Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 9
DV. MIÐ VIKUDAG UR 8. FEBRUAR1984.
9
Útlönd Útlönd Útlönd
Reagan skipar
friðargæslunni
út á herskipin
Haröir bardagar geisuöu í Beirút í
gærkvöldi og í nótt en Reagan Banda-
ríkjaforseti lét undan þrýstingi landa
sinna og skipaði friöargæsluliöinu
bandaríska burt frá Beirút og út á her-
skipin sem hafa haldiö sig undan
strönd Líbanon um alllangt skeiö.
Allur vesturhluti höfuðborgar
Líbanons er nú á valdi hinna herskáu
Shiita-múslima, eftir fimm daga
orrustu viö stjómariierinn. — Reagan
forseti fyrirskipaöi aö herskipin og
herþotur flugmóðurskips þessarar
flotadeildar skuli meö stórskota- og
sprengjuhríð aðstoða stjórnarher
Líbanons við aö verja höfuðborgina.
Bandarísku friöardátarnir 1600
verða fluttir í áföngum út á herskipin
og getur brottflutningur þeirra tekiö
allt aö mánuö.
Áköf skothríð var á mörkum borg-
arhluta austurs og vesturs í Beirút í
nótt þar sem beitt var eldflaugum,
sprengjuvörpum og þyngri vélbyssum.
En herskipið New Jersey hélt uppi
stórskotahríö á skotvígi drúsa.
Innan stjórnarhersins mun vera
kominn upp kurr og óstaðfestar fregnir
herma að margir smærri riðlar neiti að
hlýöa fyrirmælum foringjanna.
Ríkir nú fullkomið borgarastríös-
ástand en Walid Jumblatt, leiötogi
drúsa og aðaltalsmaöur stjórnarand-
stæöinga, hefur nú þvertekiö fyrir
nokkrar samningaviðræöur viö
Gemayel forseta, sem nýlega vék frá
forsætisráðherra sínum, aö kröfu and-
stöðunnar sem forsendu fyrir friðar-
viðræðum. — Krefst Jumblatt þess nú
aö Gemayel segi sjálfur af sér.
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
ítrekað fyrri heit sín um fullan stuðn-
ing viö stjóm Líbanons til þess að reyna
að friða landið. Akvörðunin um brott-
flutning friðargæsludáta USA var tek-
in að beiðni Líbanonstjórnar.
íranskur útlagi skotinn
Moröið á íranska hershöföingjanum
í París hefur beint athyglinni aö því
hve mjög andstæðingar klerkastjórn-
arinnar í Iran hafa leitaö sér þar hælis,
eins og Khomeini æðsti prestur geröi
sjálfur á meðan keisarinn var við völd
í Iran. — Hefur enda sambúð Frakk-
lands og Irans fariö hríðversnandi.
Hinn 66 ára gamli hershöfðingi,
Gholam Ali Oveissi, þótti á sínum tíma
ganga mjög hart fram í þjónustu keis-
arans og eignaðist þá marga haturs-
menn. Hann var skotinn til bana á
verslunargötu í París í gær. — Öfga-
samtök sem kalla sig „Jehad” (heilagt
stríð) hafa lýst morðinu á hendur sér.
I fylgd meö hershöfðingjanum var
bróðir hans og var hann sömuleiðis
skotinn til bana.
Olympia
Omega 001
Ljósritunarvélin
sem beðið
hefur verið eftir
Engir stenslar, enginn vökvi, aðeins myndtromla og eitt
framköllunarefni (duft).
Verð og greiðsluskilmálar sem vert er að athuga
AÐEINS EITT
FRAMKÖLLUNAR-
EFNI (DUFT).
Kr. 69.750.-
KJARAIVI
ÁRMULI 22 - REYKJAVÍK - SlMI 83022
CAR RENTAL SERVICE - 75
FAST VERÐ - EKKERT KÍLÓMETRAGJALD
SÖLUSKATTUR INNIFALINN í VERÐI
r> • •
MITSUBISHI
COLT
MITSUBISHI
GALANT
MITSUBISHI
GALANT STATION
Leitið upplýsinga.
SMIÐJUVEGI 44 D - KÓPAVOCI - ICELAND
AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660
KVÖLD OC HELCARSÍMI: 43 631 & 46 211
TELEX 2271 IDN IS
P
| ÁL- OG
| STÁLHURÐIR
| Standard eða
Imeð polyurethane
einangrun.
I Verðhugmynd:
I Hurð, 3x3 m,
- frá kr. 19.600,
■ komplett með
| öllum
| járnum.
| Stuttur afgreiðslufrestur.
Aukið endingu rafgeymisins með því að nota
M AXILIFE
MAXIUFE eyðir skaðlegri súlfatmyndun og held-
ur götunum í plötunum hreinum.
Auðveldar hleðslu geymisins.
Fljótvirkari.
Heldur Ijósunum björtum.
Tryggir tafarlausa rœsingu hreyfilsins jafnvel í
mestu frostum.
Eykur endingu rafgeymisins, hvort sem hann er
nýr eða gamall.
Fæst á öllum bensínstöðvum.
Nýja
MARKAÐSHUSINU
við Sigtún
r vörur
a útsölu!
ALLT Á 1/2 VIRÐI!
Se/jum næstu daga mikið úrva/ af
óútleystum póstverslunarvörum.
T.d. fatnað, gjafavörur, skrautmuni,
búsáhöld, skófatnað o.fl. o.fl.
Allt á V2 virði + söluskattur!
Nýi Grattan vörulistinn er kominn og
fæst ókeypis á staðnum gegn
innborgun á fyrstu pöntun.
VÖRULISTAUMBOÐIÐ