Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR1984.
19
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótt
Atll Eðvaldsson — og
félagar hans, náðu
ekki að fagna sigri í
Köln.
Mikið f jársvikamál komið upp í Belgíu.
Forseti Antwerpen bak við lás og slá:
Græddi mest á
skiptum Péturs
og Czemiatvnski
— tveir fyrrum landsiiðsmenn Belgíu hafa lagt tugi milljóna
inn á bankareikning íSviss
Frá Kristjáni Bernburg — fréttamanni DV í
Belgíu:
— Mikið fjársvika- og hneykslismál er nú
komið upp í Belgíu og hafa tveir kunnir menn ver-
ið settir bak við lás og slá fyrir f járdrátt og svik.
Það eru tveir fyrrverandi landsliðsmenn Belgíu
og annar þeirra er Eddy Walters, forseti Ander-
lecht, sem er einnig æðsti maður kretidkorta-
banka í Belgíu.
Ofan á þetta’bætist að mikiö er nú
rætt um „svörtu peningana” sem hafa
verið í umferð í Belgíu og fyrir sl. helgi
voru tveir kunnir kappar settir í gæslu-
varðhald þar sem veriö er að kanna
fjárdrátt sem þeir hafa tekið þátt í.
Þetta eru þeir Eddy Walters, forseti
Antwerpen, og umboðsmaðurinn Jeff
Jurion, fyrrum leikmaður Anderlecht,
en þessir tveir menn léku saman í
belgíska landsliðinu 1959.
Það á ekki af belgískri knattspyrnu
að ganga. Síðustu fjögur árin hefur
henni farið aftur fremur en að hún hafi
verið á uppleið og er talað um að knatt-
spyrnan sem leikin er í Belgíu sé nú
ekki beint fyrir augað. Leikmenn eins
og Ludo Coeck (Inter Mílanó), Juan
Lozano (Real Madrid), Rod Rensin-
brink, Arie Haan og Ásgeir Sigurvins-
son (Stuttgart) hafi horfiö og enginn
leikmaður náö að fylla þau skörö sem
þeir hafa skilið eftir sig.
áhuga á að
i mér málið”
skýra f rá því að Juventus vilji kaupa Socrates,
dsliðs Brasilfu, fyrir sjö milljónir dollara
synlegt. Napoli hefur áhuga á Junior,
AC Milano á Adilio. Italir leita fanga
víöa. hsím.
eiginkonu og fjórum börnum,” sagði
fyrirliði landsliðs Brasiliu í knatt-
spyrnunni, læknirinn Oliveira Socrat-
es, í blaða viðtali i Sao Paulo i gær.
Þetta er í fyrsta sinn sem Socrates,
einn snjallasti knattspyrnumaður
heims, gefur í skyn að hann vilji leika
erlendis. Fyrir tveimur árum fékk
hann tilboð frá ítölsku liði en neitaði,
jafnvel þó hann yrði ríkur. Sagði þá
m „peningar eru ekki hið eina í lífinu”.
Þá er mikið um það rætt í Brasilíu
að Zico, landsliðsframherjinn snjalli,
sé á leið heim. Formaður meistara
Flamengo, George Helal, hefur sagt að
hann muni safna fjórum milljónum
dollara á næstu tveimur mánuðum til
að kaupa Zico til síns gamla félags frá
Udinese, Italíu. Sama upphæð og
Udinese greiddi Flamengo fyrir Zico í
júní sl. Talið er að Zico fái tvær
milljónir dollara frá Udinese fyrir
þriggja ára samning.
Blaðið 0 Globo í Brasilíu ræddi við
Zico um málið og hann sagði að það
væri gaman að Flamengo væri að
reyna að fá hann á ný. Hins vegar
sagðist hann ekkert vilja skipta sér af
þvi vegna þess að „mér líkar vel í
Udinese og kann vel við hlýleika fólks-
ins, það verð ég að viöurkenna.” Sá
orðrómur hefur gengiö í Rio að
Flamengo ætli að selja tvo þekktustu
leikmenn sína, Adilo og Junior, til að
geta keypt Zico. Helal formaður hefur
hins vegar sagt að það sé ekki nauð-
Oliveira Socrates — fyrirliði
Brasilíu.'
