Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Page 31
ruv sr RTtn*nn'5iTUílTfil vn
DV. MIÐVIKUDAGUR16. NOVEMBER1983.
31
Sandkorn
Sandkörn
Sandkorn
SverfSa á Sögu
Flugleiðafólk heldur sina
árshátíð með pomp og prakt
um næstu helgi. Mun hún ekki
haldin á Loftleiðum, eins og
einhverjir hefðu kannski gert
ráð fyrir, heldur á Sögu.
Hvort Bændahöllin hefur sér-
stakt aðdráttarafl skal ósagt
látið en hitt mun víst að í
þetta sinn þarf ekki að aflýsa
hátíðinni vegna þátttökuleys-
is eins og gerðist hér á árun-
um. Vér höfum það nefnilega
fyrir satt að löngu sé uppselt
á hana. Getur það bent til
þess að gamlar væringar séu
ná úr sögunni en innan fyrir-
tækisins riki nú sátt og
sameining eins og vera ber.
Ritsmíðar
Sú fregn hefur flogið fyrir
að Hannes Hólmsteinn Giss-
Hannes Hálmsteinn.
urarson hafi fengið styrk úr
Fiskimálasjóði til að rann-
saka eignarréttarskipan í
sjávarútvegi og fiskveiðar.
Þetta minnir á að einu sinni
var sami Hannes Hólmsteinn
fenginn til að rita sögu Sjálf-
stæðisflokksins. Var þaö í
tilefni 50 ára afmælis flokks-
ins sem var á þvi herrans ári
1979. Hannes mun vera löngu
búinn að skila handriti sínu til
æðstráðandi. En hins vegar
mun útgáfan eitthvað vefjast
fyrir flokksmönnum. Eru
þeir einkum sagðir miður
sáttir við ýmsar frjáls-
hyggjuskýringar Hannesar
og séu þeir því í mestu vand-
ræðum með handritið.
F.h.
Hingað inn læddist lítil saga'
um konu eina sem fór út í
banka til að borga reikning
fyrir manninn sinn. Hún
greiddi með ávísun sem
reyndist vera allmiklu hærri
heldur en reikningsupphæðin.
Afgreiðslumaðurinn í
bankanum sagði konunni að
hún yrði að skrifa aftan á
ávísunina þar sem maðurinn
hennar hefði gefið hana út.
„Og hvað á ég að skrifa?”
spurði konan.
„Fyrirhans hönd,” svaraði
afgreiðslumaðurinn.
Konan skrifaði aftan á
ávisunina, fékk heilmikiö til
baka og gekk út. Þá heyrðust
skyndilega mikil andköf frá
afgreiðslumanninum sem
enn hélt á ávisuninni. Þvi
aftan á henni stóð aðeins:
„Fyrirhans hönd...”
Uppreisn ut af
matnum
Stjórn Félagsheimilis
Kópavogs fékk nýlega þung-
bæra heimsókn. Sjálfur
bæjarstjórinn mætti með bréf
22 starfsmanna á bæjarskrif-
stofunum, tveim hæöum ofar,
þar sem lýst var frati á mat-
inn sem kokkaður hefur verlð
ofan í þá í svoköliuðu mötu-
neyti FélagsheimOisins. t
bréfinu var farið fram á það
við forráðamenn bæjarins að
Kristjén Guámundsson.
matur fengist keyptur annars
staðar frá.
Ekki brá þó stjóni Félags-
heimOisins meira en svo að
hún gerði samþykkt um að
launakostnaöur við matar-
sölu á bæjarskrifstofunum
væri of mikill og þvi yrði
matarsölu þar hætt nema
bærinn borgaði launin.
Þó samþykkti hún einnig að
endurmeta kokkeríið gagn-
gert.
Ellefu
Ríkið og Samband ís-
lenskra sveitarfélaga boöuðu
nýveriö tfl fundar með frétta-
mönnum sem er í sjálfu sér
ekki i frásögur færandi. Þar
var kynnt áætlun um hagræö-
ingu í opinberum rekstri.
Það sérkennilega við fund
þcnnan var hins vegar það að
hann var haldinn þann 11/11,
klukkan 11 að morgni — og
fjaUaði um verkefni sem er
verið að fara af stað með á
eUeftu stundu.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Félagar ur björgunarsveitinni Björgu á Helbssandi með rolluna og lambiö sem þeir náöu ur sjálfheldunni.
Mennirnir heita, talið frá vinstri, Kristmundur Sigurðsson, Þórarinn Friðgeirsson, Hafsteinn Björnsson,
Haukur Sigurðsson, Vernharður Kristjánsson, Steinar Birgisson, Hjálmar Kristjánsson og Árni Jón Þor-
geirsson.
