Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1983, Side 28
28
DV. MÁNUDAGUR19. DESEMBER1983.
Einvígi Kasparovs og Kortsnojs í London lokið:
Kasparov klykktí út með sigri
— og öruggur sigur hans í einvíginuíhöfn
Hinn tvítugi Sovétmaður, Garrí
Kasparov, tryggði sér sigurinn í
áskorendaeinvíginu við Viktor
Kortsnoj í Lundúnum á föstudag,
með sigri í 11. einvígisskákinni.
Kasparov nægði jafntefli í þeirri
skák en glæfraleg taflmennska
Kortsnojs í byrjuninni gaf honum
drjúga ástæðu til þess að tefla til
vinnings. Kasparov, sem hafði hvítt,
kom riddara sínum í sterka stööu á 6.
reitaröðinni þar sem hann lamaði
athafnafrelsi svörtu mannanna og
eftir uppskipti kom frelsingi í hans
stað. Skákina tefldi Kasparov af
miklum krafti, fórnaöi peði og virk
staða hans réð úrslitum. Kortsnoj
gafst upp eftir 32 leiki og ósigur hans,
7—4, varstaöreynd.
Kortsnoj hafði tögl og hagldir
framan af einvíginu, vann fyrstu
skákina og í næstu fjórum skákum
komst Kasparov ekki að meö hefndir
— öllum lauk meö jafntefli. Vendi-
punktur einvígisins var 6. skákin,
sem var jafnframt lengsta skák ein-
vígisins, eða 77 leikir. Kortsnoj varö
fyrir áfalli er hann lék illilega af sér í'
endataflinu og í næstu skák á eftir
var hann algjörlega óþekkjanlegur.
Tefldi veikt og tapaði sannfærandi. ’
Þá var eins og Kasparov fylltist
sjálfstrausti því að í síöari hluta ein-
vígisins örlaði loks á hinni kraft-
miklu taflmennsku sem svo mjög
einkennir skákstíl hans. Kortsnoj sá
ekki sólina og náði aðeins tveimur
jafnteflum í síðustu 6 skákunum.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Viktor Kortsnoj
Benóní-vörn.
Ld4Rf62.c4e63.g3c5
Kortsnoj þarf nauösynlega á vinn-
ingi aö halda og sneiðir því framhjá .
katalónsku byrjuninni, sem upp
kemur eftir 3-d5.
4.d5exd55.cxd5b5
, Ætti ekki að hafa komið Kasparov
á óvart, því að Kortsnoj tefldi m.a.
þannig gegn Portisch á ólympíu-
skákmótinu í Luzern í fyrra.
6. Bg2 d6 7. b4! ?
Nýjasta framlagiö í þessu afbrigði,
ættað frá skák Sosonko við Timman
á mótinu í Tilburg í fyrra. Timman
lék nú 7.-cxb4, en hvítur hafði frum-
kvæöiö eftir 8.a3! bxa3 9.Rxa3 Dd7
10.Db3 o.s.frv., þótt skákinni hafi
lokið með jafntefli. Kortsnoj fer aðra
leið, sem virðist þó ekki traustvekj-
andi.
7. -Ra6 8.bxc5 Rxc5 9.Rf3 g6 10.0-0
Bg7 ll.Rd4!
Afleiðingar 7. leiks hvíts koma í
ljós. Riddarinn hefur aðgang að d4-
reitnum og kemst til c6, en riddari á
6. reitaröð valdaður af peði er gulls
ígildi.
11.-0-0 12.Rc3 a6 13.Re6 Dc7 14.Be3
Bb715.Bd4 Hfe816.a4! bxa4
Skák
Jón L. Árnason
Eftir 16.-Bxc6 17.dxc6 b4 18.Bxf6
bxc3 19.Bxg7 Kxg7 20.Dd4+ Kg8
. 21.Ha2! tapar svartur peði bótalaust.
17.Bxc5! dxc5 18.Dxa4 Rd7 19.Db3
Bxc6
Smyslov og Kasparov keppa um réttinn til að skora á heimsmeistarann Karpov.
Riddarinn hafði lamandi áhrif á
svörtu stööuna. Ekki gekk 19.-Bxc3
20. Dxc3 Hxe2? vegna 21.Dd3! Hee8
22. d6! og vinnur — gott dæmi um
áhrifamátt riddarans. 20.dxc6 Rb6
21. Habl Hab8 22.Da3 c4 23.Hfcl
Hótar 24.Dxa6 og síðan Rb5. Stöðu-
yfirburðir hvíts liggja í því að hann
hefur náð að skorða svarta frels-
ingjann í tæka tíð og á c6 á hann ógn-
vekjandi fótgönguliða. Menn svarts
standa einnig illa: Riddarinn á enga
fótfestu og drottning er afleit í því
hlutverki aö reyna að hefta för frels-
ingja (blokkera). En munurinn er
ekki mikill — staöan væri næstum
því samloka ef hvíti riddarinn væri á
b3 og svarta frípeðið á c3...
23.-Bxc3 24.Dxc3 Hxe2 25.Dd4 a5
26.Hb5! a4 27.Bf3 Hee8 28.Dc5 De7
Tapar strax en hvítur hótaði
óþyrmilega 29.Hdbl. 29.c7!
