Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Blaðsíða 4
DV. MIÐVKUDAGUR16. NOVEMBER1983.
Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður:
„Sovétmenn eiga ekki kost
á öðru en að skjóta niður
B-52 véíar yfir íslandi”
— umræður um ratsjárstöðvar á Alþingi
„Eru alþýðubandalagsmenn að
búa sig undir flokksþing sitt nú á
næstu dögum — eða hverju sætir
þessi gífurlegi áhugi þeirra á að sýna
samstööu um vamarmálin á þingi?"
spurði Ami Gunnarsson, Alþýðu-
flokki. Mikil umræða átti sér stað í
neöri deild í gær varöandi fyrirspurn
Steingríms J. Sigfússonar, Alþýðu-
bandalagi, um hvort það væri ætlun
stjórnvalda að komiö yröi upp rat-
sjárstöðvum á Norðausturlandi og
Vestfjörðum.
Steingrímur J. Sigfússon spurði ut-
anríkisráðherra hvaða áform væru
uppi varöandi þessi „hernaðarmann-
virki”, hvers eðlis þau væru og á
hvem hátt þau tengdust „hemaðar-
vígneti Bandaríkjamanna”.
Þá sagði Steingrímur J. Sigfússon
jafnframt aö hann hefði upplýsingar
um æfingaflug bandarískra B-52
sprengjuflugvéla á Noröur-Atlants-
hafi sem hann sagði vera mikla ögr-
un við Sovétríkin þar sem þær gætu
boriö meðaldræg kjarnorkuvopn.
Sagöi þingmaöurinn að vegna slíks
flugs gæti skapast átakapunktur í ís-
lenskri lofthelgi þar sem Sovétmenn
„eiga þann kost einan að skjóta B-52
vélarnarniður”.
Utanríkisráðherra sagði að engin
formleg beiðni um uppsetningu
slíkra ratsjárstööva hefði enn komiö
fram. Hins vegar hefðu átt sér stað
viðræður um slíkt bæði innan utan-
ríkisráðuneytisins og við sendiherra
Bandaríkjanna hér á landi og við
yfirmann varnarliösins sem sýnt
hefðu áhuga á að slikum stöövum
yrði komið upp. Þá sagði Geir Hall-
grímsson að búið væri aö skipa mann
í að gera rannsókn á hvemig slíkar
ratsjárstöövar kæmu aö notum. En
lagöar voru niöur ratsjárstöðvar á
Langanesi og í Aðalvík sem komið
var upp eftir stríð. Þá eru tvær rat-
sjárstöövar enn á landinu, í Sand-
gerði og á Stokksnesi. Sagöi Geir
Hallgrímsson aö ef úr þessum fram-
kvæmdum yrði kæmi mjög til greina
að hluti starfsmanna væm íslend-
ingar. Taldi Geir Hallgrímsson rangt
að kalla sh'kar ratsjárstöðvar
„hernaðarmannvirki” en þaö væri
nauösyn okkar og skylda að fylgjast
með umferð í kringum landið.
Sagði utanríkisráöherra jafnframt
aö honum fyndist hernaðarhugur
Steingríms J. Sigfússonar óhugnan-
legur varöandi orð þingmannsins um
að Sovétmenn sæju sig tilneydda aö
skjóta niður B-52 flugvélar á Norður-
Atlantshafi. -HÞ
Fjölmenn
„skírnarveisla”
Tvö fiskiskip hafa aö undanförnu
veriö í smíöum fyrir fyrirtækið Samtog
í Vestmannaeyjum í skipasmíðastöð-
inni í Gdansk í Póllandi. Hér er um aö
ræöa 150 lesta báta, annar var sjósett-
ur og gefið nafn í síðasta mánuöi en
hinnnúfyrirviku.
