Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1983, Side 6
6
DV. MANDDAGUR 31. OKTOBEK1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Vetrarforði í
kistuna og
lægsta meðaltal
RADDIR NEYTENDA:
Eftir breytingu menntamálaráðherra á reglugerð um Ríkisútvarp greiða neytendur aðeins afnotagjald af
einu sjónvarpstækiþó fíeiri tækiséu inotkun á heimilinu.
Eitt afnotagjald
Nú geta þeir sem eiga gömul svart-
hvít sjónvarpstæki, er innsigluö hafa
verið, fengið að taka þau aftur í notkun .
án þess að greiöa afnotagjald af þeim
sérstaklega. Þá munu þeir sem nú
greiða afnotagjald af tveim tækjum
aðeins fá kröfu vegna annars þeirra á
næsta gjalddaga.
Menntamálaráðherra undirritaði 13.
okt. sl. reglugerð um breytingu á
reglugerð um Ríkisútvarp þar aö lút-
andi. Áfram verður þaö aðalreglan að
greiða skal afnotagjald af hverju ein-
stöku sjónvarpstæki eins og verið
hefur. Breytingin hefur þaö í för með
— fyrírtvötæki
sér að undantekning er gerð frá aðal-
reglunni að því er varðar heimili. „Inn-
heimta skal árlegt afnotagjald Ríkisút-
varpsins hjá þeim sem hagnýta sér út-
sendingar þess. Gjald þetta skal greiða
af hverju sjónvarpsviðtæki og vera
mismunandi hátt eftir því hvort tæki er
gert fyrir móttöku sjónvarps í lit eða
eingöngu í svarthvítu. „Þó skal aðeins
greiða afnotagjald af einu sjónvarps-
tæki á hverju heimili eins og það er
skýrgreint í 1. tl. 1. mgr. 25. gr. reglu-
geröar þessarar.” Svohljóöandi er 1.
mgr. 24 greinar reglugerðar um Ríkis-
útvarp nr. 260/1972 eftir breytinguna.
Einnig er tekið fram að sjúkrahús,
vistheimili og slíkar stofnanir skuli
greiða hálft afnotagjald af hverju
aukasjónvarpstæki í samfelldri notkun
í eigu viðkomandi stofnunar. Vistmenn
dvalar- og elliheimila með eigin viö-
tæki í notkun þar greiði ekki útvarps-
gjöldaf þeim.
Afnotagjald af svarthvítu sjónvarps-
tæki í ár var 2.378 krónur og af lit-
sjónvarpstæki 2.999 krónur. Afnota-
gjald af útvarpsviötæki var 750 krónur
árið 1983.
-ÞG
Orkunotkun
heimilistækja
Hér birtum viö yfirlit yfir áætlaöa
orkunotkun heimilistækja. Þetta
yfirlit er reyndar byggt á niður-
stöðum frá Danmörku en gera má
ráð fyrir að þær séu ekki svo ýkja
f rábrugðnar hugsanlegum niðurstöð-
umhérlendis.
Ut frá rafmagnsnotkuninni höfum
við síðan reiknað út kostnað fyrir
hvert tæki miðað viö núgildandi verð
á rafmagni til almennings. Hver
kílóvattstund (kWh) kostar nú 3,85
kr. til almennings hér á landi.
Yfirlitið sýnir okkur einungis áætl-
aöa notkun sem getur að sjálfsögðu
verið nokkuð misjöfn hjá hverjum og
einstökum notanda.
Ef við tökum út úr yfirlitinu þau
tæki sem eru hvað algengust á
heimilum og lítum nánar á hvaö
kostar að hafa þessi tæki á ári verður
útkomanþessi:
Eldavél 2217,60 kr.
Eldavél, ofn 646,80 kr.
Frystikista 2772,00 kr.
Hrærivél 92,40 kr.
Sjónvarp 646,80kr.
Utvarp 184,80 kr.
Kæliskápur 2079,00 kr.