Lögðu inn peninga
í banka í Sviss
Það hefur verið mikið ritað og rætt
um mál þeirra en ljóst er að þeir félag-
ar hafa komiö tugum milljóna belg-
ískra franka í banka í Sviss og eru það
peningar sem þeir hafa grætt og komið
undan vegna kaupa og sölu á leik-
mönnum. Það er ljóst að þeir græddu
mest á félagaskiptum lands-
liðsmannsins Alex Czerniatynski, sem
fór frá Antwerpen til Anderlecht í
skiptum fyrir Pétur Pétursson og Bert
Cluytens 1982. Þeir Pétur og Cluytens
komu til Antwerpen í skiptum fyrir
Czernaiatynski en þar að auki er talið
að Antwerpen hafi einnig fengiö góða
peningaupphæð — 15—20 milljónir
franka — sem voru borgaðar undir
borðið. Þessir peningar fóru beint í
banka í Sviss — komu aldrei fram á
pappírum.
Jeff Jurion hefur áður komiö við
sögu í sambandi viö peningahneyksli í
Belgíu — hann var rekinn frá Lokeren
1976 vegna mútumáls sem þá kom upp
Fillol gerir
það gott
íBrasilíu
Argentínski landsliðs- _
Imarkvörðurinn Ubaldo Fillol, sem |
er byrjaður að leika með Brasilíu-
| meisturunum Flamengo, hefur
• staðið sig frábærlega með félaginu
I að undanförnu. Fttlol sýndi snUld-
■ arleik í gær þegar Flamengo gerði |
_ jafntefli 0—0 í Goias — varði ■
I f jórum slnnum meistaralega.
■ Flamengo hefur fenglð fimm stig I
i úr fyrstu þremur lelkjunum í -
I Brasilín.
IAnnar kunnur markvörður —
Uruguay-maðurinn RodoUo Rodri-
Iguez, sem leikur með Santos, átti I
einnig snilldarleik þegar Santos"
| vann (2—0) ABCNatal.
-SOS.
Alex Czerniatynski — Forseti Ant-
werpen græddi miklar peninga-
upphæðir á að selja hann tU Ander-
lecht.
í Belgíu. Síðan hefur hann haft þá at-
vinnu að selja leikmenn á miUi félaga
eða þar til í sl. viku að hann var hand-
tekinn og settur í steininn. I gær var til-
kynnt að hann yrði í mánaðargæslu-
varðhaldi.
Fékk ekki að ræða við
lögfræðing sinn
A laugardaginn var Eddy Walters
síðan handtekinn og fékk ekki leyfi til
að ræða viö neinn eftir handtökuna —
ekki einu sinni lögfræðing sinn.
Walters hefur gert stóra hluti hjá Ant-
werpen síöan hann tók viö stjóm fé-
lagsins í 2. deUd 1967 — hann breytti þá
greiðslum til leikmanna og þeir fengu
hærri bónus. Það varð tU þess aö málin
fóru að ganga og eftir aðeins tvö ár var
félagið komið að nýju í 1. deUd.
Walters, sem er mikiU vinur Jurion,
er einnig æösti maður kretidkorta-
banka í Belgiu og var mjög virtur.
Þetta mál er mikiU álitshnekkir fyrir
hann og belgíska knattspyrnu.
„Svörtu peningarnir"
Það er ljóst að í kjölfar þessa máls
eiga fleiri mál eftir að koma upp á yfir-
borðiö á næstunni og bendir aUt til að
mikið hneykslimál sé hér í upp-
siglingu.
Það er vitað að í Belgíu er mikið um
svokaUaða ,,svarta peninga” í Belgíu
sem er eitt af fáu löndum í Evrópu þar
sem félög þurfa ekki að gefa upp opin-
berlega kaupveð á leUcmönnum.
Vitað er að miklar peningagreiðslur
fara undir borðið þegar leikmenn eru
keyptir. Hvert fara þessir peningar — í
bankaíSviss?
