Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1983, Side 40
AUGLÝSINGAR
.AiXJ/mÆ, SÍÐUMÚLA33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI11
86611
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983.
Nýja Bláfjallalyftan
gölluð:
Vírarnir slitn-
uðu—stólarn-
ir hrundu
Erlendir sérfræðingar í skíöalyftu-
málum komu með hraði tii landsins í
gær eftir að ljóst var að nýja skíöalyft-
an í Bláfjöllum var að hluta til fallin til
jaröar öllum að óvörum. Göngumenn í
Bláfjöllum urðu þess varir síðdegis á
sunnudag að vírar lyftunnar höföu
slitnaö, stólamir dingluðu í strengjun-
um og nokkrir höföu alveg falhð frá og
lágu á jörðinni. Alls munu um 90 stólar
vera í lyftunni og hefur veriö unnið að
uppsetningu hennar í allt sumar.
„Þetta er með öllu óskiljanlegt,”
sagði Elín Pálmadóttir, formaður
stjórnar Bláfjallafólkvangs, í samtali
við DV. ,,Skíðalyftuvírar eins og þessir
eiga aö þola margfalt átak miöað viö
fullfermi og höfðum viö meira að segja
pantað sérstaklega sterkan vír í þessa
lyftu vegna veðurlags hér á landi.
Þrátt fyrir það slitnar hann án þess að
nokkur hafi þar nálægt komið.”
Að sögn Elínar kemur atvik þetta
framleiðendum lyftunnar jafnmikiö á
óvart og Íslendingum og biöu þeir ekki
boðanna heldur sendu þegar í stað þrjá
sérfræðinga hingaö til lands, prófessor
frá Ziirich-háskóla, sérfræöing frá
framleiöanda lyftunnar og annan frá
framleiðanda víranna. Eru þeir þegar
komnir upp í Bláfjöll. -EIR.
Bústaðurinn
stóð í
björtu báli
Slökkviliðið í Reykjavik var kaliað í
nótt upp á Miðdalsheiði en þaðan barst
tilkynning um að sumarbústaður væri
að brenna.
Þegar liðið kom á staðinn var
bústaöurinn alelda og ekkert hægt aö
gera til að bjarga honum. Var áhersla
lögð á að bjarga nærliggjandi bygging-
um og gróðri. Bústaöurinn var mann-
laus og eldsupptök eru ókunn.
Á sama tíma og slökkviliðiö var á
Miödalsheiöi fór eldvarnakerfi
Tollvörugeymslunnar í gang. Sem.
betur fer reyndist aöeins vera um að
ræða bilun í kerfinu og við það fór þá
allt í gang — eða sjálft kerfið á slökkvi-
stöðinni og þar með um leið allt nær-
tæktslökkvilið. -klp
Brælaá
loðnumiðum
Það fór að bræla á loðnumiðunum í
gær og engin veiði þar í nótt. Þegar
veðrið fór aö versna héldu 11 bátar til
lands með slatta sem gerði samtals
2,640 tonn. -GS
0 /
% |
LOKI
Þeir eru að ávaxta sitt
pund.
Sterkar likur benda til þess að
tugir togara séu að stunda meirihátt-
ar smáfiskadráp norður á Kögur-
grunni þessa stundina. „Eg hef heyrt
þetta víða að og er að vínna að því að
koma eftirlitsmanni á svæðið hið
allra fyrsta,” sagði Einar Jónsson
fiskifræðingur er DV bar þetta undir
hann síödegis í gær. Einarskipulegg-
ur störf eftirlitsmanna sjávarútvegs-
ráðuneytisins sem m.a. hafa vald til
skyndilokana á svæðum þar sem
mikið er um smáfisk.
Um og upp úr helginni hafa borist
fréttir af góðri þorskveiði í kantinum
á milli Víkuráls og Hala. Nokkrir
togarar hafa þegar landað vænum
þorski eftir veiðar þar í síðustu viku.
