Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Blaðsíða 32
32
DV. MIÐVKUDAGUR16. NOVEMBER1983.
Helgi Skúlason augnlæknir lést 7.
nóvember sl. Hann var fæddur í Odda
á Rangárvöllum 22. júní 1892, sonur
séra Skúla og Sigríöar Helgadóttur.
Hann lauk kandidatsprófi í læknisfræöi
21. júní 1915. Hálfum mánuöi síöar var
hann settur héraöslæknir í Síöuhéraði
og dvaldi þar í fjögur ár. Eftir þaö fór
hann utan og aflaöi sér þekkingar á
augnsjúkdómum. Þegar heim kom
stundaöi hann augnlækningar í
Reykjavík og jafnframt kenndi hann
augnsjúkdómafræöi við Háskólann.
Helgi kvæntist Klöru Sigurðardóttur
og fluttust þau hjón til Akureyrar. Ut-
för Helga veröur gerð frá Dómkirkj-
unni í dag kl. 13.30.
Andlát
Laufey Ósk Benediktsdóttir, Arahólum
4 Reykjavík, verður jarösungin frá
Fríkirkjunni fimmtudaginn 17. nóvem-
ber kl. 10.30.
Þóröur Jónsson frá Súöavík, Ból-
staöarhlíö 52 Reykjavík, lést í Landa-
kotsspítala aökvöldi 14. nóvember.
Aöalbjörg Sigfúsdóttir Voss, Jernbane-
a' é 7B, Vanlöse Kaupmannahöfn, and-
aöist 8. nóvember sl. Jaröarförin hefur
fariö fram.
Esther Bergmann Þórhallsdóttir,
Njálsgötu 102, verður jarösett frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. nóv.
kl. 10.30.
Vaigerður G. Sveinsdóttir, Suöurgötu
15, veröur jarösungin frá Dómkirkj-
unni fimmtudaginn 17. nóvember kl.
10.30.
Tómas Guðmundsson skáld, Egilsgötu
24, lést í Borgarspítalanum 14. nóvem-
ber.
Ragnar Pétursson, Greniteig 24 Kefla-
vík, varö bráðkvaddur sunnudaginn
13. nóvember.
Systir Maria Elise andaöist í Sankti
Josefsspítala, Landakoti, laugardag-
inn 12. nóvember. Jaröarförin fer fram
21. nóv. frá Kristskirkju í Landakoti kl.
13.30.
Valdimar Sigurðsson, Hringbraut 52
Hafnarfiröi, andaðist á hjartadeild
Landspítalans 14. nóvember. Jarðar-
förin auglýst síöar.
Frú Lára Siggeirs kaupkona, Smiðju-
stíg 4, sem andaðist 9. nóvember, verö-
ur jarðsett frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 17. nóvember kl. 15.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Efsta-
landi 22, veröur jarösungin frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18.
nóvemberkl. 15.
70 ára er í dag, 16. þ.m., Sigríður Gísla-
dóttir frá Nýja-Bæ Vestur-Eyjafjöll-
um, Skúlagötu 68 Rvík. Hún ætlar aö
taka á móti gestum í veitingahúsinu í
Glæsibæ á laugardaginn kemur, 19.
þ.m.,millikl. 16 og 19.
Gullbrúðkaup eiga í dag, miðvikudag-
inn 16. nóvember, hjónin Marta
Markúsdóttir og Aðalsteinn Sigurðs-
son, Hlaðhömrum 2 Mosfellssveit.
Þau veröa aö heiman í dag.
Fundir
Kvenfélag
Kópavogs
Fundur verður haldinn í félagsheimilinu
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 20.30.
Félagsfundur
Haustfundur Snarfara verður haldinn
fimmtudaginn 17. nóvember í húsi Slysa-
varnafélags Islands og hefst kl. 20.00.
Fundarefni: 1. Félagsstarfið 2. Uppbygging
hinnar nýju smábátahafnar Snarfara. 3.
Önnurmál.
Stjómin.
Hvöt — Aðalfundur
Fimmtudaginn 17. nóvember 1983 kl. 20.30
veröur haldinn í Valhöll aðalfundur Hvatar.
Dagskrá: 1. venjuleg aðalfundarstörf.
Félagskonur fjölmennið.
Stjómin
Árnesingafélagið
í Reykjavík
heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 17.
nóvember nk. kl. 20.30 á Hótel Esju, annarri
hæð.
Dagskrá: 1. Venjulegaðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Aö venju verður fundarmönnum boðið upp
á kaffiveitingar. Félagsmenn em hvattir til
aðfjölmenna.
Stjómin.
