Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Qupperneq 6
6
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR1984.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Allt sem þarf í eggjamjólkina. Búið að aðskilja eggin og stífþeyta hvíturnar.
Mjólkinni hellt i pottinn, 2 dl geymdir aðeins,
Og saman við þá er hveitið látið og hrist.
UpplýsingaseðiU;
til samanbutóar á heimiliskostnaði!
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamk'ga sendið okkur þennan svarseðii. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |
andi í upplVsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar |
fjölskvIdu af somu staerð og vðar. Þar að auki cigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki. 1
Nafn áskrifanda ________________________.
Heimili_________________________________________l
i
Sími 1
Fjöldi heimilisfólks____ |
Kostnaðurí janúarl984. [
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.
I
Tilraunaeldhús DV:
EGGJAMJÓLK
—undir- og yfirgrautur
I síðustu viku, þegar viö bárum á
borð nýja soðna ýsu, hrogn og lifur,
höfðum viö í huga að bera einnig fram
eftirrétt. En plássið leyföi ekki meira í
það skiptið. Eftirrétturinn, sem
tilraunaeldhúsið ætlar aö leggja til, er
eggjamjólk. Mjólkurgrautar og -súpur
þóttu hér áður fyrr ómissandi á
borðum hversdags en sá siður hefur þó
verið á undanhaldi.
Þar sem börn og unglingar eru á
heimilum þarf sérstaklega að gæta
þess aö hafa f jölbreyttan og næringar-
ríkan mat á borðum. Yfirleitt má telja
að spónamatur úr mjólk sé vinsæll hjá
bömum. Eggjamjólkin sem við berum
á borð í dag teljum við að falli að
smekk þorra barna. A einu heimili þar
sem þessi grautur var oft á boröum
gekk hann alltaf undir heitinu „undir-
og yfirgrautur” á meðal heimilis-
Hveitiblandan hrærö vel saman við vel heita mjólkina.
Eggjarauðurnar hrærðar ásamt sykrinum í skál.
Heitri mjólkinni hellt smátt og smátt saman við eggja-
rauðurnar i skálinni og síöan eru stifþeyttar eggjahvítum-
ar látnar ofan á með skeið.
Brugðið í ca tvær mmútur undir glóð i ofninn, ef vill.
Þa verða hviturnar gulllitaðar og eggjamjólkin fallegn a
að líta. En þetta er ekki nauðsynlegt.
Þessi mynd þarfnast vart skýringar. Því má þó bæta við að eggjamjólk er vfirleitt vinsæl hjá krökkum. DV-myndir: E.Ö.