Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1983, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1983, Side 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. NOVEMBER1983. 11 „Anægðar að fylgja FR AMSÓKN ARSTEFNU NNI” — segir Sigrún Sturludóttir, formaður Landssamtaka framsóknarkvenna Framsóknarflokkurinn hefur veriö lítt upp á kvenhöndina, svo mjög að konur innan flokksins hafa hótaö aö fara í sérframboð verði hlutur þeirra ekki réttur. Sigrún Sturludóttir, for- maður Landssamtaka framsóknar- kvenna, var spurð hvort það væri erfitt að vera kona í Framsóknar- flokknum. „Það er kannski ekki erfitt,” sagði hún, „en fáar konur hafa komist áfram innan flokksins.” Sigrún sagði að Rannveig Þor- steinsdóttir hefði fyrst framsóknar- kvenna verið kjörin á þing 1949 og kominn væri timi til að fá aðra konu úr Framsóknarflokknum á Alþingi. — En er bara ekki nærtækast að skiptaumflokk? „Nei, þaö kemur ekki til greina. Þetta er sú stefna, sem við höfum valið og við höfum ákveðið að fylgja henni.” — Þið eruð þá ánægðar þrátt fyrir allt? „Við erum ánægðar að fylgja framsóknarstefnunni. ” Sigrún er Súgfirðingur að uppruna og faðir hennar var oddviti og hrepp- stjóri. Hún komst því ekki hjá því að fylgjast vel með sveitarstjórnarmál- um. Ekki er hún þó komin af fram- sóknarfólki. „Pabbi var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn á Vestf jörðum en ég hef alltaf fylgt Framsóknarflokkn- um frá því að ég fékk kosningarétt.” — En hvers vegna að hafa afskipti af pólitík? „Það vakti fyrir mér að vinna gagn innan mins flokks.” — Hefurþértekistþað? „Eg vona að ég hafi gert gagn hjá kvenfélaginu. Mér finnst ég hafa skiliö við þaö i góðu standi. Eg held að ég hafi reynslu, sem þær yngri hafa ekki, en þær hafa áræðið. Og það er gott að sameina þetta tvennt.” Sigrún hefur starfað hjá Póstgíró- stofunni í sex ár, þar sem hún er gjaldkeri. Hún á mann, Þórhall Hall- dórsson verkstjóra hjá Reykjavíkur- borg, og fjórar dætur. Auk starfa sinna innan Framsóknarflokksins, er hún í stjóm Póstmannafélagsins, Bandalags kvenna í Reykjavík, og hefur starfaö í átthagafélagi Súgfirð- inga. Hún var spurð hvernig henni tækist að samræma öll þessi störf. „Mér tekst það furðulega vel,” sagði hún. „Dæturnar eru orðnar uppkomnar, svo ég hef ágætan tíma. Og það er ekki illa séð heima þó að ég mæti ekki til að elda kvöldmatinn. Það er alltaf meira en nóg að gera og mér finnst það ágætt,” sagði Sigrún Sturludóttir. -GB JohnTravolta Saturday Night Fever - Það var þá Staying Alive - Það er núna DANSSKOLI Heiðars Ástvaldssonar Brautarholti 4 - Drafnarfelli 4 10 tíma námskeið Fyrsti tíminn verður sunnudaginn 13. nóv. Innritun frá kl. 1-6, f símum 38126 og 39551 dagana 7.-12. nóvember. Kvennaskólmn í Reykjavík Umsóknarfrestur um skólavist eftir áramót er til 18. nóv. nk. SKÓLASTJÖRI. SPEGILL, SPEGILL HERM ÞÚ MÉR.... Fyrir konur á öllum aldri. Erum ad byrja á okkar vinsælu ,,make up” námskeidum. Kennt verdur á laugardögum frá kl. 2—5. Notið þetta gullna tœkifœri og njótid kvöldsins vel snyrtar. Hárgreidslu- og snyrtistofan PLYMOUTH DUSTER 1970. Einstaklega fallegur eldri bíll, nýleg sumar- og vetrardekk, ekinn aðeins 80.000 mílur, blásanseraður. JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 AÐVENTUSKÁLAR ÚR KRISTAL Verðkr. 598,- póstsendum. Bankastræti 10 (á horni Ingólfsstrætis).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.