Af tilefninu þótti ekki annað við hæfi
en 9 manna sendinefnd frá Eyjum
héldi utan til Póllands til að vera við-
stödd „skírnina”. I henni áttu sæti full-
trúar eigenda Samtogs en þeir eru ís-
félag Vestmannaeyja, Vinnslustöðin
sf., Fiskiöjan hf. og Fiskimjölsverk-
smiðjan.
Bátamir hlutu nöfnin Gideon VE 104
og Halkion VE 105 en bæði nöfnin eru
þekkt úr útgerðarsögu Vestmanna-
eyja. -EIR
Viðbótarlán á leiðinni
I samræmi við ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar um úthlutun viðbótarlána til
húsbyggjenda hefur veriö ákveðiö að
útborgun lánanna hefjist frá og með 21.
nóvember nk.
Umsækjendum lána verður tilkynnt
um lánveitinguna með bréfi frá Hús-
næöisstofnun ríkisins. Hjá lánadeild
stofnunarinnar hefur verið staöfest að
allir sem vilja og sækja fái 50 prósentin
sín.
Afsalið af bílnum
fannst við húsleit
Einn af mönnunum sem handteknir
voru á mánudagsmorguninn, eftir aö
hafa hótaö ungum sjómanni með hnífi,
til að skrifa afsal fyrir bifreið sinni,
fékk ekki að fara frjáls ferða sinna eft-
ir yfirheyrslurnar.
Atti hann á sér biödóm og var hann
sendur beint í að afplána þessar gömlu
syndir sínar. Þeim sem voru með hon-
um var sleppt eftir yfirheyrslur um
morguninn. Hafði annar þeirra ekkert
haft meö málið aö gera — hvorki hótaö
sjómanninum eða annaö — og bar frá-
sögn hans aö mestu saman við frásögn
’sjómannsins af því sem gerðist um
nóttina.
Hinir tveir báru af sér allar sakir og
vildu ekkert við þetta kannast. Lög-
reglan gerði húsleit í íbúðinni sem
atburðurinn átti sér staö í og fannst hið
umtalaða afsal þar eftir nokkra leit.
-klp
LOÐNU LANDAÐ
Á ESKIFIRÐI
Loðnu var landaö á Eskifirði á
mánudagskvöld í fyrsta sinn frá því í
febrúar 1982. Eldborg HF-13 kom með
1.100 tonn, sem veidd voru norður af
Langanesi.
Landaö var úr skipinu um nóttina og
fram undir morgun. Loðnan fór öll í
bræðslu hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarð-
arhf.
-Emil, Eskifirði.
Fyrstu islensku sérkennurunum fyrir heyrnariausa sem útskrifast hériendis, voru afhent prófskir-
teini síðastliðinn iaugardag. Um var að ræða 16 kennara sem útskrifuðust frá sérkennaradeild
Kennaraháskólans i Stokkhólmi og er þetta i fyrsta sinn sem íslendingar útskrifast frá erlendum há-
skóla hérlendis.
Hér sóst einn hinna nýbökuðu heyrnleysingjakennara, Gunnar Salvarsson, taka við prófskirteininu
úr hendi Monicu Lundström, lektors við Kennaraháskólann í Stokkhólmi. Aðrir á myndinni eru Kerstin
Sedik námsstjóri frá Kennaraháskólanum í Stokkhólmi og ingemar Korsell prorektor við sama skóla.
DV-mynd EÓ.
j dag mælir Pagfari________j dag mælir Dagfari_______idagmælir Dagfari
Natosinnar í grátkór
Miklu hernaðarleyndarmáli var
ljóstrað upp í sjónvarpinu á dögun-
um. Ögmundur Jónasson fréttamað-
ur birtist á skerminum, ábúðarmikill
að vanda, og upplýsti þjóðina um
samsæri hinna voðalegu stríðs-
æsingamanna í Pentagon gegn ís-
lensku þjóðinni. Samkvæmt fréttinni
gekk ráðabruggið út á það að raða
niður skotpöilum í Keflavík fyrir eld-
flaugar sem loka áttu svæðinu allt
frá Grænlandi til Skotlands. Hér er
myndarlega að verki staðið og var
ekki að undra þó margur friðarsinn-
inn og góðborgarinn hrykki illilega
við. Jafnvel velvakandi húsmæður í
vesturbænum misstu málið af skelf-
ingu.
