Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1983, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1983, Blaðsíða 12
12 DV. MÁNUDAGUR 31. OKTOBER1983. .....1------- Frjáist.óháð dagblað DV Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIDLUN HF. Stjómarformaðurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjórí: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjó^ar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjóm: SlOUMÚLA 12—14. SÍMI 86A11. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir,smáauglýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjómar: 84611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA12. P rentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuöi 250 kr. Verð í lausasöíu 22 kr. I Helgarblað 25 kr. Einokunarhugmyndir Viðbrögð samtaka iðnaðarmanna og sjómanna gagn- vart ráðabrugginu um miðstýringu eggjaframleiðslu og verðlagningu hennar eru lofsverð. Bæði þessi samtök hafa hótað að draga fulltrúa sína út úr sexmannanefnd- inni verði heildsala eggjaframleiðenda að veruleika. Neytendasamtökin hafa og látið málið til sín taka og fullyrða eftir landbúnaðarráðherra, að einokuninni verði því aðeins hrint í framkvæmd, að samstaða náist um mál- ið. Neytendasamtökin munu láta á það reyna, hvort ráð- herrann standi við orð sín. Helst er von til þess, að stjórn- málamaðurinn í ráðherrastólnum láti segjast, því hann þarf jú að leita til neytenda um stuðning í kosningum. Framleiðsluráð landbúnaðarins og einokunarsinnarnir í eggjaframleiðslunni þurfa ekki á slíku umboði að halda. Kerfiskarlarnir fara sínu fram, án þess að spyrja kóng eða prest. Þeir telja sig óhulta í dúnmjúkum valdastólum úreltrar löggjafar. Nú er upplýst að ekki á að staðnæmast við eggin ein. Uppi eru ráðagerðir um að innleiða samskonar einokunarstarfsemi að því er varðar svína- og kjúklinga- kjötsframleiðslu. Þegar liggja fyrir hugmyndir um reglugerðir sem fela í sér miðstýringu á verðlagningu þessara neysluvara. Markaðurinn á ekki lengur að ráða. Nú skal setja bú- mark, eins og það er kallað á fínu máli, sem felur það í sér, að verðlagningu skal hagað í samræmi við staðlaðar hugmyndir framleiðsluráðsins og þriggja manna nefndar á þess vegum. Nú veröa það sem sagt ekki hagsmunir neytenda og eftirspurn eftir vörunni, sem ráða ferðinni, heldur ákvörðun miðstýrðrar nefndar. Og hún á jafnframt að hafa vald til þess að úthluta framleiðslufyrirtækjum eftir geðþótta og þá sérstaklega til þeirra, „sem hafa óhag- kvæma stærð bús miðað við f járfestingu og mannafla”. Allt er þetta mál hið furðulegasta. Á tímum aukins frjálsræðis í verslun, fjölbreyttari markaðar og bættrar þjónustu við neytendur ríkja þau forneskjulegu viðhorf hér á landi, að kjöt- og eggjavörur verði háðar verðlagn- ingu þriggja manna nefndar og einokun sett á fót. Það er jafnvel gert ráð fyrir, að framleiðendur geti stjórnað því, hvort framboð verði lítið eða mikið, út frá sínum eigin hagsmunum! Eftirspurn neytenda skiptir þar engu máli. Islendingar verða að stöðva þessar ráðagerðir. Einokuninni skal afstýrt. Neytendur verða að setja hnef- ann í borðið og mótmæla þessu brölti. Grundvallarreglan á að vera sú, að verðlag fari eftir framboði og eftirspurn og framleiðendur nauðsynlegra neysluvara séu frjálsir af því, og raunar þvingaðir til þess að haga rekstri sínum svo, að þeir geti boðið upp á sem ódýrasta vöru. Framleiðsluráð landbúnaðarins er voldug stofnun og vel vernduð í kerfinu. En hún stjórnar ekki þessu landi. Til þess er ríkisstjórn og alþingi. Því verður að treysta, að stjórnmálamenn á seinni hluta tuttugustu aldar séu meðvitaðir um hlutverk sitt og láti ekki einokunarhug- myndir yfir landslýð ganga. Sem betur fer er það nefni- lega svo, að neytendur og kjósendur eru sama fólkið. Á þá staðreynd verður að minna svo skiljist áður en skellur í tönnum. ebs Neytendur standa saman —athugasemd við leiðara DV Mörgum áhugamönnum um sjálf- sögð réttindi neytenda