Félagsfundur
Haustfundur Snarfara veröur haldinn
fimmtudaginn 17. nóv. í húsi Slysavarna-
félags íslands og hefst kl. 20. Fundarefni: 1.
Félagsstarfiö 2. Uppbygging hinnar nýju
smábátahafnar Snarfara. 3. Önnur mál.
Stjórnin.
Kvenfélagið Aldan
heldur fund að Borgartúni 18 fimmtudaginn
17. nóvember kl. 20.30. Spilaö verður bingó og
seldir munir sem basarnefnd hefur unnið að í'
vetur.
Sýningar
Sovéska
bókasýningin
í MIR-salnum, Lindargötu 48, er opin alla
virka daga kl. 17—19, laugardaga og sunnu-
daga kl. 15—19. Kvikmyndasýningará sunnu-
dögum kl. 16. Aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
íþróttir
Karate mót
Hið árlega UMSK mót í karate verður haldið
laugardaginn 19. nóvember kl. 14 í íþróttahús-
inu Asgarði, Garðabæ. Keppt verður í kata og
kumete (frjáls bardagi).
Spilakvöld
Breiðfirðinga-
félagið í Reykjavík
minnir á félagsvistina í Domus Medica
föstudaginn 18. nóvember, minnst verður 45
ára afmælis félagsins. Skemmtiatriði og dans
til kl. 3. Fjölmennum!
Basarar
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
heldur árlegan basar sinn í safnaðarheimili
kirkjunnar (gengiö inn í noröurálmu kirkj-
unnar) nk. laugard. kl. 14. Gjöfum á basar-
inn er veitt móttaka á fimmtudag kl. 20—22,
föstudag kl. 14—22 og á laugardag fyrir há-
degi. Kökur eru mjög vel þegnar.
í gærkvöldi í gærkvöldi
HVAÐ HEFUR VERIÐ
„SEU í GANG”?
Hann laut yfir boröiö meö biblíu-
skjöl Alþýðubandalagsins í höndum
og þakkaði bljúgur skýr svör. Það
var laust upp úr ellefu í gærkvöld.
Þá haföi nýkjörinn formaöur Sjálf-
stæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson,
dundaö viö þaö í eina klukkustund aö
vefja einum Þjóðviljaritstjóra og
einum útvarpsfréttamanni saman í
lárviöarsveig um sinn eigin háls.
Þetta var punkturinn í sjónvarp-
inu. Stjórnandinn Rafn Jónsson úr
útvarpinu þakkaði Þorsteini fyrir.
Hjálparhellan, Einar Karl Haralds-
son Þjóöviljaritstjóri, þakkaöi Þor-
steini sérstaklega fyrir.
Auðvitað naut Þorsteinn æfingar-
innar frá beinni línu DV til hans í síö-
ustu viku! En óneitanlega ekki síöur
yfirburða í hugsun umfram aögangs-
mennina.
Þorsteinn komst upp meö skil-
merkilegt múöur og í rauninni fannst
mér hann, eftir á aö hyggja, standa
viö bakiö á risastórri vekjaraklukku
og trekkja hana upp án þess aö hafa
stillt vekjarann.
Ekki skorti hann orö til þess að
lýsa réttilega munaðarlífi okkar und-
anfariö undir sólskyggni Alþýöu-
bandalagsins. Þar sem þjóöin sletti
úr klaufunum út á kaupiö fyrirfram.
Og ekki heldur orö til þess að skýra
refsinguna, sem þjóöin hefur tekið út
meö þrautum en ótrúlega góöu geöi.
(En hver gleymdi annars ástum
Framsóknar?).
Nú er svo komið sem komiö er. Þá
skiptir framhaldiö öUu máli. Og þótt
Þorsteinn segöi aö þetta og hitt heföi
þegar í vor eða síðar verið „sett í
gang” tU þess aö gera framtíðina
bærilegri tókst honum aö sneiöa hjá
því aö skilgreina þaö.
Þar sem annaö skiptir engu máli í
þjóöfélaginu á þessari örlagastundu
en aö viö rífum okkur upp úr feninu í
fullvissu um smjör ef ekki guU af
hverju handarviki, vantaöi mig botn-
inn í baksturinn.
Hvar er smjör? Hvar er guU? Þaö
skiptir máli aö segja til um þaö. Aö
baka Þjóðviljaritstjóra og útvarps-
fréttamann er bara bakstur í eitt
kvöldkaffi. Þaö bakkelsi var boröaö í
gærkvöld.
Skömmu upp úr fimm í gær eins og
skömmu upp úr fimm á virkum
dögum undanfarið opnaði ég útvarp-
iö í von um fróölega síödegisvöku.
