSÍJÍSÖCJÖÍJÍJíJöCJCStJCJtSÍJÍSíSCSÍJSJÍJÍSÓ-:
• Trúlofunarhringar •
Kúptir, allar breiddir.
Hvítagull-demants-
skornir og med
hvítagullsbandi.
Sendum nýjan
litmyndalista.
Jóri og Óskar
Laugavegi 70 Reykjavík.
Simi 24910.
Torfærukeppni
verður haldin
i nágrenni Hellu
í Rangárvallasýslu
laugardaginn
11. júni nk>
kí. 14. J
TORFÆRU
KEPPNI
Skráning keppenda og upplýsingar í sima (991-5100 á
vinnutima. (99I-5954 utan vinnutima fram að föstudeginum
10. júni nk.
F.B.S. HELLU.
FERENSTUM
NOROUmðNO
VELJIÐ SJÁLF HVERT ÓSKAFERÐINNI SKAL HEITIO.
TAKIÐ ÞÁTT í SAMKEPPNINNI. VINNIÐ
DRAUMAFERÐ UM NORÐURLÖND.
Ferðist um
Norðurlönd nú og takið þátt
í samkeppninni, þar sem
hægt er að vinna ferð um
Norðurlönd að verðmæti 19.800 kr., eða eina af hinum
15 aukaferðavinningum.
Fáið samkeppniskort á ferðaskrifstofunni áöur en þið
leggið af stað, eða á feröaskrifstofu í viðkomandi landi
meðan á feröalaginu stendur.
Feröamálaráö íslands • Danmarks Turistrád • Matkaílun edistámis-
keskus • Landslaget for Reiselivet i Norge • Sveriges Turistrád
Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál
Ekkieruöll
morð levfi-
leg í stríði
Georg Edward Heath var að leita að farþegum i leigubilinn. Farþegarnir
sem hann fékk kostuðu hann lífið.
Haustið 1944 ruddust hersveitir
bandamanna fram á öllum vígstöðv-
um. París var frelsuð undan oki nasista
í ágúst og Antwerpen og Bruxelles
fljótt á eftir. Hersveitirnar sóttu fram
úr öllum áttum að landamærum
Þýskalands. Þann 5. október gengu
breskar hersveitir á land í Grikklandi
og þann sama dag hófu V-2 sprengju-
flugvélar Þjóöverja loftárásir á suður-
hluta Englands.
Á þessum dögum hittust fyrir tilvilj-
un í hinni stríðshrjáöu Lundúnaborg
amerískur hermaöur og bresk nektar-
dansmær. Hann hét Karl Gustav
Hulten, 22 ára, liðhlaupi sem yfirgefiö
haföi fallhlífarherdeild sína fyrir sex
vikum. Hann þóttist vera liðþjálfi og
gekk undir nafninu Richard Allen. Hún
var 18 ára gömul og gekk undir nafninu
Georgina Grayson, en hét með réttu
Elizabeth Maud Jones.
Þau hittust á litlu kaffihúsi við
Queen Carolina Street í Hammer-
smith, útborg Lundúna, þann 3. októ-
ber 1944. Þegar þau gengu saman út af
kaffihúsinu spurði Hulten hana hvort
hún vildi hitta hann aftur. Hún játaði
því og síðan kvöddust þau og Betty
Jones hélt heim í leiguherbergi sitt við
King Street. Hulten hélt hins vegar til
annarrar vinkonu sinnar, Joyce Cook,
sem hann hafði þekkt í nokkra daga.
Elizabeth Maud Jones var fædd í
suöurhluta Wales áriö 1926. Þegar hún
var 16 ára gömul giftist hún manni sem
var tíu árum eldri en hún. Strax á
brúökaupsnóttina baröi hann hana til
óbóta og hún flýöi. Tveimur mánuöum
síöar, í janúar 1943, kom hún til Lund-
úna þar sem hún starfaði fyrst sem
þjónustustúlka á vínveitingahúsi en
síöar sem nektardansmær á nætur-
klúbbum. En vorið 1944 missti hún
vinnuna og varð að lifa á því litla fram-
lagi sem hún fékk frá fyrrverandi
eiginmanni sínum. Þegar hér kemur
sögu var hann í hernum. 1 september
þetta ár var tilkynnt aö hans væri
saknað. Betty Jones fékk um það skrif-
lega orösendingu þann 13. október aö
hann væri talinn af, en þaö var sama
dag og henni sjálfri var birt morö-
ákæra.
