Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1984, Page 48
IPÞINGHF s.86988
rriEN
Framt^ls-
áhyggjujr?
Láttu Kaupþing hf annast:
-skattframtalið þitt
-reikna út væntanlega skatta
-sjá um kærur ef þess gerist þörf.
1311 _ KAUPÞfNGHF
AFMÆLISGETRAUN
Á
FULLU
ÁSKRIFTARSÍMI
f
07(17? AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLT111
OCC11 RITSTJGRN
OUV I I SÍÐUMÚLA 12-14
AKUREYRI SKIPAGÖTU 13
AFGREIÐSLA (96)25013
BLAÐAMAÐUR (96)26613
Amarf lug fær
Boeing 737
f rá Braathen
Stjórn Amarflugs samþykkti í gær
aö ganga til samninga við norska flug-
félagiö Braathen um kaupleigu á þotu
af gerðinni Boeing 737-200 combi. Gert
'er ráö fyrir aö þotan verði afhent 21.
febrúar næstkomandi.
Arnarflug hefur síðastliðiö ár haft
sams konar þotu á leigu frá hollenska
flugfélaginu Transavia. Sá samningur
rennur út í lok marsmánaðar næst-
komandi.
-KMU.
Grafarvogur:
Gerterráðfyr-
irkapalvæddu
framtíðarhverfi
I hinu nýja byggingarlandi borgar-
innar í Grafarvogi er gert ráð fyrir
kapalvæddu framtíðarhverfi. Að sögn
Þórðar Þorbjamarsonar borgarverk-
fræðings vom lögð plaströr fyrir sjón-
varpskapal í jörðu milli húsa, líkt og
gert er fyrir rafmagns- og símalínur.
Borgarráð samþykkti lagningu
röranna í fyrra.
Borgarverkfræðingur segir aö senni-
lega muni verða gert ráö fyrir kapal-
lögnum í nýjum hverfum í f ramtíöinni.
„Þetta er fyrir þann tíma er boð-
miðlunarsamfélagið verður orðið að
veruleika. Það þarf þá ekki að rífa upp
allargötur.”
-ÞógG
Sýnishornaveður
um helgina
Allra veðra von verður um helgina.
Búist er við vaxandi austanátt fyrri
hluta dagsins i dag, laugardag, með
snjókomu eöa slyddu um sunnan- og
austanvert landið.
Seinnipartinn má búast við lægð yfir
miöju landinu og aö vindur snúist þá i
suðvestan- eða vestanátt með éljum.
A morgun, sunnudag, mun vindur
líklegast snúast í norðanátt meö heldur
kólnandi veðri. Hitastigiö um helgina
verður nærri frostmarki. Sem sé, veðr-
iðverður,,eittsýnishom” umhelgina.
-JGH
LOKI
Er ekki vel tryggt að Jón
vinni?
Gamla Samvinnubankahúsið á Akranesi var rifið i gær. Það víkur fyrir
bilamenningunni sem þarf sin bílastæði. Húsið hefur staðið autt og yfir-
gefið síðasta hálfa árið, eða siðan bankinn flutti sig um set, nokkra metra,
yfir i nýja húsið sem við sjáum á myndinni. Efiaust hefði „þeim gamla"
einhvern tíma brugðið ibrún að fá svo stórvirk tæki á sig sem igær. Er ekki
ólíklegt að hann hefði haldið að bankaræningjar væru komnir i heimsókn.
DV-mynd Dúi Landmark.
UM EIMSKIPSBREFIN
Tveir aðilar virðast nú aðallega
keppa um hlutabréf ríkisins i Eim-
skipafélaginu, Jón Guðmundsson
fasteignasali og Sjóvátrygginga-
félag Islands. Sjóvá er einn
stærsti eigandi Eimskipafélagsins
með 900.000 króna hlutafjáreign.
Með 5,3 prósenta, þriggja milljóna
króna, hlut ríkisins yrði Sjóvá stærsti
hluthafi Eimskips, að hlutafé Eim-
skipafélagsins sjálfs frátöldu. Þaö
hlutafé er þó ekki atkvæðisbært á
aðalfundi. Vegna þess að á aðalfundi
nýtast venjulega aðeins um 50
prósent bréfanna til atkvæða er ljóst
að Sjóvá yröi þar einn sterkasti
aðilinn með yfir 10 prósent nýttra at-
kvæða.
