Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1983, Qupperneq 44
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
~ m
í»fr “
ASTROS NR4
/ HEIMSMEISTARAKEPPNINNI íDISKÓDANSI
Ástrós Gunnarsdóttír, 19 éra Reykjavíkurmær, vann það afrek fyrír
skömmu að ríá fjóröa sæti i heimsmeistarakeppni i diskódansi. Er
það ekki svo lítið þegar haft er i huga að keppendur voru alls 32 fré
jafnmörgum þjóðlöndum. Ástrós býr i Stóragerði i Reykjavík og
stundar nám við Menntaskólann i Hamrahlið og stefnir að stúdents-
prófi um jólin.
,,Ég hef mestan éhuga á jassballet og nútimaballett og er staðráð-
in i að fara utan til náms i þeim fræðum hið fyrsta," segir Ástrós,
„tit Bretlands, Bandarikjanna eða Þýskalands. "
Ástrós se'gir þátttöku sina i heimsmeistarakeppninni hreina tilvilj-
un, hún hafi sýnt dans með dansstúdiói Sóleyjar og langað til að
keppa. ,,Ekkert frekar i heimsmeistarakeppninni heldur bara ein-
hverrí keppni."
Danssporum Ástrósar, sem hún tók i London og tryggðu henni
fjórða sætið, hefur verið sjónvarpað um viða veröld en þrátt fyrir
það hafa henni ekki boðist nein tilboð utan úr hinum stóra heimi,
ekki einu sinni fengið aðdáendabréf... „en mér er alveg sama um
það".
Að sögn Ástrpsar hefur diskódans tekið miklum breytingum að
undanförnu, núoröið sé þetta órðin blanda af dansi, leikfimi og
akrobatik, ágætis trimm fyrir þá sem vilja halda linum í lagi. Sjálf er
Astrós 50 kg, hún dansar hvar sem er, heima hjá sér, úti á götum og
jafnvel í friminútunum i Harmablið. En tónlistin verður lika að vera i
takt og uppáhaldslagið hennar Ástrósar þessa stupdina heitir ein-
faldlega: Hey You Rock Steady Crew. . . .
-EIR.
Hvar er
mamma?
Ekki er allt sem sýnist, ekki einu
sinni músaveiðar. Það sannaðist á
ungum íslenskum hjónum, búsett-
um í New York, þegar þau tóku sig
til og ætluðu að losa sig við mús,
eina sem sannanlega hafði gert
vart við sig í íbúð þeirra. Músa-:
gildra af gömlu gerðinni var sett
upp með osti og tilheyrandi og sú
Jitla gekk í gildruna eins og ráð'
hafðiveriðfyrirgert.
Allir voru ánægöir þar til næsta |
morgun er risið var úr rekkju.
Fyrir utan litlu músarholuna stóðu;
12 örsmáir músarungar og úr aug-
um þeirra mátti iesa: — Hvar er'
Rómversk
beinagrmd
— kemur breskum
hommaákaldan
klaka
Peter Reyn-Bardt, búsettur í
norðvestur-hluta Englands, var
heldur óheppinn nú fyrir skömmu.
Fyrir tilviljun fannst beinagrind í
garöinum hjá honum og þegar
hann var spurður út í fundinn viö-
urkenndi hann að hafa myrt konu
sína fyrir 23 árum. Hún hafði verið
að biðja hann um peninga og gerði
Peter sér þá lítið fyrir og kyrkti
kvenmanninn.
Peter Reyn-Bardt hafði álitið
verknaðinn hinn fullkomna glæp
sem aldrei kæmist upp og þaö hefði
auðveldlega getað oröið svo ef
Peter hefði ekki veriö of fljótur á
sér þegar beinagrindin kom upp í
garðinum hjá honum. Beinagrind-
in var nefnilega ekki af konunni
hans heldur af rómverskum her-
manni og hvorki meira né minna
en 1573 ára gömul. „Beinagrindin
mun vera frá því áriö 410,” sagöi
dómarinn í réttinum.
Peter Reyn-Bardt og kona hans,
Malika de Femandes, komust á
forsíður flestra breskra dagblaða
þegar þau giftu sig árið 1959 eftir
að hafa þekkst i aðeins tvær
klukkustundir. Var eftir þeim haft
að þama væri á ferðinni ást viö
fyrstu sýn. Faðir brúðgumans hef-
ur aftur á móti lýst því yfir í réttar-
höldunum að þama hafi verið á
ferðinni plat-hjónaband, Peter son-
ur sinn, hafi verið hommi og viljaö
villa samstarfsmönnum sinum hjá
bresku flugfélagi sýn meö þessum
ráðahag. Og konan hefði einvörö-
ungu kvænst honum til að fá aö
fljúga frítt með flugfélaginu þar
sem Peter starfaði.
Síðustu fréttir: Peter Reyn-Bardt
hefur verið dæmdur í lífstíðarfang-
elsi.
Olympíuleikarnir 1992
— íBarcelona?
Borgaryfirvöld í Barcelona á
Spáni hafa lýst yfir áhuga sínum á
því að halda ólympíuleikana 1992.
Vonast þau til að 500 ára afmæli
ferðar Kólumbusar yfir hafið frá
Spáni til Ameríku komi samninga-
mönnum þeirra til góða þegar málið
verður tekið fýrir hjá alþjóða
ólympíunefndinni. Aðrar borgir sem
lýst hafa áhuga sínum á leikunum
eru Stokkhólmur, París, Nýja Delhí
og Brisbane í Ástralíu.
Pasqual Maragall, borgarstjóri í
Barcelona, segir borg sína vel í stakk
búna til að takast á við verkefnið,
mikil íþróttamannvirki eru þegar til
staðar og teikningar að því sem vant-
ar liggja klárar á borðum borgar-
stjórans. Einungis á eftir að leita
samþykkis spænsku ríkisstjómar-
innar áður en formleg umsókn verð-
ur send alþjóða ólympíune&idinni í
desember á næsta ári.
,,Kostnaður mun nema 21.000 mill-
jónum króna,” sagði borgarstjórinn
og bætti því viö að þetta væri í fjórða
skipti sem Barcelona „reyndi” við
leikana. Fyrst 1924, þá 1936 og síðast
1972, alltaf án árangurs og þá er að
bíða ogsjá 1992. . .
Nou Camp-leikvangurinn i Barcelona þar sem ólympíueldurinn verður að öllum líkindum tendraður ef
borgarstjóranum i Barceiona verður að ósk sinni um að fá að halda ólympíuleikana 1992. Leikvangurinn
rúmar 120 þúsund áhorfendur.