Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1983, Page 16
16
DV. MÁNUDAGUR19. DESEMBER1983.
Spurningin
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Fylgdist þú með þættinum
Skiptar skoðanir síðasta
þriðjudag, þar sem fjallað
var um mál lögreglunnar í
Reykjavík.
Jóhanna Jóhanncsdóttir húsmóðir: Já,
ég gerði þaö, þetta var athyglisveröur
þáttur og á f ullan rétt á sér.
Kolfinna Haraldsdóttir húsmóðir: Nei,
ekki get ég sagt þaö. Eg var aö gera
annaö og haföi bara ekki tíma til aö
horfa á sjónvarpið.
Guðrún Sigurðardóttir húsmóöir: Nei,
ég mátti ekki vera að því. Eg var að
þrífa. En svona þáttur á fullan rétt á
sér.
Guðjón Ingvason flugumferðarstjóri:
Já, þetta voru ágætis umræður. Lög-
reglan er greinilega undir mikilli
pressu í sinni vinnu.
Skarphéðinn Eyþórsson framkvæmda-
stjóri: Já, og með miklum áhuga.
Þetta var eins og ég átti von á frá
lögreglunni, svör og annað. Það er
orðiö tímabært aö láta þetta koma
fram.
Fríða Einarsdóttir húsmóðir: Nei, ég
horfði ekkert á sjónvarp þá. Eg fór í •
bíó. Eg hef ekkert fylgst með þessari'
umfjöllun.
Atvinnuöryggi sjómanna
—fótumtroðið
Sigrún Haraldsdóttir, sjómannskona,
skrifar:
Þó hægt sé að hrósa LlU fyrir
frammistöðu sína við lausn á vanda út-
gerðarinnar er ekki hægt aö segja þaö
sama um Sjómannafélag Reykjavíkur
um lausn á vanda s jómanna.
Félagið hefur þagaö þunnu hljóði,
ekki komið til varnar þeim mönnum
sem treysta á félagið, enda fer þeim
fækkandi.
Mikið hefur verið rætt um fækkun í
fiskiskipaflota, en hvað um mennina
sem neyðast til að ganga á land. Hvaö
geta þeir gert?
Talað hefur veriö um að fækka í flot-
anum um 30 skip, en hvaö er þaö á
móts við uppsagnir 400 til 450 sjó-
manna? Er ekki kominn tími til að
láta slag standa og gera eitthvað í mál-
umsjómanna?
Þeir eru nú á 3ja ára gömlum launa-
taxta, aðrar breytingar eru bara að
nafninu til. Þeir eru algerlega rétt-
lausir gagnvart atvinnurekendum sín-
um, sem oft stöðva skipin og nota sjó-
mennina sem þrýstihóp fyrir sig
vegna samninga sem að engu gera
skyldur þær sem atvinnurekendur
hafa gagnvart launþegum sínum.
Sjómenn þurfa aö gera það sem at-
vinnurekendur þeirra segja þeim að
gera, dytta að skipinu og fleira sem í
raun er ekki þeirra verk. Þeim er sagt
upp fyrirvaralaust eftir að útgerðar-
menn uppgötvuðu að þeir gátu túlkað
samning sjómanna á þann hátt að þeir
væru ekki skyldugir til aö greiða sjó-
mönnum laun út uppsagnarfrestinn.
Þessir sjómenn eru greinilega af Akureyrartogara. En bréfritarí krefst þess
að róttur sjómanna tii atvinnuöryggis só virtur.
Réttur sjómanna til atvinnuöryggis, inn tími til að við gerum eitthvað í því
sem hver landsmaður hefur rétt á, er að tryggja okkur rétt til atvinnuörygg-
fótumtroðinn. Sjómenn, það er kom- is.
Yfirleitt
góðir drengir
örlygur Pétursson hringdi:
Arásir þær sem Jónas Kristjáns-
son og Ragnar Aöalsteinsson stóöu
fyrir á hendur Bjarka Eh'assyni og
Einari Bjamasyni voru argasta
ósvífni.
Lögreglan er alltaf boðin og búin
að aðstoða samborgarana, þær skoð-
anir að lögreglumenn séu haldnir of-
beldishneigð eru ekki réttar. Mín
skoðun er sú að yfirleitt séu þetta
góðir drengir.
Ef lögreglan gerist þunghent þá er
þaö hinum handtekna aö kenna.
Ekki má sýna lögreglunni mótþróa.
Ef lögreglan ætlar að handtaka
menn þá gerir hún það, og varast ber
að lenda í útistööum viö lögregluna.
Með því að sýna mótþróa býöur
maöur hættunni heim. Blaðamaöur
sá sem segist hafa lent í útistöðum
viö lögregluna hefði ekki átt í fyrsta
lagi að fara í fatageymslu skemmti-
staðarins, síðan hefði hann ekki átt
að sýna mótþróa við yfirvaldið,
hvorki dyraverði né lögreglu. Hann
á stærstan þátt í því hvemig fer.
Eg skil ekki hvað lögmaðurinn
var að tala um samtryggingu meðal
lögreglumanna, samtrygging lög-
manna er meö ólíkindum. Lögmenn
styöjast ekki viö lögin til að vemda
fólk heldur nota þeir lögin tii aö
beita fólk rangindum. Ýmislegt
mætti finna að þeirra vinnubrögðum
og ættu þeir ekki aö fara meö ósann-
girni og illgirni í garö lögreglunnar.
„Þegar pabbi dó”:
ATHYGLISVERÐ BOK
Sigríður Stefánsdóttir fóstra skrifar:
Mig langar til aö benda á bók sem
kom út nú fyrir jólin. Hún heitir Þeg-
ar pabbi dó og fjallar um það hvernig!
ungur drengur, sem missir föður
sinn, skynjar dauðann. Bókin er vel
skrifuö af hreinskilni og einlægleika. .
Eg las bókina fyrir nokkur 6 til 10'
ára böm. Þar sem yfirleitt er ekki
rætt um shka hluti lék mér forvitni á
aö vita hvernig þeim líkaði bókin.
Börnin höföu greinilega áhuga á
efninu og hlýddu á þaö af athygli. i
Þeirra álit var að bókin væri sorgleg,
en góð og spunnust miklar umræöur
um cjauðann, hfið og tilveruna. Bók-
in hjálpar til við að reifa þetta við-'
kvæma umræðuefni á einfaldan og!
hreinskihnn hátt.
Brófritari segir aö það só hinum handtekna að kenna ef lögreglan gerist
þunghent. Ekki megi sýna lögregluna mótþróa.
Opið
alla laugard. kl. 10
alla sunnud. kl. 14
Vegglampar — 3 gerðir
Lampar — margar garðir
Postulín, hvítt Smákökukrukkur
ogsvart
Jólagjöf barnanna
HAMRAB0RG 12 KÓPAV0GI
SÍMI 46460
Pillyviut, hvíta postulínið frá
Frakklandi — matar- og kaffistell