En á sunnudag virðist þorskurinn
hafa slegið sér út af kantinum niöur
á dýpið á Grænlandssundi og datt
veiðin þá niður. Þá voru þar tugir
togara sem færðu sig norð-austur
fyrir Hala, yfir á Kögurgrunn.
Vitað er að þar er nú mikið af smá-
fiski eins og mjög oft endranær enda
hefur skyndilokunum hvaö oftast
verið beitt á Kögurgrunni af allri
smáfiskaslóð við landið.
Þá hefur reynsla undanfarinna
áratuga verið sú að vænan þrosk
hefur verið að fá á áðumefndum
kanti um miðjan nóvember eins og
nú föíkst. Það hefur að vísu brugðist
sl. tvö ár. Á þessum tíma hefur því
ávallt verið mikill togarafloti á svæð-
inu og oftast hefur ævintýrið endað i
smáfiski á Kögurgrunni eins og nú
enda er stutt að færa sig þangað.
Einn eftirlitsmaður sjávarútvegs-
ráðuneytisins hefur undanfarna
daga verið um borð í togara sem var
í góðu f iskiríi í Víkurál, en það vekur'
athygli að í gærkvöldi hafði togarinn
ekki fært sig yfir á Kögurgrunn eins
og flestir hinna þótt veiðin hafi dottið
niður í Víkurálnum. Ekki má grípa
til skyndilokana nema eftirlitsmaður
geti s jálf ur staöfest að þess sé þörf.
-GS.
/ morgun kom varðskip með lík þeirra Þórhalls Karlssonar I ust með TF-RÁN, til Reykjavíkur. Myndin var tekin þegar
flugstjóra og Bjarna Jóhannessonar flugvélstjóra, sem fór- kisturþeirra voru komnar yfir í líkbíla.
DV-mynd: GVA.
ÞRIR MENN
HANDTEKNIR
— vegna gjaldeyrissvika í Landsbanka, Búnaðarbanka
ogÚtvegsbanka
Tveir menn hafa veriö settir í
gæsluvarðhald vegna gjaldeyris-
svikamálsins sem upp kom fyrir
helgi og þriöji maðurinn var hand-
tekinn í gær grunaður um aö eiga að-
ildaðmálinu.
Eins og fram hefur komið eru þeir
taldir hafa svikið út 40 þúsund pund
úr bönkum. Voru þaö að mestu gjald-
eyrisyfirfærslur frá fyrirtæki sem
einn þeirra hafði rekið hérlendis til
fyrirtækja erlendis. Grunur leikur á
aö fyrirtækin erlendis sem áttu að fá
greiöslumar séu ekkl til nema á
pappirunum. Aö hluta til var þessi
upphæð í ferðatékkum. Aðauki lögðu
þeir inn á bankabækur og greiddu
með fölskum ávísunum, en tóku upp-
hæðina jafnharöan út aftur.
Svik þessi áttu sér að minnsta kosti
staö í Landsbanka, Utvegsbanka og
Búnaðarbanka og verið er að kanna
hvort gjaldeyrisumsóknir þeirra
liggi víðar. Vitaö er að þeir hafa lagt
inn umsóknir á Akureyri en ávisana-
heftið sem þeir notuðu var fengið á
Egilsstöðum. Bankarnir hafa endur-
heimt megnið af upphæðinni.
OEF
Fannst látinn
fyrir neðan
hlíðina
Eins og sagt var frá í DV í gær fannst
rjúpnaskytta látin i gærmorgun
skammt frá bænum Dæli í Sæmundar-
hliðiSkagafirði.
Leit að manninum, sem hét Sæmund-
ur Jónsson og var frá Fosshóli í
Sæmundarhlíð, hafði staðið yfir alla
nóttina. Fannst hann fyrir neöan snar-
bratta hlið sem hann mun hafa ætlað
aðfara um.
Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er
rannsókn á slysinu enn ekki lokið og
ekki hægt aö fullyrða á þessu stigi
hvort þama hafi verið um að ræöa
voðaskot eins og sagt hafi verið í öðr-
umfréttum.
-klp