Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Qupperneq 17
Lesendur 0 Lesendur
„Deilan um afgreiðslutíma verslana er einfatt en skýrt dœmi um það
hvernig gamaldags kerfiskarlar og þröngt hugsandi verkalýðsforkólfar —
og kaupmenn — geta staðið i vegi fyrir sjálfsögðum róttindum á sviöi
neytendamála," segir bréfritari m.a. um þetta mikla hitamál.
Afgreiðslutími verslana:
Reykjavík skiptir
ekki lengur máli
i
Lesandi skrifar:
„Reykvískir kaupmenn tapa við-
skiptum”, — „Smákaupmenn óttast
samkeppni”, — „Það er ekki rétt, að
smákaupmenn óttist samkeppni”.
Þetta eru sýnishorn úr deilunum um
afgreiöslutíma verslana og sem lesa
hefur mátt um í dagblöðum síöustu
vikur. Þessi deila hefur nú staðið svo
lengi að löngu er búið að leysa málin
fyrir Reykvíkinga.
Reykjavíkurborg heltist einfaldlega
úr lestinni og máhð skiptir ekki neinu
fyrir íbúa höfuöborgarinnar. Þeir hafa
fengiö stórmarkað á Seltjarnarnesi og
þar fæst allt sem þá vanhagar um og
neytendur geta verslað þar til kl. 4 á
laugardögum. I nágrannasveitarfélög-
unum geta þeir svo verslað alla daga
vikunnar.
Deilan um afgreiðslutíma verslana
er einfalt en skýrt dæmi um það hvem-
ig gamaldags kerfiskarlar og þröngt
hugsandi verkalýðsforkólfar — og
kaupmenn — geta staöiö í vegi fyrir
sjálfsögðum réttindum á sviði neyt-
endamála.
A meðan deildt er um keisaráns
skegg ríða aðrir, þeir sem fylgja tím-
ans straumi og kröfum, á vaðið og
framkvæma hlutina. Það má heita að
alls staöar á landsbyggðinni, nema í
Reykjavík, geti fólk verslað fram eftir
degi á laugardögum og jafnvel á
sunnudögumlika.
Krafa neytenda í þessu máli stóð að
mestu leyti um það að geta verslað á
laugardögum og sunnudögum. Að opna
verslanir á morgnana kl. 8 er ekkert
aðalatriöi. Fólk sem hefur nú frí á
laugardögum og sunnudögum vill geta
haft þá daga til aö versla án þess aö
þurfa að rífa sig á fætur eða vera háð
þeirri kvöð að þurfa að vera búið að
ljúka verslun fyrir kl. 12 á hádegi. Svo
einfalterþetta.
Auðvitaö ættu allar verslanir að
vera opnar laugardaga til kl. 6 að
kvöldi. Við það myndi verslun aukast
og fólk hafa tíma til að fara og gera
samanburð á veröi og úrvali. Á venju-
legum dögum er litill tími til slíks. Allt
tal um að vinnutími verslunarfólks
lengist við þetta er út í hött. Þetta er
alls staðar leyst með starfskröftum
sem koma aukalega, t.d. skólafólki eða
öðrum slíkum sem vilja vinna hluta-
vinnu og nóg er til af.
Við Islendingar þurfum bara að
vera öðruvísi en annað fólk og þess
vegna fer sem fer. Laugardagar og
jafnvel sunnudagar eru líflegustu
verslunardagar hjá öðrum þjóðum og
þykir okkur sjálfum gott að njóta þess
er við erum á feröalögum erlendis.
En hvað höfuðborgina varðar þá er
best að leyfa viðkomandi deiluaðilum
að halda áfram sinum deilum um
afgreiðslutíma verslana. Málið hefur
þegar veriö leyst fyrir okkur hvað
varðar matvöruverslun og við búumst
einfaldlega ekki viö neinni lausn í
Reykjavík.
Ekki spuming hvort
litað fólk sé verra
Þorlákur Björnsson og Ólafur Helgi
Ániason skrifa:
Við sem teljum okkur hluta af hin-
um þögla meirihluta viljum láta eftir-
farandi álit okkar í ljós.
Við teljum aö spurningin sé ekki um
hvort litað fólk sé verra eða betra en
viö hin hvítu, heldur númer 1,2 og 3 er
þaö að viö komum frá Noregi og Is-
landi og erum hvít og norræn þjóð með
gerólíka menningu og siði sem við telj-
um að þetta fólk geti ekki samlagast.
Við viljum ógjarnan sjá Reykjavík
skipt niöur í hin ólíkustu hverfi eftir lit-
arhætti og lífsháttum, t.d. Víetnama í
Grafarvogi og negra í iHlíðahverfi. Við
höfum ótal dæmi um slíka skiptingu
niður í hverfi, svo sem í Bretlandi og
sjálfri vöggu frelsis og mannréttinda,
USA.
Að endingu viljum við spyrja hæst-
virta 6594—9229 hvort hún kysi talandi
negra meö íslenskan ríkisborgararétt
í forsetastól.
Fundarlaunum heitið
Herdís Karlsdóttirhringdi: Fundarlaunum er heitiö þeim sem
Dóttir mín varð fyrir því óhappi að hafa orðið varir við veskið. Það má
týna seðlaveskinu sínu 10. þessa skila því á lögreglustöðina eða til rit-
mánaðar í Nýja bíói. I veskinu voru 3 stjómar DV.
þúsund krónur og öll hennar skilríki.
Þakklæti til sjónvarpsins
Inga Atladóttir, Eskifirði, hringdi: á framfæri til sjónvarpsmanna fyrir
Eg vil gjarnan koma þakklæti minu mjög góöa dagskrá að undanförnu.
17
WATUXGSRAM
SUPERBALUX
OTUNGSRAM
fyrir framtiöina
ORKUSPARAR ''
LJÓSAPERUR
Þærborga
þessar!
Allar nanari
upplýsingar
hja okkur
Raftœkjaverzlun Islands h/f
n meö færri vöttum
Ægisgotu / Reykjavik
Sími sölumanns 1-87-85
Superbalux
1) Gefur örlitM minna Ijós en venjuleg pere
2) Gefur meira Ijós en venjuleg pera
Áskriftarsími
27022
BLAÐSÖLUBÖRN!
Komið á
afgreiðsluna
Þverhoiti 11
VIKáN
er komin út
FÆSTÁ
NÆSTA
BLAÐSÖLU-
STAÐ