Fellur ekki í gildruna 29.Dxe7
Hxe7 30.Hdbl c3! 31.Hxb6? Hxb6
32.Hxb6 c2 og svartur er á undan.
29.-Dxc5 30.Hxc5 Hbc8 31.Bb7 Rd7
32.H5xc4
— Og Kortsnoj gafst upp.
Jafntefli nægði Smyslov tr/s/gurs
—Smyslov og Kasparov tef la um réttinn til þess að skora á heimsmeistarann Karpov
Eins og viö var búist átti Vassily
Smyslov ekki í erfiðleikum með að
halda jöfnu í 11. einvígisskákinni
gegn Zoltan Ribli, sem tefld var í
Lundúnum á laugardag. Þar meö
tryggði hann sér sigur í einvíginu,
hlaut sex og hálfan vinning gegn f jór-
um og hálfum vinningi Ungverjans.
Það verður því aldursforsetinn,
Vassily Smyslov, sem mætir Garrí
Kasparov í einvíginu um réttinn til
þess aö skora á heimsmeistarann
Karpov. Áhugavert einvígi því að
aldursmunur þeirra er hvorki meiri
né minnien42ár.
Smyslov hafði hvítt í elleftu skák-
inni og tefldi aö vanda varfæmislega
byrjun, sem gaf lítið í aðra hönd.
Hins vegar valdi Ribli vafasama leið
því að með bestu taflmennsku hans
hefði staðan orðið jafnteflisleg.
Smyslov fékk biskupaparið og eftir
því sem staöan opnaðist meira varð
frumkvæði hans sterkara. Ribli lenti,
í erfiðleikum og missti mann en
gerðist þá svo djarfur að bjóöa jafn-
tefli. Að öðru jöfnu hefði Smyslov
teflt til þrautar en honum nægði jafn-
tefli til sigurs í einvíginu og tók því
boðinu fegins hendi.
I einvíginu sýndi Smyslov snilldar-
takta og sigur hans var afar sann-
færandi. Fimmta og sjöunda skákin
voru sérlega vel tefldar af hans hálfu
og eftir að hann náði tveggja vinn-
inga forskoti tefldi hann skynsam-
lega svo Ribli komst aldrei í skot-
færi.
Hvítt: Vassily Smyslov
Svart: ZoItanRibli
Nimzo-indversk vöm.
I.d4 Rf6 2.RÍ3 e6 3.c4 b6 4.Rc3 Bb4
5.Bd2 c5 6.a3 Bxc3 7.Bxc3 Bb7 8.e3 0-0
9.Bd3d6
Svartur jafnar taflið léttilega með
9.-d5! 10.0-0 Rbd7 o.s.frv. en stundum
er nauðsynlegt að velja næstbestu
leiðina ef teflt er til vinnings. Lakara
er hins vegar 9. -Re4, vegna 10. Bxe4
11. dxc5 bxc512. Dd6! meðbetra tafli
á hvítt.
10.0-0 Rbd7 ll.De2 Hc8 12.Hfdl cxd4
13.exd4 He814.Hacl Dc715.b3
Hvítur á meira rými og stendur því
betur að vígi, auk þess sem biskupa-
parið gæti orðið skeinuhætt er fram
líða stundir. Smyslov heldur sér fast
því að svartur þarf aö taka verulega
áhættu ef hann ætlar að tefla til vinn-
ings.
15.-a516.h3 h617.Bb2 Db8 18.De3 Bc6
19. a4 Hcd8 20. Ba3 Bb7 21. Bbl Rf8
22.Rh2 R8h7 23.Dg3 Re4 24.De3 f 5?!
Þetta er hæpiö en auövitað vill
hann ekki þráleika með 24.-R4Í6
25.Dg3 o.s.frv.
25.f3 R4f6
abcdefgh
26.d5!
Þannig tryggir Smyslov sér öflugt
frumkvæði. Ef 26. -exd5, þá 27. Dxb6
og svarta peöastaöan er í rúst.
26.-Bc8 27.dxe6 Bxe6 28.Dd3 d5 29x5!
bxc5 30.Hxc5 Rg5 31.Rfl Dd6 32.b4
Rd7 33.Hb5!
Mun sterkara en 33. Hxa5 Re5! og
síðan 34. -Rc4.
33. -Re5 34. bxa5! Dd7 35. De2.i
Með rökréttri taflmennsku hefur
Smyslov náö yfirburöastöðu.
35.-Bf7 36.Df2 d4(?) 37.f4
Vinnur lið, því aö 37.-Rc4 má svara
með 38.Bxf5 með vænlegri stööu.
37.-Re4 38.Bxe4 Rg4! ?
Eftir 38.-fxe5 39.fxe5 lokast e-línan
og svartur hefur alls ekki nægar
bætur fyrir manninn. Textaleikurinn
er besta tilraunin en miöborðspeðin
næg ja þó varla til að vega upp á móti
mannstapinu eftir 39.hxg4 fxe4. Ribli
tók því til bragðs að bjóða jafntefli,
sem Smyslov þáði. Betri einn fugl í
hendi en tveir í skógi.