D V-mynd Ægir Þórðarson.
Hellissandur:
Kindum bjargað
úr sjálf heldu
Frá Hafsteini Jónssyni, fréttaritara
DV á HeUissandi.
Félagar úr björgunarsveitinni
Björgu á HelUssandi náöu á dögun-
um tveimur kindum úr sjálfheldu í
þverhníptu klettabelti í fjalUnu Búr-
felU sem er nokkra kílómetra fyrir
sunnan kauptúniö. Þriðja kindin
hrapaði áður en tókst að koma
böndumáhana.
Smalamenn tóku eftir kindunum,
einni fullorðinni og tveimur lömbum,
uppi í fjaUinu og varð fljótlega ljóst
að ekki yrði komist að fénu nema
með sérstökum útbúnaði. Því var
leitað eftir aðstoö björgunarsveitar-
innar.
Eg náði tah af Hauki Sigurðssyni,
en hann er í stjórn Bjargar, og bað
hannaðsegja nánarfrá atvikum.
„Viö vorum beðnir af einum fjár-
eiganda að kanna hvort hægt væri að
bjarga roUu og tveimur lömbum sem
höfðu verið í sjálfheldu í klettunum í
nokkurn tíma. Við fórum á staðinn
með sigútbúnað okkar en reyndum
fyrst að fæla féð með því að skjóta
nokkrum riffUskotum nálægt því í
bergið. Það bar ekki árangur.
Þá var ekki um annað að ræða en
að síga niöur í bergið og reyna að
koma böndum á féð. Aðstæður þarna
eru vægast sagt mjög erfiðar, mikið
af lausu grjóti og bratti mikUl fyrir
ofan þverhnípið. Okkur tókst að
koma böndum á rolluna og annað
lambið, en hitt hrapaði áður en okkur
hafði tekist að festa þaö. Við vorum
aUt í þrjá tíma þarna utan í klettun-
um þar til að þessu var lokiö.”
— Segðu mér í framhaldi af þessu,
Haukur, hversu stórt er svæði ykkar
og hvernig eruð þiö búnir aö tækj-
um?
„Venjulega eru hreppamörk látin
ráða, en það er aldrei farið eftir því.
Sveitirnar héma á noröanveröu
nesinu hjálpa hver annarri eftir
þörfum og í reynd eru takmörkin
engin.
Um tækjabúnað er það að segja að
við erum aUvel búnir. Við eigum
nýjan Zodiac gúmbjörgunarbát,
nýjan bíl og ágætan sigbúnað. Fjar-
skiptabúnaöurir.n er ekki nógu góöur
og það er næst á dagskrá að endur-
nýja hann, en það er mjög dýrt fyrir-
tæki.
Við höfum verið meö nýtt hús í
byggingu undanfarin ár og það
verður væntanlega kláraö í vetur. Þá
verðum við komnir með mjög góðan
samastað sem reyndar er þegar
kominn í notkun.
Ég vildi svo fá að nota þetta tæki-
færi til að koma á framfæri þakklæti
til allra íbúa Neshrepps fyrir þann
velvilja sem við höfum aUtaf notiö í
sambandi við aUa starfsemi okkar.
Eg vUdi líka koma þvi á framfæri að
okkur vantar menn í sveitina, og ég
beini því tU kvenfólksins að þaö taki
virkari þátt í björgunarsveitinni
sjálfri. Þar er margt, sem það getur
gert,” sagði Haukur Sigurðsson að
lokum.
-GB
Notaðir iyftarar
í mikiu úrvaii
Getum afgreitt eftirtalda lyftara nú þegar:
Rafmagns
1,51.
21.
2,51 m/snúningi.
31 m/snúningi.
Dísil
2.51 m/húsi.
3.51 m/húsi.
41.
Skiptum og tökum i umboðssölu.
STII.I.
Lyftarasalan hf.
Símar 91-26455
91-12452.
Urval
VtBD
TtaariUyrirato V a
UryaL
l JDjöfla<lans
Tíbct — land \ ■ ^ínverskva
leyndardómanna l ■ konlttvónisa . ^
Bls. 18]
1 ÍJrvaisljóð ....
v. .Anrscméghtí átt . ■ • 5 HtvMuverkanew • ' ’ '' .109
^33-. í; &3;3r *
g£S- J —
\ ■ i.d-.n hans
Það sem fynr augu \ ■ húskatls
bat í Betmúda- ■
þríbyntmgitum ^ \ 1 57.
Bls. 81
^hIyðjuverkanetið
NOVEMBERHEFTIÐ
ER KOMIÐ
ÁSKRIFTARSÍMI
27022