Hún reyndist í þynnra lagi eftir f jör-
tök lengi undanfariö. Sem vonandi er
undantekning frá reglunni.
En þessi annars yfirleitt í stórum
dráttum afar áhugaveröi þáttur var í
gær sem endranær undir þá kvöl
seldur aö Pálarnir sem stjórna voru
svo misjafnlega máU farnir, aö ég
mátti beita akróbatik viö útvarps-
tækiö tU þess að greina samhengiö.
Því legg ég tU aö annaö hvort leiti
Páll sér varanlegrar hálsbótar elleg-
ar aö PáU leiti sér varanlegs háls-
meins. Annaö hvort eöa.
Herbert Guðmundsson.
Árnað heilla
Keimilisiflnaðarfélag
íslands 70 ára
Afmælisfagnaður félagsins var haldinn
sunnudaginn 6. nóv. sl. Mjög góðþátttaka var
og eins og sjá má á myndinni komu margar
konur í þjóðbúningi og margar þeirra höfðu
saumað hann sjálfar á námskeiðum sem
Heimilisiðnaðarskólinn heldur í gerð þjóðbún-
inga. Það hlýtur að vera sjaldgæft nú til dags
að svo margar konur séu samankomnar í
þjóðbúningi á félagsfagnaði.
Viðurkenningar voru veittar í samkeppni
um gerð jóiamuna sem félagið gekkst fyrir í
tilefni 70 ára afmælisins og hlutu þær 4 konur.
Stjórnin.
Æskan
Októberblað Æskunnar er komið út, 56 síður.
Meðal efnis: „Gagnvegir”. Viðtöl unglinga
við gamalt fólk. Að þessu sinni ræða þær
Ragnhildur og Steinunn við ömmu sína,
Guðlaugu Helgadóttur; Afmælisbörn
Æskunnar árið 1984; Að meðaltali dóu 40 þús-
und böm á dag; „Bindindi getur ráðið úrslit-
um”, rætt við Þórdísi og Þráin; Lög unga
fólksins; Góður árangur bræðranna á Sel-
fossi; „Gott að losna viö hálskirtiana”, litið
inn í Borgarspítalann; Æskan spyr: Hvað
hafðir þú fyrir stafni í sumar?; „Prófa sög-
urnar á krökkunum mínum”, viðtal við
Guðna Kolbeinsson; Af Steina og Olla;
Tónlistarmaður sumarsins David Bowie;
Þannig byrjaði þetta allt saman... viötal við
Ladda; Við erum Samar, kafli úr nýrri bók;
Sara, kafli úr nýrri bók; Mynd mánaðarins;
Unglingareglan; Frú Pigalopp og jólapóstur-
inn, kafli úr nýrri bók; Framhaldssagan um
Róbínson Krúsóe; Lassi í baráttu, kafli úr
nýrri bók; Fjölskylduþáttur í umsjá kirkju-
málanefndarBandalagskvenna: „Hvaðerað
vera maður”,, kaflar úr bókinni Ævintýri Ola,
eftir Sigurð Heiödal, Hún vann sigur; Æsku-
pósturinn; Til fundar við Jesú frá Nasaret,
kafli úr nýrri bók; Poppmúsík, í umsjón Jens
Guðmundssonar; HUfið augunum; Travolta;
Smalastúlkan eftir Mugg; Hafmeyjan sjötug;
Áskrifendagetraunin; Bókaklúbbur Æsk-
unnar; Lína Langsokkur; Munaöar-
leysingjarnir; Bréfaskipti; Myndasögur;
Þrautir; Felumyndir Skrítlur; Krossgáta
o.m.fl. Ritstjóri er Grímur EngUberts. Utgef-
andi er Stórstúka Islands.
Kvenréttindafélag íslands
Miðvikudaginn 16. nóvember kl. 20.30 kemur
umræðuhópur nr. 2 saman í annað sinn að
Hallveigarstöðum og ræðir um hlutastörf —
heilsdagsstörf. Hópstjóri er Ásdís Rafnar.
Umræðuhópar þessir eru opnir öllum sem
áhuga hafa á málefninu.
Sími AA-samtakanna
Eigir þú við áfengisvandamál að stríða þá er
sími samtakanna 16373 milli kl. 17 og 20 dag-
lega.
Þann 22. október sl. voru gefin saman,
í Bessastaðakirkju, brúðhjónin Helena
Unnarsdóttir og Lúrus Karl Ingason.
Heimili þeirra er aö Selvogsgötu 14,
Hafnarfiröi.
