Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Qupperneq 9
9
DV. MfÖVltfÖÖÁÖtfá Í6. NÖVÉÍffiÉR'Í983'.
Útlönd Útlönd ° Útlönd Útlönd
Sjálfstæðisyfirlýsing Kýpur-
Tyrkja kom flatt upp á alla
Sá taluti Kýpur, sem tyrkneska hernámsliðið hemam 1974 (við mikinn fögnuð Kýpur-Tyrkja), hefur lýst yfir
stofnun sjálfstsðis rfkis.
— og mælist víðast f remur illa fyrir
Raul Denktash, leiðtogi Kýpur-Tyrkja,
er skoðaður sem forseti hins
nýstofnaða lýðveldis.
Skyndifundi í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna vegna Kýpurdeilunnar
veröur sennilega frestað til morguns,
svo að báðir geti setið fundinn, Rauf
Denktash, leiðtogi Kýpur-Tyrkja og
George Iocovou, utanríkisráðherra
Kýpur.
Bretland og Kýpurstjórn höföu kraf-
ist fundarins og hefur Bretland lagt
fram ályktunartillögu þar sem þess er
krafist að sjálfstæðisyfirlýsing tyrkn-
eska hlutans verði afturkölluð og
skorað á öll aðildarríki Sameinuðu
þjóðanna að viðurkenna ekki annaö
Kýpurríki en lýðveldið Kýpur.
Bretland ásamt Grikklandi og Tyrk-
landi eru bakhjarlar til tryggingar
sjálfstæðiKýpur.
Viðbrögðin viö yfirlýsingunni um
stofnun „Tyrkneska lýðveldisins á
Norður-Kýpur” (þar sem 40% eyjar-
innar voru hemumin í innrás Tyrkja
1974) hafa verið furðublandin, því að
þessi ákvörðun kom öllum á óvænt.
Flestum hefur þótt þetta óráðlegt til-
t*ki og meðal NATO-ríkja er Tyrk-
landi legið á hálsi fyrir aö eiga hlut að
því að spilla hugsanlega meö þessu
einingu bandalagsins á suöurkantin-
um.
Kýpurstjórn, sem viöurkennd er af
nær öllum löndum heims nema Tyrk-
landi, er fulltrúi Kýpur-Grikkja, sem
eru um 80% íbúa eyjarinnar.
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er
meöal þeirra sem gagnrýnt hafa sjálf-
stæðisyfirlýsingu Kýpur-Tyrkja. Sagöi
hann hana stangast á við ályktanir
öryggisráðsins, sem margsinnis hefur
fjallað um Kýpurdeiluna eftir innrás
Tyrkja 1974. Friðargæslusveit á veg-
um Sameinuðu þjóðanna hefur verið á
Kýpursíðan 1964.
Grikklandsstjórn sakar stjórnina í
Ankara um að standa aö baki sjálf-
stæðisyfirlýsingunni en fór sér þó var-
lega í ásökunum. Talsmenn stjórnar-
innar segja viðbrögð hennar muni
einskorðast við diplómatískar aðgerðir
og ekki koma til greina að tefla fram
hemum í málinu.
Bandaríkjastjórn hefur hvatt aðila
til þess aö gæta stillingar en lætur í
ljósi kvíða um að tiltæki Kýpur-Tyrkja
spilli samstarfinu innan NATO.
Vopnatakmörk-
unarviðræðurhalda
áfram um hríð
Sovétstjórnin hefur samþykkt að
taka til að nýju við vopnatakmörk-
unarviðræðurnar í Genf á morgun en
lætur ósagt hvað hún hyggst halda
þeim lengi áfram.
Aðalsamningafulltrúi hennar, Yuli
Kvitsinsky, gekk þaðan út af fundi í
gær eftir 35 mínútna setu og var það
stysti fundurinn í þessum tveggja ára
lönguviðræðum.
Er talið að Sovétmennirnir hafi með
því viljað mótmæla fýrstu sendingu
stýriflauganna, sem barst í fýrradag
til Bretlands.
Yuri Andropov, forseti Sovétríkj-
anna, lét svo ummælt í síöasta mánuöi
að það þjónaði engum tilgangi að halda
áfram viðræðunum um takmörkun
kjamorkuvopna eftir að nýju
Pershing-2 og stýriflaugamar væru
komnar til Evrópu samkvæmt NATO-
áætluninni.
Mótmælendur kjarnorkuvopna skrýðast oft grímum þar sem mest ber á
andlitsdráttum Reagans Bandaríkjaforseta.
Mótmæla
harkalega
stýriflaug-
um NA TO
Fyrsta sending bandarísku stýri-
flauganna til Bretlands hefur hrundið
af stað nýrri mótmælaöldu. Baráttan
gegn eldflaugunum hefur staöiö í tvö
ár þar í landi en megnaði ekki að
hindra flutning þeirra þangaö.
Yfir 150 konur, sönglandi ýmis mót-
mæli, vom handteknar við herstöðina í
Greenham Common, þar sem fyrstu
stýriflaugarnar voru affermdar á
mánudaginn en talið er að kjamaodd-
amir fyrir þær hafi komið í gær.
Michael Heseltine varnarmála-
ráðherra var úðaður rauðri málningu
þegar hann fór í gær til Manchester til
þess að ávarpa stúdentafund. Um 300
kjamorkuvopnaandstæðingar höföu
sig svo mjög í frammi við þinghöllina í
London í gær að lögreglan fjarlægði
þá.
Inni í þingsölum sagði Neil Kinnock,
leiötogi stjórnarandstöðunnar (fyrir
skömmu kosinn formaður Verka-
mannaflokksins), að skilmálamir fyr-
ir uppsetningu eldflauganna í Bret-
landi hefðu gert Margaret Thatcher
forsætisráðherra að ambátt Banda-
ríkjanna.
Við Greenham Common (80 km vest-
ur af London) hafa streymt mótmæl-
endur til liðs við konurnar sem skipst
hafa á við mótmælastöðu þar síðan
1981. Ætlun þeirra er að hindra að
stýriflaugamar verði færöar til ann-
arra staöa á Suður-Englandi.
Á Italíu, þar sem einnig er ætlunin að
setja upp stýrifiaugar, hafa brotist út
mótmæli víðs vegar um land en á þing-
inu standa þessa dagana yfir umræður
um eldflaugaáætlun NATO, sem ætlar
að setja 112 stýriflaugar upp á Sikiley
fyrir næsta vor. — Nokkur hundruð
manna efndu til mótmæla fyrir utan
þinghúsið í gær.
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
STÓRL SIGTÚI KARNABÆR BELGJAGERÐIN (Vinnuföt) SPORTVAL (Sportfatnaður) BIKARINN(Sportfatnaður) HENSON (íþróttafatnaður) ITSALAN IMI3,2. H/ ÚTILÍF (Sportfatnaður) ÆSA (Skartgripir) ASSA (Tískuföt, barnaföt) S.K. (Sængurfatnaður) LIBRA (Fatnaður) MARKAI Bón og þvottastöðin 'J Bliki er á 1. hæð. GALLERY LÆKJARTORG (Hljómplötur) K. HELGASON (Sælgæti) RAFTAK (Rafmagnsvörur) G.M. PRJÓNAGARN DSHÚSIIMU, Mörg þekkt fyrirtæki saman undir einu þaki: M. BERGMANN (Sængurfatnaður) LAGERINN (Fatn. á alla fjölskylduna) TINDASTÓLL (S.H. gluggatjaldaefni) PRJÓNASTOFAN KATLA (ísl. prjónapeysur)