Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 7
DV. LAUGARDAGUR 4. JUNI1983. 7 Glæsilegt Islandsmet Einars íTexas — kastaði spjótinu 89,98 m og bætti gamla metið um 4,76 metra Kastið er fjórði besti árangurinn íheiminum íár einnig í úrslit. Oddur Sigurösson náði sér ekki á strik í 400 m hlaupi og komst því ekki í úrslitakeppnina. —sos Einar Vilhjálmsson — spjótkastar- inn stórefnilegi. Kast hans í Houston er f jórði besti árangurinn sem hefur náðst í heiminum i ár. Einar Vilhiálmsson setti í gær glæsilegt íslandsmet í spjótkasti a bandaríska háskólameistara- mótinu sem stendur nó yfir í Houston í Texas. Einar kastaði spjótinu 89,98 og bætti met sitt (85,12) um 4.76 m. Þetta er stór- glæsilegur arangur hjá Einari sem heíur bætt sig um 8,66 m frá bví í mars og má reikna með að nann kasti yfir 90 m í úrslita- keppninni sem fer fram um helgina. Einar setti metið í undanúrslitum og kastaöi hann aðeins þessu eina kasti — til aö tryggja sér sæti í úr- slitakeppnina. Oskar Jakobsson komst í úrslit í kringlukasti, með því að kasta tæpa 59 m. Oskar keppir einnig í úrslitum í kúluvarpi, en hann kastaði kúlunni 19,60 m í undankeppninni. Iris Grönfeld kastaði spjótinu 48,80 m og komst í úrslit og Þórdís Gísladóttir stökk 1,81 m í hástökki og komst Hátíðarhöld sjómanna- dagsins í Hafnarfirði Hafnfirðingar halda sjómannadag- inn hátíðlegan í þrítugasta sinn á sunnudaginn kemur. Fánar veröa dregnir að húni klukkan átta og kl. 10.30 mun Kór öldutúns- skóla syngja við Hrafnistu. Farið verð- ur með böm í skemmtisiglingu út á Hafnarfjörð kl. 13 og á meðan verður kappróöur og koddaslagur í höfninni. Gengiö verður frá bryggju til íþrótta- hússins kl. 14.15 með Lúðrasveit Hafnarfjarðar í broddi fylkingar. Hátíöin verður síðan sett í íþrótta- húsinu kl. 14.30.Þar verður séra Gunn- þór Ingason með bænastund, Karla- kórinn Þrestir mun syngja, Olafur Björnsson, fulltrúi sjómanna, og Hulda Sigurjónsdóttir, formaður Slysa- vernadeildarinnar Hraunprýði, flytja ræður, auk þess sem aldraðir sjómenn verða heiðraðir og skemmtiatriði flutt. Kaffisala verður í Hrafnistu í Hafnarfirði frá kl. 15 til 17 og þar fer fram sýning á munum vistmanna. Lúðrasveit Hafnarfjarðar mun leika fyrir vistmenn og gesti kl. 15.30. eA Skattskrám ekki dreift á þessu ári Skattskrá ársins 1982 og álagninga- skrá ársins 1983 verða ekki gefnar út til sölu eins og venja hefur verið allt frá árinu 1959. Tölvunefnd, sem hefur eftirlit með kerfisbundinni skráningu á upplýsingum er varða einkamálefni, hefur úrskurðað að útgáfa skránna sé óheimil. 1 skattalögum segir að skattskrár og álagningaskrár skuli liggja frammi í hverju sveitarfélagi allt að 15 daga. Skattskrá ársins 1982 fyrir Reykjavík liggur nú frammi á Skattstofunni til sýnis fyrir almenning og verður það fram til 8. júní. Hins vegar er óheimilt að fjölrita skrána til dreifingar sam- kvæmt úrskurðinum. I lögunum sem nefndin starfar eftir segir að aöeins sé heimilt að skrá upplýsingar sem til- tækilegar eru í opinberum skrám, en nefndin telur að skattskrá og álagn- ingaskrá falli ekki undir þá skilgrein- ingu. Nefndin telur að skrár þessar falli undir það ákvæði laganna sem bannar skráningu upplýsinga er varð- a fjárhag manna í þeim tilgangi að veita öðrum fræðslu um þaö efni. Telur nefndin að almenningshagsmunir eða veigamiklir einkahagsmunir réttlæti ekki birtingu skránna utan þann tima sem þeim er ætlaö að liggja frammi hjá skattstjórum samkvæmt lögum. Fjármálaráðuneytið mótmælti úr- skurði þessum í september síðastliðn- um. 1 ix-éfi bendir það nrfndinni á að skylda til að leggja fram skrárnar tengist þeirri reglu skattalaga að sér- hver skattþegn hafi rétt til að kæra skatta allra annarra skattskyldra að- ila. Þá hafi ákvæöi laganna um kynningartíma skránna verið hugsað sem lágmarksákvæði en ekki há- marks. Einnig bendir ráðuneytið á að upplýsingar um niðurstöður skattaá- lagningar hafi ekki verið taldar til þeirra upplýsninga „sem sanngjamt er og eðlilegt að leynt fari”, eins og orðalag laganna um tölvunefnd kveður á um. Niðurstaða ráðuneytisins er því að það sé hafið yfir allan vafa að opin- ber birting úr skattskrám sé heimil. En úrskurður nefndarinnar gildir ofar áliti ráðuneytisins og skattskrár verða því ekki gefnar út að sinni. Þeir sem vilja kynna sér skatta sam- borgara sinna verða að lesa skatt- skrána á skattstofunni fyrir 8. þessa mánaðar. ÓEF. Aldrei neitað yfirmati — segir yf irmatsmaður á ísafirði „Eg hef aldrei neitað yfirmati, hafi þess verið óskað. Eg hef oft verið á Patreksfirði í vetur og bæði sjómenn og útgerðarmenn verið viðstaddir mat- iö.” Þetta voru orð Péturs Geirs Helga- sonar yfirfiskmatsmanns í tilefni af frétt í DV í gær um lélega hráefnis- nýtingu og lélegt mat á steinbít á Isa- firði. Pétur sagði ennfremur að það sem sjómenn kalla lélegt mat sé í raun að fiskurinn sé óvenjulega lélegur úr sjó. Hann hafi verið horaður, kýlóttur og meö mikið af ormum og því hafi hann verið dæmdur óhæfur til vinnslu. Að þessu leyti hafi vertíðin verið óvenju léleg. ÓEF Úrvalsvörur a einum stað Vönduö ítölsk boröstofuhúsgögn frá eurosedia marimekko. Finnskar töskurúrbómulleöa nælon frá oecemoré SUMMA. Stílhreinir raöskápar úr beyki. Einingunum má raöa saman á ótal vegu og fylgihlutirnir eru fjölmargir. KRISTJÁn SIGGEIRSSOn LAUGAVEG113, SMIÐJUSTÍG 6, SÍMI 25870

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.