Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1983, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1983, Blaðsíða 23
DV. MANUDAGUR 31. OKTOBER1983. 23 íþróttir íþróttir Iþróttir íþróttir Mikil stemmning í Newcastle Kevin Keegan og félagar hans hafa tekið stefnuna á 1. deildina. Unnu stórsigur, 5:0, á Man. City Tony Woodcock — hefur skorað tíu mörk i 1. deild. „Það er stórkostlegt að vera ó St. James Park þegar vel gengur og stemmningln meðal áhorfenda hvergl melri en einmitt hér í Newcastle á slík- um dögum,” sagði Peter Jones, frétta- maður B.B.C., er lýsti viðureign New- castle og Manchester City, tveggja af efstu liðum 2. deildar. Það var mikil stemmning meðal 33.588 áhorfenda er mættu til að fylgj- ast með viðureign liöanna á St. James Park og minnti þetta óneitanlega á gömlu góðu dagana þegar Newcastle var stórveldi á Englandi á þriðja og fjóröa áratugnum. Stefnan virðist nú hafa verið tekin á að endurheimta sætið sem liðið missti í 1. deildinni fyrir fimm árum síðan og þar með fyrsta skrefið til aö vekja aftur til lífsins þennan fyrrum fallna risa enskrar knattspymu. Það var Peter Beardsley sem var hetja Newcastle i þessum leik, hann skoraði þrennu fyrir lið sitt. Beardsley var nýlega keyptur frá Vancouver Whitecaps í Kanada, en hann hafði áður leikið með Carlisle og Manchester United. Náði samt aldrei að komast í aðallið Manchester United. Newcastle hafði yfirburði á öllum sviðum kriatt- spymunnar i leiknum gegn Manchest- er City og lék sinn langbesta leik á keppnistimabilinu. Strax á 8. minútu kom fyrsta markiö og var þaö Beards- ley sem það skoraði eftir frábæran ein- leik Kevin Keegan en Keegan átti einnig mjög góðan leik með Newcastle og er fátt sem bendir til þess að hann „Tony Woodcock er stórhættulegur" inni ívítateig, sagði Gordon Cowans um Woodcock, sem skoraði fimm mörk gegn Aston Villa — Tony Woodcock er afar hættuleg- ur leikmaður Innl í vítatelg þar sem hann hreinlega þefar uppi marktæki- færin og nýtlr þau. Hann er svipaður og Jlmmy Greaves þegar sá gamli kappi var upp á sitt besta, sagði enski landsliðsmaðurinn Gordon Cowans hjá Aston Villa, sem var á meðal áhorf- enda á Villa Park, þar sem Arsenal vann góðan sigur, 6—2. Woodcock skoraði fimm af mörkum Arsenal. — Þetta var hreint stórkostlegt og í fyrsta skipti sem ég skora fimm mörk í leik, sagði Woodcock, sem sagöi að fyrsta mark sitt hefði verið það besta. — Þá lékum við Graham Rix skemmti- lega í gegnum vöm Aston Villa og fékk ég það hlutverk aö reka endahnútinn á þann samleik, sagði Woodcock. Woodcock snuði að leikur Arsenal yrði nú meira ógnandi með hverjum leik. — Chariie Nicholas var óheppinn að skora ekki eitt til tvö mörk. Hann átti skot í þverslá og þá varði Nigel Spink tvisvar glæsilega skot frá hon- um, sagði Woodcock. Og hann bætti við að ef Arsenal héldi áfram að leika eins og félagið hefur gert að undanfömu þá yrði það með í baráttunni um Eng- landsmeistaratitilinn. -SOS þurfi að yfirgefa félagið. Hann lét þó koma fram í nýjum samningi er hann undirritaði fyrir keppnistimabilið að ef Newcastle yrði ekki í toppbaráttunni um áramót mundi hann fara til nýs fé- lags og vera laus allra mála við sitt fyrra lið. Það var