Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Síða 10
10
DV. MÐVlkÚbÁGÚn 16/NIÖVEMBER Í98S.'
Útlönd Útlönd ° Útlönd Útlönd
Umsjón: HerdísÞorgeirsdóttir
Varnarmálaráöherrann Spadolini
hefur einnig lýst yfir óróleika yfir
hegöun forsætisráöherrans. Þetta
tengist einnig nýjasta „uppátæki”
Craxis, þ.e. aö hafa áhrif á gang
mála í Mið-austurlöndum meö því aö
bjóöa hátíðlega heim til Rómar
Walid Jumblatt, leiötoga drúsa. Og
eru engar „Camp-David” vonir
bundnar við þá heimsókn þótt hún
geti vart skaðað. Finnst ýmsum,
m.a. Spadolini, aö einhver príma-
donnuhvati sé hlaupinn í Craxi sem
misskilji hlutverk sitt á vettvangi al-
þjóöamála líkt og hann væri í for-
svari fyrir annaö stórveldiö.
Oft hrikt í stoðum
stjórnkerfisins
Aö ööru leyti gengur stjórnarsam-
starf tveggja stærstu flokkanna í
stjórninni, þ.e. kristilegra demó-
krata og sósíalista, vonum framar.
Sérstaklega ef tekið er tillit til and-
stæöra stefnumiða fram að síöustu
kosningum. Margir líktu úrslitum
þeirra kosninga viö „jaröskjálfta”,
sérstaklega með tilliti til þess að
fylgi kristilegra demókrata hefur
ekki hrapaö eins og nú áratugum
saman. Vart heföi þessi sveifla þó
þótt umtalsverð í öörum Evrópu-
löndum sér í lagi ef tekið er miö af
því aö enn eru kristilegir demó-
kratar mjög sterkir og einnig innan
stjómarinnar. Hins vegar þóttu úr-
slit þessi koma á óvart. En þaö er
líka ítalski hátturinn á.
Ekkert kemur á óvart á Italíu.
Eins og Frakkar myndu segja „plus
ca change — plus c’est la meme
chose” eöa m.ö.o. því meiri breyting-
ar — því svipaðra ástand.
Utlitiö hefur oft verið svart á
Italíu undanfarinn áratug. Oft virtist
allt stefna í óefni, efnahagslífiö hefur
verið í lamasessi og hryðjuverka-
alda ætt yfir landiö. Oft á tíðum
hefur fólk veriö uggandi um framtíð
lýðræðis í landinu en á sl. ári voru lið-
in hundrað ár frá dauöa Giuseppi
Garibaldi, frelsishetju Itala.
Eftir rániö og moröiö á Aldo Moro
áriö 1978 óttuöust margir aö stjórn-
leysiö og hryðjuverkin myndu leiöa
til tímabils nýs einræöig. Kristilegir
demókratar og kommúnistar háöu
haröa valdabaráttu sem óneitan-
lega kom niöur á efnahagslífinu.
Kristilegir demókratar reyndu aö
auka vinsældir sínar með stöðugri
þenslu á ríkisbákninu meöan
kommúnistar beittu verkalýöshreyf-
ingunni fyrir sig til aö sporna viö
ýmsum aðgerðum. En kommúnistar
töpuöu í kosningunum 1979 og
eitthvaö rétti efnahagslífið úr kútn-
um síöustu ár áratugarins en grund-
vallarvandinn er enn hinn sami — og
bíöur lausnar stjórnar Benitto Craxi.
Heilsteypt
gildakerfi
Og hver skyldi vera orsök þess aö
Italir skuli enn búa við lýöræðislegt
stjómarfar þegar útlitiö virtist oft
benda til gagnstæðrar þróunar. Ein
skýringin hefur veriö talin liggja í
heilsteyptu gildakerfi ítölsku
þjóöarinnar. Er þá átt viö allt annað
gildakerfi en t.d. viö Norðurlanda-
búar búum við — þ.e. á vissan hátt
arfleifö mótmælendatrúar sem lýsir
sér í hollustu viö velferöarhugsjón-
ina, borgaralegar skyldur og heiöar-
leika í opinberu lífi (oröum sam-
kvæmt).
