Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1984, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1984, Qupperneq 20
20 DV. LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR1984. Hótel ísland brennur. Stefán Nikulásson tók þessa mynd en hann fékk vit- neskju um brunann er faðirhans sem vann hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur var vakinn og beðinn um að taka rafmagnið af miðbænum. Eins og sjá má varð ekki við neitt ráðið. Svona leit Hótel ísland út eftir breytingarnar sem gerðar voru á þvi 1901 og fram að brunanum 1944. Takið eftir þviað húsin lengst til vinstri og lengst til hægri á myndinni standa enn, eins og sjá má á nýju myndinni IMyndin fengin hjá Árbæjarsafni). Þessi mynd er tekin norður Aðalstrætið er bruninn var i algleymingi. Ekki sést i hið brennandi hús fyrir eldhafi og reyk. Húsið brann til kaldra kola á tveimur tímum — 40 ár £rá því Hótel ísland brann Aöfaranótt 3. febrúar 1944 eöa fyrir réttum 40 árum, varð stórbruni í miðborg Reykjavíkur. Þá brann Hótel Island sem stóð á horni Austurstrætis og Aöalstrætis þar sem nú er bílastæði, almennt kallað Hallærisplanið. Hótel Island var annað stærsta gistihús Reykjavíkur og stærsta timburhús borgarinnar. Einn maður fórst í brunanum og þótti það vel sloppið miðað við hve hótelið brann á . skömmum tíma. Alls voru 48 manns í húsinu er eldurinn kom upp. Hótelinu ekki bjargað Þaö var um klukkan 2.25 sem starfs- stúlka á hótelinu, Rósa Sigfúsdóttir, varð eldsins vör. Vaknaöi hún við eitthvert snark og sá að eldur var kominn í veggi geymsluherbergis á efstu hæð hússins þar sem hún bjó. Vakti hún alla sem á hæðinni bjuggu í snarheitum. Meðal þeirra var Ester Rosenberg dóttir eiganda hótelsins. Samantekt: Sigurður Þér Salvarsson Myndir: Stefán Mkulásson og Einar Ólason Hún hljóp þegar niður á skrifstofu hótelsins og lét slökkviliðið vita af eldinum. Þegar svo slökkviliðið kom á Staðinn skömmu síðar voru flestir komnir út úr húsinu, margir hverjir fáklæddir. Veður var mjög óhagstætt til slökkvi- starfa, norðan stormur og 12—13 gráða frost. Fljótlega varð ljóst að Hótel Islandi yrði ekki bjargað og beindist slökkvistarfið fyrst og fremst að því að bjarga nærliggjandi húsum í Austur- stræti, Aðalstræti og Vallarstræti. Tókst það giftusamlega og þótti mikið afrek. Hótel Island brann til kaldra kola á tæpum tveimur tímum. Efsta hæðin alelda Slökkviliösstjóri Reykjavíkur er þetta gerðist var Pétur Ingimundarson og í Vísi fimmtudaginn 3. febrúar 1944 er þessa frásögn hans að finna: „Mér var fyrst tilkynnt um elds- voðann klukkan 2.29 eftir miönætti og fór þá þegar á vettvang. Þegar ég kom á Hótel Islandi virtist efsta hæð hússins alelda og logatungur stóðu út um glugga er sneru að Austurstræti og Aöalstræti. Fólkið var flest komið út, fáklætt mjög. Sumir höfðu náð í hand- Lóðin Austursír æti 2: Frá pakkhiisi til bflaplans Sögu húsbygginga á lóöinni Austurstræti 2 má rekjá aftur til árs- ins 1790 um það bil. Þar mun þá hafa verið pakkhús í eigu Sunckenbergs kaupmanns, og er sagt hafa verið úr timburstokkum, líklega úr stokk- verki. Hús þetta mun hafa verið rifið skömmu eftir aldamótin 1800 og í staðinn reisti þar Einar Jónsson íbúðarhús og verslun. Ibúðarhúsið var úr bindingi múruðum úr múr- steini og borðaklætt, en verslunar- húsið úr ómúruðum bindingi. Kort frá 1836 sýnir þessi tvö hús á lóöinni og snýr annað í norður og suður á homi Austurstrætís og Aðal- strætis, en hitt sunnar og snýr i austur og vestur. Húsin voru þá skráð eign Jafets Johnson (sonar EinarsJónssonar). Jafet seldi svo eignina áriö 1845 R.P. Tærgesen kaupmanni og tveimur árum síðar byggði hann á lóðinni, liklega vörugeymsluhús, á