Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Blaðsíða 34
DV. MIÐVIKUDAGUR16. NOVEMBER1983.
Tíðarandinn Tíðarandinn
I gær birtum viö frásögn af tölvu-
sýningunni veglegu á Bíldshöfða, þar
sem getur aö líta margskonar
tölvutegundir, tölvubúnaö og annað
skylt sem aö tölvuvæöingunni lýtur
meö einu eða ööru móti. Tölvuvæð-
ingin er aö gerbreyta vinnustööum
heimsins, verksmiðjum og skrifstof-
um, og það gefur auga leiö aö sam-
skipti hinna vinnandi manna breyt-
ast aö sama skapi og gerast eftir öðr-
um farvegum en áður.
En samhliða tölvuvæöingu vinnu-
staöanna er önnur tölvuvæöing í full-
um gangi og sú mun ekki reynast
mannkyninu smærri örlagavaldur en
hin fyrrnefnda, en þaö er tölvuvæð-
ing heimilanna.
I Reykjavík er nú fyrirliggjandi á-
gætt úrval af heimilistölvum og
munu þar algengastar vera
Spectrum, Atari, BBC, Vic 20,
Commodore 64 og Oric, nýja tölvan
sem ryður sér ákaft til rúms í Bret-
landi um þessar mundir.
Þaö má segja aö fyrsta tölvuskref
heimilanna sé iöulega stigiö af
yngstu kynslóöinni því aö til þessa
hafa leikjaforritin boriö ægishjálm
yfir annan hugbúnaö, en nú eru fyrir-
sjáanleg nokkur umskipti í þessum
efnum eins og fram kemur í spjalli
Heimilistölvan er frábært þroskaieikfang og reyndin er sú að drengir eru þar miklu áhugasamari en stúlkur. Hér
eru sveinarnir Hermann og Óskar niðursokknir i spennandi tölvuleik sem jafnframt kennir þeim eitt og annað um
Bandariki Norður-Ameríku.
^ ^ Mynd-BH.
TOLVUR OG HEIMIU
viö Áma Kr. Einarsson hér I
opnunni.
Tölvuvæðing heimilanna kann aö
hafa djúptæk áhrif á samfélags-
geröina þegar fram í sækir. Um
þetta atriði eru fróðir menn
nokkumveginn einhuga þó aö þá
greini á um margt sem tölvuþróun
áhrærir. Þess vegna er mikils virði
að Islendingar dragist ekki aftur úr
öðmm þjóöum í tölvuvæðingu
heimilanna. Það er nauösynlegt aö
landsmenn eigi kost á heimilis-
tölvum viö sitt hæfi, ekki bara þeir
sem búa á höfuðborgarsvæðinu
heldur einnig þeir sem þreyja sitt
æviskeiö úti um annes og eyjar og
upp til dala. Þaö er æskilegt og
raunar nauðsynlegt aö ríkisvaldiö
stilli álagningu sinni á vélbúnaö og
hugbúnað í nokkurt hóf svo aö hinir
efnaminni þegnar eigi jafnan kost og
aðrir til þess að fá sér tölvu.
Þaö er brýnt nauðsynjamál að
kvenþjóðin láti ekki þessa stórkost-
legu framvindu eins og vind um eyr-
un þjóta, því aö þá væri allt þeirra
mikla jafnræðisstarf fyrir gýg unniö
— en því miöur bendir allt til þess aö
íslenskar konur ætli aö láta karl-
þjóöina um tölvuleikni og tölvu-
kunnáttu, en veröa sjálfar annars
flokks þegnar í landi framtíöarinnar.
Kvenþjóðin sýnir tölvunum undravert fálæti en alltaf er yfrið framboð af lag-
legum stelpum til fyrirsætustarfa, — sem betur fer myndi víst margur segja. Er
þetta visbending þess að konur séu undir niðri ágætlega sáttar við sitt foma
kynhlutverk og kæri sig ekkert um að ná jafnstöðu við karlmenn í atvinnulíf inu?