og góöa viðskiptahætti hefur að vonum blöskraö ýmislegt sem komiö hefur fram að undanförnu varðandi afgreiðslutima og sölu á land- búnaðarafurðum. Einn þessara manna, Jónas Kristjánsson, ritstjórí DV, hellir úr skálum reiði sinnar vegna þessa í leiðara þ. 23. október sl. Þau atriði sem nefnd eru í leiðar- anum sem dæmi um óeðlileg viðskipti og virðingarleysi ýmissa framleiðenda og söluaðila fyrir neytendum eru rétt. Það er hins vegar rangt sem ritstjórinn heldur fram í leiðaranum aö Neytenda- samtökin hafi ekki sinnt þessum málum og umfjöllun hans um Neytendasamtökin í því sambandi benda til þess að leiðarinn sé skrif- aöur af nokkurrí fljótfæmi, án þess að málin hafi verið skoðuö nægilega vel. Þessi skrif ritstjórans eru í raun til þess fallin aö skaða samtök neyt- enda og vinna gegn möguleikum þeirra á því að koma þeim málum til betri vegar sem bæði ritstjórinn og Neytendasamtökin telja óhæfu í viðskiptum siðaðra manna. Hvað hafa Neytenda- samtökin gert? Af þessu tilefni er eðlilegt að skoða hvað Neytendasamtökin hafa gert í þeim málum, sem ritstjórinn nefnir sérstaklega í leiðara sínum og heldur fram aö samtökin hafi ekki sinnt. 1. Afgrejðslutími verslana. Neyt- endasamtökin hafa barist fyrir rýmri afgreiðslutíma verslana á höfuðborgarsvæðinu og nú hillir undir það að veruleg breyting verði í þessu efni til hagsbóta fyrir neytendur í framhaldi af þeim viðræðufundum sem nú fara fram með Kaupmannasamtökunum, VR og Neytendasamtökunum. Vonandi í samræmi við niðurstöð- ur könnunar samtakanna á vilja neytenda í þessu máli en sú könn- un var gerð í vor. Það skiptir í þessu sambandi sem öðru ekki öllu máli hverjum er helst að þakka heldur hitt aö góðir hlutir náiframaðganga. 2. Skemmda dilkakjtítið. Ritstjórinn heldur því fram aö Neytendasam- tökin hafi látið sér nægja að mót- mæla lítillega í þessu máli en síöan lagt niöur rófuna eins og ævinlega. Sannleikurinn er hins vegar sá að Neytendasamtökin hafa ekki lagt niður rófuna í þessu máli heldur krafist opinberrar rannsóknar á málinu. Boltinn er í raun hjá landbúnaðarráðherra á þessari stundu og spurning er um hvort hann fer að tilmælum sam- takanna um skipun rannsóknar- nefndar eöa ekki. 3. Unnar kjötvörur. Nýlega birti Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis könnun sem félagið lét gera á unnum kjötvörum, þar kom í ljós að gerlafjöldi var of mikill í meira en helmingi sýna og þær því ekki söluhæfar. Það skýtur nokkuð skökku við að saka Neytendasamtökin um aðgeröar- leysi vegna máls sem þau hafa algerlega unnið og nýlega kynnt niðurstöður í. 4. Því er haldiö fram að Neytenda- samtökin hafi ekki sagt margt, þegar „forhituð neyslumjólk reyndist full af rotnunargerlum og lón Magnússon fúkkalyfjum” eins og ritstjórinn orðar það. I þessu tilviki er farið með rangt mál, það voru einmitt Neytendasamtökin sem bentu á það fyrir nokkrum árum, þegar súr mjólk var seld í Reykjavík, að ástand mjólkurinnar væri óviðun- andi, ekki væri farið eftir reglum hvað snerti forhitun og gerlafjölda í mjólk þrátt fyrir það að kröfur hér á landi í þessu e&ii væru minni en í nágrannalöndum okkar. Nokkru áður en þetta tilvik kom upp höfðu Neytendasamtökin ítrekað bent á þessar misfellur í mjólkurvinnslu og krafist breyt- inga. 5. Eggjaeinokun. Það er alveg einstakt að ritstjóri DV skuli halda því fram að Neytendasam- tökin hafi ekki tjáð sig mikið um þá fyrirætlun meirihluta eggja- framleiðenda að koma á eggja- einokunarsölu. Staðreynd málsins er sú að sl. vor og sumar unnu Neytendasamtökin af alefli gegn þessum áformum, gáfu frá sér ýmsar yfirlýsingar af því tilefni og einstakir stjómarmenn fylgdu því síðan eftir með blaðaskrifum. Vegna baráttu Neytendasamtak- anna svo og ýmissa annarra tókst að vinna þá orrustu. Stjórnendur landbúnaðarmála treystu sér ekki til þess að koma eggjaeinokunar- sölu á þrátt fyrir það að öll undir- búningsvinna í málinu hefði verið framkvæmd. Þetta var vissulega merkur áfangi