Ryksuga 92,40 kr.
Uppþvottavél 5128,20 kr.
Þvottavél 4158,00 kr.
Samtals 18018,00 kr.
-APH
Upplýsingaseðlar til samanburðar
á heimiliskostnaði fyrir septem-
bermánuð streyma inn þessa
dagana. Mánaðaruppgjör á næsta
leiti, en þangað til það birtist er ekki
úr vegi að heyra raddir neytenda í
bréfum sem berast með seðlum.
Einum seðli, frá Norðurlandi,
fylgdi stutt bréf og þar segir meöal
annars: .. .á septemberseðlinum
voru nokkuð háar tölur, sérstaklega
fyrir okkur sem höfum meðaltekjur.
En inn í liðnum „annað” er hluti af
greiðslu fyrir utanlandsferð, hluti
greiöslunnar fyrir ferðina var einnig
í ágúst.
Frystikista heimilisins er orðin full
af vetrarforða svo reikna má með að
matarreikningar næstu tvo til þrjá
mánuði verði töluvert lægri. Það er
ósköp notalegt að eiga fuila kistu af
mat, þó að dýrt sé að fylla hana
hverjusinni.. .
Á þessum upplýsingaseðli frá
norðlenska heimilinu er matar-
reikningur fyrir september kr.
13.340,- og fjórir á því heimili. Meðal-
tal er því kr. 3335,-1 annaö hafa fariö
tæpar 65 þúsund krónur hjá fjöl-
skyldunni í september og meðaltal af
þeim kostnaði er 16.158,- krónur.
Heildarútgjöld þessarar norðlensku,
fjögurra manna fjölskyldu eru því
tæpar 78 þúsund krónur yfir mánuð-
inn, eða um 19.500 krónur á mann.
Eins og kemur fram í bréfinu hefur
vetrarforðinn í kistunni kostað sitt og
sumarieyfisferö til útlanda einnig.
Full frystikista af vetrarforða hækkar matarreikning norðlensku fjöiskyid-
unnar i september en kemur tii góða siöar.
DV-mynd E.Ó.
Áætluð notkun heimilistækja
Tœki Afl IW) Meðalnotkunartimi Meðalnotkun Verð á mán. Verð á ári
Brauðrist 850 10 min./dag 4 kWh/mán. 15,00 kr./mán. 184,80 kr./ári
Eldavél 1600 1 klst./dag 48 kWh/mán. 184,00 kr./mán. 2217,60 kr./ári
Eldavél, ofn 1750 2 klst./viku 14 kWh/mán. 53,00 kr./mán. 646,80 kr./ári
Frystikista 400 5 klst./dag 60 kWh/mán. 231,00 kr./mán. 2772,00 kr./ári
Glópera 60 5 klst/viku 9 kWh/mán. 34,65 kr./mán. 415,80 kr./ári
Hárþurrka 400 1 klst./viku 2 kWh/mán. 7,70 kr./mán. 92,40 kr./ári
Hitapúði 80 1 klst./dag 2 kWh/mán. 7,70 kr./mán. 92,40 kr./ári
Hitateppi 60 1 klst./dag 2 kWh/mán. 7,70 kr./mán. 92,40 kr./ári
Hraðsuðuketill 1800 10 min./dag 9kWh/mán. 34,65 kr./mán. 415,80 kr./ári
Hrærivéi 425 1 klst./viku 2 kWh/mán. 7,70 kr./mán. 92,40 kr./ári
Kæliskápur 300 5 klst./dag 45 kWh/mán. 173,25 kr./mán. 2079,00 kr./ári
Ryksuga 250 2 klst./viku 2 kWh/mán. 7,70 kr./mán. 92,40 kr. /ári
Saumavél 75 3 kl t./viku 1 kWh/mán. 3,85kr./mán. 46,20 kr./ári
Sjónvarp 150 3 klst./dag 14 kWh/mán. 53,90 kr./mán. 646,80 kr./ári
Straujárn 1000 3 klst./viku 12 kWh/mán. 46,20 kr./mán. 554,40 kr./ári
Uppþvottavél 1850 2 klst./dag 111 kWh/mán. 427,35 kr./mán. 5128,20 kr./ári