Því er hinsvegar öðruvísi fariöi
meö Itali. Þeir hafa enga feiknartrú
á veraldlegur yfirvöldum. Margir
álíta stjórnmálamenn hina verstu
skúrka og eru ekkert aö hafa fyrir
því að leita annarra orsaka fyrir
hegðun þeirra en valdagræðgi. Enda
eiga Italir ekki góðu aö venjast af
stjórnvöldum í gegnum tíöina. Italir
líta hins vegar svo á að ef eitthvað
viögengst ekki innan veggja heimil-
isins eigi það heldur ekki aö viðgang-
ast á vettvangi þess opinbera. Því er
smárifrildi allt í lagi — svo framar-
lega sem fjölskyldan stendur saman
á erfiðleikatímum. Þær hinar sömu
væntingar gerir fólk til stjórnvalda
— og frá því aö skeiði fasista lauk
hefur veriö spornað gegn hruni, bæði
efnahagslegu og stjórnarfarslegu,
þótt sumum hafi oft virst þaö vera á
elleftu stundu.
Þaö er engin nýlunda aö óvissa ríki
ítölskum efnahagsmálum. Annaö
væriundantekningtil sönnunar regl-
unni. Eftir síðustu kosningar, þar
sem kristilegir demókratar biöu
nokkurn hnekki meö þeim afleiöing-
um aö í fyrsta sinn í ítalskri sögu er
sósíalisti forsætisráöherra, bjuggust
menn viö einhverjum breytingum í
efnahagsmálum þótt enginn geröi
ráö fyrir kraftaverki. Kristilegir
demókratar settu þaö sem skilyrði
við myndun stjórnarsamsteypunnar,
sem í eru fimm flokkar, að ef
sósíalistar yröu í forsæti tækju þeir
mjög alvarlega á efnahagsvandan-
um eöa m.ö.o. aö þeir drægju veru-
lega úr opinberum útgjöldum.
Það hefur því vakið nokkra
undrun upp á síðkastiö hve lítiö er
deilt um efnahagsmálin í stjórn
Benitto Craxi, a.m.k. á yfirboröinu.
Craxi hefur hins vegar sett utan-
ríkismálin á oddinn sem þykir nokk-
uö óvanalegt í stjórnarsamstarfi
sem þessu. Velta ýmsir vöngum yfir
hvort þar ráöi persónulegur
metnaöur Craxis — og þörf hans
fyrir aö láta ljós sitt skína á alþjóða-
vettvangi. Benitto Craxi, sem setiö
hefur eitt hundrað daga í valdastóli,
erföi tvö mikil hitamál frá forvera
sínum. Annaö þeirra er fyrirhuguð
staðsetning 112 stýriflauga á Sikiley,
samkvæmt NATO-áætluninni um
endurnýjun vopnaaflans í Evrópu.
Hitt hitamáliö sem Craxi erföi er
staösetning ítalskrar friöargæslu-
sveitar í Líbanon, sem er hluti af
fjögurra þjóöa friðargæsluliði.
Craxi hefur reynt aö taka af
skarið og sýna ákveðið frumkvæði
varöandi bæöi þessi hitamál. Hann
hefur þó lítiö annaö uppskoriö en
gagnrýni á alla enda og kanta. Fimm
-------------------->-
Benitto Craxi forsætisráðherra.
hundruö þúsund manns mótmæltu
NATO-áætluninni í Róm nýveriö og
viöbrögö Craxis voru að frestur yröi
á staðsetningu eldflauganna ef Rúss-
ar sýndu meiri lit í samningaviðræð-
um í Genf. Þaö vakti mikla furöu ný-
lega aö Craxi skyldi senda fulltrúa
Italiu til aö vera viðstaddan 7.
nóvember hátíðahöld byltingarinnar
á Rauöa torginu í Moskvu. Ekkert
NATO-ríki hefur sent fulltrúa til aö
vera viöstaddur byltingarafmælið
síöan Sovétríkin gerðu innrás í
Afganistan áriö 1979. Ekki nóg með
það heldur hélt sjálfur forsætisráö-
herrann í hóf í sovéska sendiráðið í
Róm þann sama dag sem enginn
þjóðarleiötogi þar hefur áöur gert.
Telja menn að þessar athafnir séu
liður í áætlun Benitto Craxi til aö
hafa áhrif á alheimspólitíkina. Aðrir
meölimir ríkisstjómarinnar eru þó
ekki sérlega hressir með „einka-
framtak” Craxis í utanríkismálum.
Varaforsætisráöherrann, Arnaldo
Forlani, úr hópi krist.legra
demókrata, hefur farið þess á leit aö
stjórnin geri athugun á því hver sé
hin eiginlega utanríkisstefna Italíu.
Mótmælaganga i Róm i október.
ÍTALÍA:
Einka-utanríkis-
stefna” Benitto
Craxi _
—fyrsti sósíalistinn
í sæti forsætisráðherra