Kokkteill vegna
áratugarafmælis
Hársnyrtingar
Villa Þórs
Hársnyrting Villa Þórs, Ármúla 26, á 10
ára afmæli á morgun, fimmtudag. I tilefni
afmælisins bregður Villi Þór á leik og
býöur viöskiptavinum stofunnar í kokk-
teil. Síðdegisdrykkja stofunnar stendur
frá kl. 17—19 á fimmtudag. AJlir viöskipta-
menn hársnyrtingarinnar eru velkomnir.
Talna-
ruglingur
I frétt á baksíðu blaösins í gær var
sagt frá fundi Verslunarmannafélags
Reykjavíkur á Hótel Sögu í fyrrakvöld.
Þar var greint frá tillögu stjórnar um
breyttan afgreiðslutíma verslana sem
var samþykkt af félagsmönnum. I
þessa frétt slæddist meö frekar
leiöinlegur talnaruglingur sem viö
viljum leiörétta. Tillagan var sam-'
þykkt með 178 atkvæðum, 78 voru á
móti og auöir og ógildir seölar voru 27,
en ekki 72 eins og stóö í frétt gær-
dagsins. Biðjumst viö velvirðingar á
þessum mistökum.
-ÞG
Opið hús
I vetur mun verða opið hús í Golfskálanum í
Grafarholti á miðvikudagskvödum fyrir með-
limi Golfklúbbs Reykjavíkur. Þar geta menn
hist, spilað og teflt, leikiö borötennis eða horft
á golfmyndir í video. Veitingar munu vera í
boði. Eru allir kylf ingar velkomnir.
Sinfóníuhljómsveit
íslands
Nýjung í starfi Sinfóníuhljómsveitar Islands
er röð kammertónleika sem flutt verður í
Gamla bíói á þessu starfsári. Þessir kammer-
tónleikar verða fernir í vetur og kemur þar
ýmist fram strengjasveit, blásaraflokkar,
blandaöír hljóðfæraflokkar eða kammer-
hljómsveit (lítilsinfóníuhljómsveit).
Segja má að viss tegund tónlistar, samin
fyrir kammersveit eða hljóðfæraflokka sem
eitthvað víkja frá hefðbundinni hljóðfæra-
skipan sinfóníuhljómsveitar, hafi orðið
noldíuö útundan í verkefnavali Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands. Hætt er við að svo fari, ekki
síður þegar hljómsveitin hefur fengið aukinn
liðsstyrk til að sinna stærri verkefnum á aðal-
tónleikum sínum. Er hér um að ræða m.a.
tónlist frá barokk- og rókókó-tímanum, svo og
nýjatónlist.
Ur þessu vill Sinfóníuhljómsveitin bæta að
nokkru með þeirri tónleikaröð sem hér er gert
grein fyrir. Þar verða flutt m.a. kammertón-
verk eftir Igor Stravinsky, Anton von Webern,
Sergei Prokofieff og Paul Hindemith, sem
allir teljast til merkustu tónskálda þessarar
aldar. Fulltrúar eldri kynslóða eru Antonio
Vivaldi, Jean Philippe, Rameau, Johann
Sebastian Baeh og Wolfgang Amadeus
Mozart, að ógleymdum rómantísku tónskáld-
unum Felix Mendelsshon, Pjotr Tsjaíkofsky
og Gabriel Fauré. Loks verða hér flutt tvö
íslensk verk eftir Snorra Sigfús Birgisson og
Pál P. Pálsson. Á efnisskránni eru mörg tón-
verk sem nú heyrast í fyrsta skipti á Islandi.
Önnur eru gamlir góðkunningjar.
Sinfóniuhljómsveitin væntir þess að sú
nýbreytni sem hér er fitjað upp á muni gleðja
marga tónlistarunnendur og vonar að
kammertónleikarnir megi eignast tryggan
hóp áheyrenda eins og aðrir tónleikar hennar.
Áskriftarskírteini að þessari tónleikaröð
verða seld hjá lstóni hf., Freyjugötu 1, frá 10
til 22. nóvember. Sími 21185. Verð áskriftar-
skirteina er kr. 600. Miðaverð í lausasölu
verður kr. 200.
Siglingar
Akraborgin
siglir nú fjórar ferðir daglega á milli Akra-
ness og Reykjavíkur en að auki er farin
kvöldferð á sunnudögum. Skipið siglir:
FráAk. FráRvík:
Kl. 08.30 Kl. 10.00
Kl. 11.30 Kl. 13.00
Kl. 14.30 Kl. 16.00
KL 1730 Kl. 19.00
Kvöldferðir á sunnudögum frá Ak. kl. 20.30
ogfrá Rvík kl. 22.
Tilkynningar