fyrir Neytenda- samtökin því að í fyrsta skipti hopuðu þessi samtök framleið- enda. Nú er komið í ljós að þessir aðilar eru samt ekki algerlega af baki dottnir því nú á aö læða þessu kerfi framleiðslustjórnunar á eggjum inn um bakdyrnar, eins og komið hefur fram í fréttum, með því að veita rúmum 5 milljónum til að koma upp eggjapökkunar- og dreifingarstöð eins og það er kallaö. Við forystumenn Neytendasamtakanna mótmælt- um þessu við landbúnaðarráö- herra en hann tjáði okkur við þaö tækifæri að þetta yrði ekki gert nema full samstaöa yrði um málið innan samtaka eggjaframleið- enda. Þar sem það liggur fyrir að slik samstaða er ekki fyrir hendi er útilokað annaö en álíta að þessari orrustu hafi einokunar- sinnarnir einnig tapað þó of snemmt sé að fullyrða það á þessustigi. Þau 5 efnisatriði, sem ég nú hef rakið, eru þau atriði sem leiðara- höfundi fannst ástæöa til að hnýta í Neytendasamtökin fyrir. Það má margt að Neytendasamtökunum finna en þau verða varla sökuð um aðgerðarleysi eða þögn varðandi þetta eöa málefni landbúnaöarins. Þvert á móti hafa ýmsir sakaö Neyt- endasamtökin um að þau væru í striði við framleiðendur á búvörum. Erlendis grípa stjórnvöld inn í, hér slá þau skjaldborg um ósómann Vandamál Neytendasamtakanna eru i raun fyrst og fremst þau aö á þaö skortir aö neytendur séu nægi- lega virkir og reiðubúnir til að efla samtök sin, en einnig virðingarleysi og takmarkaður skilningur stjóm- valda á neytendastarfi og góðum viðskiptaháttum. A þetta bendir rit- stjóri DV réttilega, aö vísu undir öðrum formerkjum, í leiöaranum. Eg leyfi mér að fullyrða að á hinum Norðuriöndunum, Bretlandi, Þýska- landi eða Bandaríkjunum, hefðu stjómvöld gengið fram í því að koma málum eins og þeim sem rakin em hér að framan í skikkanlegt horf og jafnvel refsað þeim framleiðendum og söluaðilum sem hlut hefðu átt í því að selja gallaða vöm. Hér bregðast stjórnvöld öðmvísi viö. Svo virðist sem reynt sé af þeirra hálfu að slá skjaldborg um ósómann til að neytendur fái ekki eölilega yfirsýn. Neytendasamtökin hafa hvaö eftir annaö bent á það, sem höfuðvanda- mál í þessu sambandi, aö sterk staöa framleiöenda í stjórnkerfinu hindri aö eðlilegar gæðareglur séu settar og tillit sé tekið til þarfa og sjónarmiða neytandans. Neytendasmtökin hér em að þessu leyti að berjast við allt aörar aðstæður en í nágrannalönd- um. Komist neytendasamtök þar að því að vömr uppfylli ekki tilskildar gæðakröfur gripa stjómvöld inn í. Hér þurfa Neytendasamtökin stöðugt að nudda í sömu sjálfsögðu málunum og stjómvöld skella skolla- eyrum við. Það er því eölilegt að áhugamönnum um neytendamál finnist hægt miða, enda ekki annars að vænta þegar könnun á lifnaðar- háttum æðarfugls fær meiri styrk frá rikinu en neytendastarf og samtök framleiöenda búvöm rúmlega hundrað sinnum meira framlag úr ríkissjóði en samtök neytenda ef miðaö er við fjárlagafrumvarp þessarar ríkisstjóm. Gagnrýni á fölskum forsendum Dugmiklir blaðamenn mættu gjaman gefa þessum málum meiri gaum en hingaö til. DV verður ekki sakað um að hafa ekki sinnt mál- efnum neytenda. Bæði Jónas Kristjánsson, ritstjóri blaðsins, og blaðið hafa tekið myndariega á þeim málum og haft vandaða neytenda- síðu sem mætti vera öðrum blöðurn til eftirbreytni. Áhugafólk um neytendamál verður að standa saman um að vinna aö þeim málum þannig að betra skipulagi verði komið á. Ég vona að Neytendasam- tökin og DV geti átt svipaða samleiö og hingað til og á sama tíma og ég tel eðlilegt aö samtökin séu gagnrýnd sem og aðrir fyrir það sem þau gera eða gera ekki þá vænti ég þess aö gagnrýnin verði ekki aftur á þann veg sem raun varð á í leiöaranum um daginn, að Neytendasamtökin séu gagnrýnd fyrir að gera ekki ein- mitt það sem þau hafa verið að gera. Jón Magnússon formaður Neytendasamtakanna • . .enda ekki annars að vænta þegar könnun á lifnaðarháttum æðarfugls fær meiri styrk frá ríkinu en neytendastarf.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.