homi Veltusunds og Vallarstrætis. Gildaskálinn Um 1860 keypti Nieis Jörgensen lóöina og hóf veitingasölu i húsinu sem stóð á homi Austurstrætis og Aðalstrætis. Nefndi hann veitinga- húsið Gildaskálann. Iængdi hann húsiö til suöurs meðfram Aöalstræti. Sagt er að Jörgensen hafi áformað aö reisa á lóðinni stórt hótel en hann dó áður en af því yrði, árið 1875. Ekkja hans gekk skömmu síöar (fyrir 1879) að eiga Johan Hallberg skipstjóra sem tók við veitinga- mannsstarfinu. Arið 1882 lét Hallberg byggja tví- lyft hús við Austurstræti, áfast gamla húsinu á horni Aöalstrætis og Austurstrætis. Austan við tvílyfta húsiö og áfast því lét hann reisa ein- lyft hús, sem sneri norður og suöur, á horni Austurstrætis og Veltusunds. Hótel ísland Einhverntíma á þessum árum tekur Hallberg upp nafnið Hótel Island á veitingahúsinu. I lýsingu frá því um 1888 segir að í Hótel Islandi hafi veriö þrjár veitingastofur, Al- menningur, Svinastían og Káetan. Var Svinastían eins konar ölkrá, þar sem menn drakku standandi, og var nefnd svo til óvirðingar þeim er hana sóttu. Húsið á homi Veltusunds og Vallarstrætis var notað sem geymsluhús. Þar var einnig tappað á flöskur vín og öl til hótelsins, en þessi vamingur var fluttur inn í ámum. Hesthús var í byggingu sem stóð meðfram Vallarstræti. Arið 1894 reisti Hallberg hús á homi Veltusunds og Vallarstrætis en reif þá geymsluhús er þar var fyrir. Arið eftir byggði hann viðbót með- framVallarstræti. Næstu breytingar á húsunum á lóðinni Austurstræti 2 voru gerðar árið 1901 en þá hækkaði Hallberg álmuna við Austurstræti um eina hæð, lengdi og endurbætti en reif elsta húsiö sem sneri út að Aöal- stræti og byggði þar upp aftur þrílyft hús með turni á horni Austurstrætis og Aðalstrætis. Þannig hélst húsið óbreytt þangaö til þaö brann aðfaranótt 3. febrúar 1944. Hallberg veitingamaður seldi eign- ina 1906 og voru það 12 menn sem keyptu af honum í sameiningu. Þeir áttu húsið í eitt ár en seldu þaö þá nokkrum góðtemplarastúkum. Þær áttu húsið til ársins 1914 er það komst í eigu Islandsbanka. 1912 hófust kvikmyndasýningar í húsinu sem var áfast Hótel Islandi og stóð á horni Veltusunds og Austur- strætis. Var bíóið nefnt Nýja bíó en bíó hafði þá verið rekið í sex ár í Fjalakettinum í húsinu við Aðal- stræti 8. Nýja bíó starfaði í húsinu til 1920 er það flutti í eigið hús viö Austurstræti. Verslanir Islandsbanki var ekki lengi eig- andi Hótel Islands þvi sama ár og hann keypti húsið seldi hann þaö hlutafélaginu „Borg”. H/F „Borg” átti húsið til ársins 1928 er það komst í eigu Alfreds Rosenbergs, sem átti það þangað til þaö brann. Hótel var alltaf rekið i húsinu en upp úr 1920 vora komnar verslanir á neðstu hæö þess, bæði við Austur- stræti og Aðalstræti. Hallærisplanið Allar götur frá því Hótel Island brann hefur verið bifreiðastæði á lóöinni þar sem það stóð. Plan þetta, sem kailað var Hótel IslandspJaniö, varð síðar samkomustaður unglinga á síðkvöldum og fékk þá uppnefnið Hallærisplanið. Lengi hafa menn velt því fýrir sér hvort byggja ætti á lóðinni að nýju en raunverulegar tillögur þess efnis hafa veriö fáar. Ein kom fram 1977 og gerði ráð fyrir bifreiðageymslu- húsi á lóðinni en hugmynd þessi var hluti af nýju heildarskipulagi fyrir allt svæöið frá Kirkjustræti til Hafnarstrætis. Nú þegar þetta er skrifað munu vera komnar fram glænýjar tillögur um lóöina Austurstræti 2 og tilheyra þær hugmyndum að heildarskipulagi fyrir Kvosina svokölluðu eða stóran hluta gamla miðbæjarins. Hug- myndir þessar era svo nýjar að ekki fengust aðrar upplýsingar um hvaö ætti að vera á lóðinni Austurstræti 2, annaðaieinhva’skonarhús. -SþS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.