Samkvæmt upplýsingum DV mun
tilboð Sjóvá vera aðeins hærra en
Jóns og eiga að greiöast upp á einu
ári.
Jón Guðmundsson sagði við DV í
gær aö tilboð hans væri gert fyrir
hann sjálfan og hann væri ekki milli-
liður fyrir einhvern annan eins og
talið haföi veriö. Hann sagðist ekki
hafa í hyggju að selja bréfin fljótlega
fengi hann þau keypt.
Líklegt er að þessi 5,3 prósent geti
keypt þeim sæti í stjóm Eimskips
semþauhlýtur.
„Eg er ekkert viss um að þau gætu
leitt til setu í stjóm en það gefur
ákveöna möguleika,” sagði Jón.
, ,Það sem ég er að hugsa um núna er
að Ríkisútvarpið hefur eftir fjármála-
ráðherral.febrúar aðtvö tilboð hafi
borist, mitt og Eimskipafélagsins
sjálfs. Koma hina tilboðin á réttum
tíma? Var þetta lögformlega af-
greitt?”
Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvá-
trygginga, sagði við DV aö tiiboð
fyrirtækis hans hefði borist fyrir til-
skilinn tíma, 1. febrúar. Hann vildi
ekki staðfesta upphæð tilboðsins.
-ÞóG.
IÐUNNARMENN
KAUPA HLUT í
HELGARPÓSTI
Tveir af forráöamönnum bókaút-
gáfunnar Iðunnar hafa keypt 21%
hlut í Helgarpóstinum. Gerðist það
er hlutafé blaðsins var aukiö úr
40.000 króna í tvær milljónir nú um
áramótin.
Ingólfur Margeirsson, ritstjóri og
einn af eigendum Helgarpóstsins,
sagði í viðtali við DV að hlutafé
blaðsins hefði numið 40.000 króna er
núverandi eigendur hefðu tekiö við
því. I desember hefði verið ákveðið
aö auka hlutaféð í tvær milljónir. Þá
hefðu þeir Jóhann Páll Valdimars-
son, forstjóri Iðunnar, og Sigurður
Ragnarsson, skrifstofustjóri útgáf-
unnar, fest kaup á 21% og tveir
eigendur Leturvals heföu keypt 10%
saman.
„Eignarhlutföllin em því þau að
starfsmenn eiga enn langstærstan
hluta,” sagöi Ingólfur. „Við höfum
ákveðið að flytja setningu blaösins
úr Alprenti yfir í Leturval. Þar með
eiga starfsmenn Helgarpóstsins 79%
blaðsins og Jóhann Páll og Siguröur
21% eins og áður sagði.
Ingólfur sagöi að aukningin á
hlutafé hefði veriö gerð til að tryggja
rekstur blaðsins. Hann kvaðst vilja
undirstrika að þeir Jóhann Páll og
Sigurður héfðu keypt sín hlutabréf
sem tveir einstaklingar en ekki í
nafni Iðunnar. „Okkur þótti fengur
aö fá þessa menn inn þar sem þeir
fást viö hliöstæða útgáfu og eru mjög
vel heima í þeim málum,” sagði
Ingólfur.
-JSS
Hafþórá
Græn-
lands-
rækjuna
— leigður til ísafjarðar
íeittár
Hafrannsóknaskipiö Hafþór hefur
nú verið leigt þrem rækjuvinnslu-
stöðvum á Isafirði til eins árs og
verður skipinu á næstunni breytt til
rækjuveiða og frystingar um borð.
Leigutakar em Rækjustöðin hf.,
Rækjuverksmiðja O.N. Olsen hf. og
Rækjuverksmiðjan hf. í Hnífsdal.
Fiskifréttir greina frá þvi að leigu-
takar hyggist leita fyrir sér um veiði-
heimildir við Grænland og þá væntan-
lega á Dohm banka. Eins og DV skýrði
frá í fyrradag em nú rífandi uppgrip
hjá færeyskum rækjutogurum þar. Þá
ætla þeir að leita fyrir sér við Sval-
barða og víðar í norðurhöfum auk
veiða norður af landinu.