svo Keegan sjálfur sem bætti öðru markinu við á 39. minútu og staðan 2—0 í hálfleik. I upp- hafi síðari hálfleiks bætti Beardsley þriðja markinu við fyrir Newcastle eftir að Waddle hafði brotist af harö- fylgi upp að endamörkum og rennt knettinum á Beardsley. Eftir þetta mark gafst Manchester City endan- lega upp og varö leikurinn einvigi á milli leikmanna Newcastle og Alex Williams markvarðar City sem með glæsilegri markvörslu sinni kom i veg fyrir algjört hrun liðs síns. Hann varði þrívegis frábærlega frá Waddle, Ryan og Keegan áður en Beardsley skoraöi fjórða markið og sitt þriöja í leiknum og kom það eftlr skemmtilega leik- fléttu McDermott og Waddle sem splundraði vöm City. Chris Waddle innsiglaði síðan stórsigur heimaliðsins með fimmta markinu tveim mínútum Woodcock markahæstur Þeir leíkmenn sem eru nú markhæstlr í ensku 1. deildarkeppnlnni eru: Woodeock, Arsenal 10 Ian Rush, Liverpool 9 Mariner, Ipswicb 9 Stanrod, Q. P. R. 7 Fjórir leikmenn hafa skoraó sex mörk — það eru Archibald, Tottenham, Stapleton, Man. Utd., Swindlehurst, West Ham, og John Barnes, Watford. -SOS. fyrir ieikslok með miklum þrumufleyg sem Wiiiiams átti ekki möguleika á að verja. Sem fyrr greindi voru yfirburðir Newcastle algerir í leiknum og Willi- ams markvörður City kom í veg fyrir enn ljótari tölur. Asa Hartford og Tommy Caton voru bókaðir af dómara leiksins fyrir grófan leik. Caton fyrir ljótt brot á Keegan. Liðin sem léku í Newcastle voru þannig skipuð: Newcastle: Thomas. Anderson, Ryan, McCreery, Clarke Carney, Keegan, McDermott, Beardsley, Wharton, Waddle. Manchester City: Willlams, Ranson, May, McNab, Walsh, Caton, Klnsey, Baker, Parlane, Power, Tolmle. -SE. Toshack er hættur hjá Swansea John Toshack, framkvæmdastjórl Swansea, sagði starfi sinu lausu á laugar- dagsmorguninn, rétt áður en Swansea lék gegn Blackburn og tapaði 0—1. Swansea á nú í miklum peningavandræðum og skuldar tvær milljónir punda og eiga sumir leikmanna félagsins inni laun sín. Swansea hefur ekki gengið vel að undanförnu og vermir botn 2. deildar. Þess má geta að Toshack tók við félaginu í 4. deild fyrir nokkrum árum og undir stjórn hans vann það sér 1. deildarsæti, sem félagið missti svo sl. keppnistímabil. Þá má geta þess að Tottenham var sektað um 10 þús. pund fyrir helgina þcgar upp kom að félagið hafði borgað Argentinumönnunum Ricardo Villa og Osvaldo Ardiles peninga undir borðið sem ekki voru gefnir upp tll skatts. -SOS. uftmlu Barnaúlpa frá Don Cano Beawer. Nr.6-12. Kr. 1.785. 4 litir. Grindur: 8 tegundir. Spaðar. Gúmmi: 6 tegundir — lim, net og uppistöður. Skór nr. 22,5 - 26 (34 -40). Kúlur 1 — 2 og 3 stjörnu. Hulstur, 4 tegundir. Landsins mesta úrval. J; Ungiingaúlpa fró Don Cano Aspen. Nr. XS — S — M. Kr. 2.465. 3 litir. Liðsbúningar: Liverpool, Manch. Utd., Tottenham, stungart, Arsenal, West Ham og fleiri lið. Merkjum og útvegum búninga fyrir bekkjarlið — firmalið o.fl. Speedo sundfatnaður. Badmintonvörur í úrvali. Boltar, fótboltar nr. 4 og 5, handboltar, mini — dömu og herra körfuboltar, leður og nælon, nr. 5,6, 7, blakboltar. fv Unglinga- og fulloröinsúlpa, Scott. Nr. S — M — L. Kr. 2.975. 3 litir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.