Útvarp 40 3 klst./dag 4 kWh/mán. 15,40 kr./mán. 184,80 kr./ári
Vifta 40 3 klst./dag 4 kWh/mán. 15,40 kr./mán. 184,80 kr./ári
Þvottavél 3750 6 klst./viku 90 kWh/mán. 346,50 kr./mán. . 4158,00 kr./ári
Ekki lægsta meðaltalið
Eitt bréf höfum við hér frá sex
manna fjölskyldu í Reykjavík og þar
stendur. .. ég var að skoða út-
reikninginn hjá ykkur yfir meðaltal
ágústmánaðar nýlega. Þar er þess
getið að lægsta meðaltal fyrir ágúst-
mánuð hjá sex manna fjölskyldu
væri 1729 krónur. Hjá okkur var
meðaltalið í ágústmánuði 1590
krónur. Eg hef áhyggjur af því að
okkar seðill hafi ekki komið fram,
mig minnir aö ég hafi sent hann í
seinna lagi. En þar sem viö höfum
verið með frá áramótum er
skemmtilegra að ekkert vanti inn
í...
Vonandi les bréfritari þessar línur
því hér gætir nokkurs misskilnings. i
Meðaltal sex manna fjölskyldu í
ágúst var 1729 krónur fyrir mat og
hreinlætisvörur. Það er sú tala sem
við fengum út sem meðaltal frá
öllum sex manna fjölskyldum sem
sendu seðla þann mánuðinn. Ekki
lægsta meðaltaliö. Við sjáum það í
bókum okkar að lægsta meðaltal á
einstakling í sex manna f jölskyldu í
ágúst var 1268 krónur en það hæsta
var 1993 krónur. Við getum fullvissað
bréfritara um aö hans tölur eru
færðar í okkar bókhald, seðlarnir
hafa borist. I bréfinu fylgdu tölur um
meðaltal matarkostnaöar fjölskyld-
unnar síðustu sex mánuöi og eru þær
samhljóöa okkar.
Þegar viö birtum mánaðarlega
meðaltalstölur einstaklinga eftir
fjölskyldustærðum eru það ekki
lægstu tölurnar heldur meðaltal frá
öllum. Ef tvær sex manna fjöl-
skyldur sendu inn upplýsingaseðla
og á öðrum væri meðaltal á einstakl-
ing í matarkostnaði eitt þúsund
krónur og frá hinum tvö þúsund
krónur þá væri meðaltalið fimmtán
hundruð krónur.
Vonandi verða þessar línur til að
skýra málið, við höfum reyndar farið
inn á þessar brautir áður, því við
verðum oft vör við misskilning varð-
andi meðaltalstölurnar í heimilis-
bókhaldinu okkar.
Svo viljum við leggja áherslu á að
bréf eru afar kærkomin með
upplýsingaseölunum. Undanfarið
hafa margir nýir þátttakendur lagt
til upplýsingaseðla í heimilisbók-
haldið og fögnum við því. En mikið
vill meira, því hvetjum við sem
flesta til að senda okkur tölur um
búreksturinn.
-ÞG
SIÐUSTU
FORVÖD AÐ
STILLA
LJÓSIN
Nú fer hver að verða síðastur að
stilla ljósabúnaö bifreiða. Fresturinn
til að gera það rennur út nú í dag.
Það ætti ekki að vera þörf á því að
segja ökumönnum hversu mikilvægt
atriði þetta er. Rétt stillt ljós auka ekki
einungis öryggi ökumannsins heldur
einnig þeirra sem á vegi þeirra verða.
Þetta á við þá sem eru akandi en ekki
síðurþásemerugangandi. -APH
NÚ líöur mér veTTj
Ljósaskoöun