Nú næstu daga verða margir
kaUaðir fyrir og yfirheyrðir hér í
Belgíu og munum við segja nánar frá
þessu máli þegar línur fara að skýrast.
-KB/-SOS.
(þróttir
(þróttir
Iþróttir
íþrótti
áhuga-
menn í
skíða-
íþrótt-
— segir Svfinn snjalli,
Ingemar Stenmark
„Það eru raunverulega engir áhuga-
menn meðal þeirra sem keppa í heims-
bikarnum á skíðum,” sagði Ingemar
Stenmark á blaðamannafundi í Belgrad
en Elan skíðafyrirtækið bauð honum að
vera viðstaddur vetrar-ólympiuleikana í
Sarajevo. Stenmark notar Elan skiði og
sagði „ég hefði ekki komið hingað
annars því ég má ekki keppa á leikun-
um. Stenmark varð ólympíumeistari
bæði i svigi og stórsvigi á leikunum í
Lake Placid 1980.
„Eg hef trú á því að reglum þeim sem
beitt var til að ég gæti ekki keppt í Sara-
jevo veröi fljótlega breytt. Gengur varla
að vera að beita þeim gegn örfáum
þegar raunverulega allir eru undir sömu
sök seldir,” sagði Stenmark á blaöa-
mannafundinum. Hann var ekki sár eöa
reiður vegna ákvörðunar alþjóðaólym-
piunefndarinnar aö setja bann á hann en
gat þess jafnframt að hann hefði veriö
reiðubúinn til að keppa í Sarajevo ef
hann hefði fengið leyfi til þess.
hsim
Sofnuðu
á verðinum...
— ogUnited varðað
sætta sig við jafntefli
íBirmingham
Birmingham og Manchester United
gerðu jafntefli 2—2 á St. Andrews í Birm-
ingham í gærkvöldi í 1. deildarkeppninni
ensku. Leikmenn United voru klaufar að
tapa — þeir sofnuðu tvlsvar á verðinum
og það kostaði þá tvö mörk. Robert
Hopkins skoraði fyrst fyrir Birmingham
á 6. mín., með glæsilegum skalla. Eftir
það tóku þeir Bryan Robson og Remi
Moses öll tök á miðjunni. Robson lagði
upp jöfnunarmark United 1—1, sem Nor-
man Witheside skoraði og síðan skoraði
ungur nýliði Graeme Hogg 1—2 eftir
fyrirgjöf frá Ray Wilkins. Arthur
Graham og Arthur Albiston fóru illa með
góð marktækifæri — við mark Birm-
ingham. Þegar sjö mín. voru til leiksloka
náði Birmingham að jafna — Billy
Wright úr vitaspymu sem var dæmd á
Mike Duxbury sem feildi Hopklns inn í
vítateig.
-SOS
Fyrsti leikur
Gary Gillespie
Gary Glllespie, sem Liverpool keypti
frá Coventry sl. sumar á 325 þús. pund,
lék sinn fyrsta leik með félaginu gegn
Walsall í deildarbikarkeppninni i gær-
kvöldi. Hann tók stöðu Mark Lawrenson
sem er meiddur i nára. Liverpool lék því
án þriggja lykilmanna sinna - Lawren-
son, Kenny Daglish og Graeme
Souness, en þeir eru einnig meiddir.
-SOS
Bandaríkja-
menn töpuðu
Ölympiumeistarar Bandarikjanna i is-
knattleik máttu þola tap 2—4 fyrir
Kanadamönnum i B-riðli OL i Sarajevo i
gær. Carey Wilson sendi knöttinn í netið
hjá Bandarikjamönnum eftir aðeins 27
sek. og siðan skoraði hann tvisvar til við-
bótar.
Tékkar unnu Norömenn 10—4 og
Finnar lögöu Austurríkismenn 4—3 í B-
riðli. Rússar unnu Pólverja 12—1, V-
Þjóðverjar unnu Júgóslava 8—1 og Svíar
lögðultalill—3í A-riðli. -SOS