Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1983, Blaðsíða 3
DV. MÁNUDAGUR19. DESEMBER1983.
3
* * t
m
ii
iii
ORGEL SKEMMTARI
Banaslys á Eyrarbakkavegi:
ÁLEIÐÁ
JÓLAGLEÐI
VarJón
Sigurðs-
son forseti
lýðveld-
isins?
— skoðanakönnun
bendirtilaðstór
hluti þjóðarinnar
álíti það ;
Veist þú hver var fyrsti forseti
íslenska lýöveldisins? Ef til vill Jón
Sigurðsson? Svo er að minnsta kosti
skoðun 17,5% þeirra sem svöruðu
spurningu þess efnis í skoðanakönnun
sem Kaupþing hf. gerði nýlega. En
veist þú hvenær kristni var lögtekin á
Islandi? Ekki það nei. Það vissi heldur
ekki helmingur þeirra sem spurðir
voru.
Skoöanakönnun Kaupþings hf. náði
til 800 þátttakenda um allt land, á aldr-
inum 16 til 67 ára, og var úrtakið valið
með tilliti til kyns-, aldurs- og búsetu-
skiptingar eftir þjóöskrá. Fullgild svör
voru frá 79,5% úrtaksins og 5% neituöu
að svara. Könnunin var gerö meö sím-
tölum og heimsóknum á tímabilinu 3.
tilll. desember.
Auk tveggja fyrrgreindra
spurninga var spurt: Telur þú aö leyfa
ætti einstaklingum að starfrækja út-
varpsstöðvar sem fjármagnaðar yrðu
með auglýsingum? Hlynnt því voru
62,8% aðspurðra, 24,4% voru því mót-
fallin og 12,8% tóku ekki afstöðu. Ibúar
höfuöborgarsvæðisms voru þessu
hlynntari en íbúar í dreifbýli og yngra
fólk var þessu mun hlynntara en það
eldra.
Þeir sem vissu að Sveinn Bjömsson
var fyrsti forseti íslenska lýðveldisins
voru 58,8% aöspurðra, 17,5% héldu að
það hefði verið Jón Sigurðsson, 5,7%
töldu að það hefði verið Asgeú- Ásgeirs-
son en 18% sögðust ekki vita það. Jón
Sigurðsson er greinilega ofar í huga
íbúa dreifbýlisins því 20,4% þeirra
töldu hann hafa verið fyrsta forseta
lýðveldisins.
Tæpur helmingur aðspurðra, eða
49,8%, vissu hvenær kristni var lög-
tekin á Islandi. Þar er oftast miðað við
árið 1000 þótt líkur bendi til að það hafi
verið árið 999. Konur voru þó betur að
sér en karlar að þessu leyti því að
57,8% þeirra gátu tímasett kristni-
tökuna. Hins vegar þekktu 55,6%
aðspurðra íbúa í dreifbýli ekki rétt ár-
Ný íslensk kvikmynd, Skilaboð til Söndru, eftir samnefndri sögu Jökuls Jakobssonar, var frumsýnd á
laugardaginn. Á myndinni rœðir forseti islands, Vigdis Finnbogadóttir, við þrjá aðstandendur kvikmynd-
arinnar, Ragnheiði Harvey, Kristínu Pálsdóttur og Guðnýju Halldórsdóttur. DV-mynd GVA.
Banaslys varð á Eyrarbakkavegi á
föstudagskvöldiö er tveir bílar skullu
saman á veginum. I öðrum bílnum
voru f jögur ungmenni en í hinum fimm
ungmenni frá Stokkseyri. Voru þau
nemendur í fjölbrautaskólanum á
Selfossi og voru á leið á jólagleði
skólans sem haldin var á Hvoli.
Ekki er vitað hvað olli árekstrinum
en mikil hálka var á veginum.
Areksturinn var mjög haröur en
bílarnir köstuöust þó ekki út af veg-
inum. Kom mesta höggið aftan til eða á
hliðina á bílnum sem var að koma frá
Stokkseyri.
I honum var pilturinn sem lést. Hét
hann Guðjón Eggert Einarsson,
Sæbergi, Stokkseyri, og var hann 17
ára gamall. Viö hlið hans sat stúlka og
slasaðist hún mikiö. Er hún m.a.
mjaðmargrindarbrotin og liggur hún
nú á sjúkrahúsi í Reykjavík. Hin
slösuöust minna en flest fengu
skrámur og marbletti.
Þetta er fimmta dauðaslysið sem
orðið hefur á Suðurlandsundirlendinu
á þessu ári. Hafa það allt verið ung-
menni sem látist hafa í þessum um-
ferðarslysum.
-klp-
Technics skemmtarinn
á sér engan líkan. Verð írá kr. 15.900.
VASADISCO
Sony, Panasonic, margar gerðir.
Verð írá kr. 3.735.-
SAMBYGGÐ FERÐATÆKI Panasonic 20w LW,
MW, FM stereo. Kassettutæki. Verð kr. 14.650.-
HLJOM-
BORGARINN
Hljómborgarinn
sívinsceli
kominn aftur.
Verð kr. 5.950,-
HEIMILISTÖLVUR
„AQXJARIUS"
Tölva með
mikla möguleika.
Verð frá kr.
4.600.-
FERÐATÆKI
Sony, Panasonic.
Verð írá kr. 7.950.-
giáíavörur fvrir alla
fjölskylduna
PANASONIC
RAKVÉLAR
Fyrsta raímagnsrakvélin
sem má nota jaínt með
og án raksápu.
Verð frá kr. 1.270.-
KLUKKUUTV ORP
Sony, Panasonic.
Verð írá kr. 2.650.-
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11 SÍMI 27022
•ðjAPIS hf.
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133