Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Blaðsíða 5
wof mqva r nm k ai T^rvnrv \fn
DV. MIÐVIKUDAGUR16. NOVEMBER1983.
Norðmenn vilja
ekki missa ís-
landsveiðamar
vegna aflasamdráttar þeirra í Barentshafinu
Utanríkisráöherra og sjávarút-
vegsráöherra eru aö beiöni ríkis-
stjómarinnar að kanna möguleika á
endurskoöun veiöiheimilda útlend-
inga á Islandsmiðum í ljósi aflasam-
dráttar okkar. Er þá væntanlega
veriö aö kanna möguleika á niöur-
skurði eöa niðurfellingu heimild-
anna, en þær eru einhliða uppsegjan-
legar af okkar hálf u meö sex mánaöa
fyrirvara.
Veiöiheimildirnar hafa verið
óbreyttar um árabil og skv. þeim
mega Norömenn veiöa 2000 tonn hér,
þar af um 300 tonn af þorski.
Fréttaritari DV í Osló ræddi í gær
viö Thor Listau, sjávarútvegsráð- k
herra Norðmanna, og sagðist hann
ekkert hafa frétt um hugmyndir um
niöurskurð á kvóta Norömanna viö
Island. Sagöi hann leitt ef til þess
þyrfti aö koma að Norömenn yröu aö
hætta veiöum hér, meö tilliti til þess
aö Norðmenn eru aö skera loðnu- og
þorskveiöar í Barentshafi niður um
helming og liggja undir miklum
þrýstingi frá Rússum aö skera hann
enn meira niður. Því horfa margir
norskir sjómenn fram á verkefna-
skort.
Þar sem Norömenn veiða einhliöa
hér var Thor spurður hvort til greina
kæmi aö viö fengjum aö stunda ein-
hverjar veiðar viö Noreg gegn því aö
þeir fengju áfram aö veiða hér. Sagð-
ist hann vera opinn fyrir viðræðum
um þaö, en ítrekaði aö litiö væri til
skiptanna viö Noreg þessa stundina.
Belgar hafa veiöiheimildir hér upp
á 4.400 tonn, en veiddu aðeins 1.300
tonn í fyrra og verður afli þeirra að
likindum talsvert minni í ár.
Heimildir þeirra eru bundnar við
ákveðin skip sem óöfluga eru aö
ganga úr sér og hefur þeim fækkaö
um helming frá því aö upphaflega
varsamiö.
Færeyingar hafa hins vegar
stærsta kvótann, 17.000 tonn, þar af
sex þúsund tonn af þorski og taka
færeyskir stjórnmálamenn því illa
aö þurfa að draga úr þeim veiðum,
eins og f ram hefur komið í DV.
Samtals eru veiöiheimildir útlend-
inga hér þvi upp á 23.400 tonn eöa
sem nemur ársafla fjögurra til fimm
íslenskra meöaltogara.
Islendingar og Færeyingar hafa
gert gagnkvæma samninga um kol-
munnaveiðar, en þar sem Fær-
eyingar sækja svo mikið af öörum
afla sinum á fjarlæg mið hafa þeir
ekki svigrúm til aö semja um gagn-
kvæmar veiðar á öörum tegundum.
-JEG, Osló/-GS.
Steinsteypusaga íslands væntanleg
Vetrarstarf Steinsteypufélags Is-
lands er hafið og veröur þaö meö
svipuðum hætti og undanfarin ár.
Haldnir veröa fræöslufundir um stein-
steypu og skyld efni og verður fyrsti
fundur vetrarins að Hótel Loftleiðum,
21. nóvember nk. kl. 20.30. Þar veröur
fjallað um forsteyptar einingar.
Steinsteypufélag Islands varð 10 ára
á síöasta ári og í tilefni þess var ákveð-
ið aö ráðast í útgáfu á sögu steinsteypu
á íslandi.
Steinsteypufélag Islands er aðili að
samstarfi Steinsteypufélaga á Norður-
löndum og í ágúst 1984 verður haldin
hér á landi norræn ráöstefna um stein-
steypu.
-EIR
Hlutí þairra ar koma viO sögu i hinni nýju bók.
Bók í 110 þúsund
eintökum væntanleg
meðal persóna má þekkja
þjóðf ræga menn
Um mánaðamótin febrúar-mars er
væntanleg á markaðinn bók ein sem
gefin verður út í 110 þúsund eintökum
og dreift á flest heimili landsins. Meöal
nafna sem birtast í bókinni eru nöfn
margra þjóöfrægra manna en almenn-
ingur mun einnig þekkja sjálfan sig á
siöunum ef grannt er skoðað.
Hér er um aö ræöa símaskrána 1984
og veröur hún stærri í sniöum en verið
hefur undanfarin ár. Á Stór-Reykja-
víkursvæöinu bætast við 3500 ný.síma-
númer enda veitir ekki af þar sem um
1100 manns bíða nú eftir nýju síma-
númeri á þessu svæði. Nýju númerin
eru einnig merkileg fyrir þá sök að þau
veröa sex stafa, núverandi númer sem
byrja á 85 og 86 og eru fimm stafa
veröa sex stafa meö því aö tölunni 6
veröur bætt framan viö þau — önnur
sex stafa númer veröa ný og áður
óþekkt.
Sama form verður á nýju síma-
skránni og þeirri gömlu, sami pappír
notaöur en eitthvaö veröur hún stærri
á þverveginn vegna nýju númeranna.
Til fróöleiks má geta þess aö í síma-
skránni 1983 voru 168 þúsund og 800
nöfn og aukalínur. Á Reykjavíkur-
svæðinu voru aðeins 4 prentvillur og 3
nöfn höföu dottiö út. Á Akureyri voru
villumar 6 og á Akranesi 2. Um aöra
staöi á landinu er ekki vitað meö vissu.
Ritstjóri símaskrárinnar er Haf-
steinn Þorsteinsson.
-EIR.
GISTIHÚSIÐ
VIÐ BLÁA LÓNIÐ
Svartsengi við Grindavík. Sími 92-8650.
opnað. Bjóðum alla gesti velkomna.
Bjóðum upp á gistingu og góðar veitingar á góðu
aar ■
Verið velkomin.
Þórður Stefánsson
gistihússtjóri.