Þörf fyrír spennu i ti/veruna
Aö kvöldi þess 3. október kom Betty
til kvikmyndahúss í Hammersmith
þar sem hún ætlaði að hitta Hulten. En
hann kom ekki á stefnumótið. Hún
sneri til baka til herbergis síns við
King Street en á miöri leið ók amerísk-
ur herflutningabíll upp að hliöinni á
henni. Hulten sat við stýriö. Hún fór
upp i bílinn til hans og hann gaf þá
skýringu að hann væri aö safna saman
fallhlífarhermönnum til undirbúnings
innrásar í Þýskaland.
Hulten sagði síðar að hún heföi spurt
hvort þetta væri ekki hættulegt. Hann
sagðist hafa játaö því. Hún sagði þá að
hana langaöi til aö gera eitthvað svona
spennandi, til dæmis að vera byssubófi
eins og þeir geröust í Bandaríkjunum.
Hulten sýndi henni þá skammbyssuna
sína og sagðist hafa veriö meölimur í
glæpagengi í Chicago og auk þess heföi
hann brotist inn á bar í Lundúnum. Um
þetta ræddu þau af áhuga á meðan þau
óku áleiðis til Reading á stolnum her-
bílnum.
Um klukkan eitt um nóttina voru þau
komin langleiðina til Reading. Rétt
fyrir uian borgina óku þau fram hjá
stúlku á hjóli. Hulten ók bílnum út í
vegkantinn og veifaði til stúlkunnar að
nema staðar. Þegar hún kom upp að
honum þreif hann af henni handtösk-
una og henti henni upp í bílinn til Betty.
Svo snaraöi hann sér upp í bílinn, sneri
viö og ók á mikilli ferö til baka til Lund-
úna.
I töskunni reyndust ekki vera nema
fáeinir shillingar og nokkrir skömmt-
unarmiöar fyrir fatnaði sem þau gátu
selt fyrir eitt pund. Þau óku í bílnum
fram til klukkan fimm um morguninn.
Þá setti hann Betty af viö King Street,
lagði bílnum á bílastæði og lagðist þar
sjálfur til svefns.
Tillaga: að ræna leigubil-
stjóra
Þau hittust aftur næsta kvöld, en að
þessu sinni létu þau herflutningabílinn
eiga sig. Þess i stað sváfu
þau saman um nóttina. Kvöldiö eftir
borðuöu þau saman á veitingahúsi og
fóru síðan í Gaumont-kvikmyndahúsið
í Hammersmith. Að kvikmyndasýn-
ingunni lokinni fóru þau á kaffihús. En
þau voru varla búin aö loka á eftir sér
dyrunum þegar loftvarnaflauturnar
vældu. Þegar þau komu aftur upp úr
loftvarnabyrgjunum sóttu þau her-
flutningabílinn og óku í áttina aö Read-
ing. Þegar þangað kom ráögeröu þau
að brjótast inn í krá. En þegar til kom
skorti þau hugrekkið til þess arna og
þau sneru aftur til Lundúna.
Hulten sagði síöar svo frá: „Þegar
við komum til Marble Arch stakk hún
upp á að við rændum leigubílstjóra í
staðinn. Hún benti á einn leigubíl sem
við eltum til Cricklewood. ”
Þar tókst Hulten að stööva leigubíl-
inn og meö skammbyssuna í hendi
krafði hann bílstjórann um peningana.
En þegar hann sá aö farþegi var í bíln-
um guggnaöi hann og tók til fótanna.
Þau sneru aftur til Lundúna og voru
aftur á ferð við Marble Arch þegar þau
sáu stúlku á ferö meö koffort. Aö til-
lögu Betty Jones tók Hulten stúlkuna
upp í bílinn. Hún kvaöst vera á leiö á
Paddington-brautarstööina til aö ná
lest til Bristol. Hulten bauöst til að aka
henni alla leiö til Reading og hún þakk-
aði þá velvild mörgum oröum.
Lundúnabúar söfnuðust fyrir utan réttarsalinn þegar réttarhöldin yfir Betty
Jones og Karl Gustav Huiten fóru fram. Þrátt fyrir styrjaldarástandið brást
fóik við á þennan hátt.