Eldflaugar eru eins og kunnugt er
af heimsfréttum einhver hræðileg-
ustu vopn sem upp hafa verið fundin,
að mati svokallaðra friðarsinna og
áður hefur verið greint frá marser-
andi friðarhreyfingum um alla Evr-
ópu þar sem einmitt eldflaugum hef-
ur verið mótmælt hvað ákafast. Höf-
um við mátt horfa upp á barnmargar
fjölskyldur og einstæðar mæður
leggja á sig fótgangandi mótmæli án
þess þó að fá rönd við reist. Að visu
hafa þessi mótmæli fyrst og fremst
beinst gegn stjórnvöldum á Vestur-
löndum, enda ekki annað að skilja en
mannvonskan og stríðsæðið liggi
hérna megin járntjaldsins. Friðar-
hreyfingar hefur enn ekki varðað
hvað Rússarnir aðhafast og er svo
sem ekki nema von þegar slík og því-
lik slagsíða er komin á vígbúnaðar-
kapphlaupiö að Reagan og Thatcher
og co eru sífellt að ógna sakleysingj-
unum í austri eins og mannýg naut.
Nú er sem sé runnin upp sú stund,
samkvæmt frásögn Ögmundar í
sjónvarpi og Svavars á þingi, að eld-
flaugarnar cru á næsta leiti við
Keflavík.
Þegar betur var að gáð kom að
vísu í ljós að leyniskýrslan frá Penta-
gon var fengin úr Scotsman og
Sunday Times og bandariski sendi-
herrann á tslandi lýsti því yfir að hún
væri marklaust plagg. Eldflaugarn-
ar, sem talað var um, áttu að vera án
kjarnaodda og hér var aðeins um að
ræða eina af nokkur hundruð hug-
myndum sem hugvitsmaður í banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu hafði
sett á blað af því hann hefur ekki haft
annað að gera. Rétt eins og þegar
krakkar leika sér að kubbum.
Ekki var að spyrja af hugrekkinu á
þingi. Þar hljóp hver bláeygur
manndómsmaðurinn á fætur öðrum
upp í pontu til að frábiðja sér þessar
voöalegu eldflaugar og sjálfur utan-
ríkisráðherra gekk fram fyrir
skjöldu til að lýsa yfir því að eld-
flaugar verði aldrei settar upp á ís-
landi.
Nú þarf vart að minna á að íslend-
ingar eru meðlimir í NATO og mikill
meirihluti þingmanna þykjast vera
einlægir stuðningsmenn þeirrar
varnar- og öryggisstefnu sem banda-
lagið hefur rekið. Þar á meðal
þeirrar stefnu að mæta SS-flaugum
Sovétmanna með uppsetningu
kjarnorkueldflauga í Mið-Evrópu. Ef
NATO-sinnar á þingi væru sjálfum
sér samkvæmir hefðu rétt viðbrögð
þeirra verið á þá leið að Iítast vel á
eldflaugavarnir á Norður-Atlants-
hafi og samþykkja umyrðalaust
frekari könnun á snjöUum hugmynd-
um frá Pentagou hvort sem þær birt-
ast i Scotsman eða íslenska
sjónvarpinu.
Eöa hvað eru mennirnir sífeUt að
væla um öryggi og varnir og vonda
kommúnista ef þeir þora síðan ekki
annað en að taka þátt i grátkór
þeirra ögmundar og Svavars þá
loksins minnst er á almennUegar
varnlr?
Sannleikurinn er sá að það virðast
helst íslendingar sjálfir sem stunda
kubbaleik í eldflaugamálum. Eld-
flaugar í Evrópu, þær eru fínar. Eld-
flaugar á íslandi, þær eru hættuleg-
ar.
Dagfari