Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Page 20
20
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR1984.
Tilkynning til
símnotenda
I samræmi við gildandi gjaldskrá og reglur fyrir símaþjón-
ustu féll rekstrargjald af venjulegum símatalfærum og til-
heyrandi búnaði niður frá og með 1. febrúar 1984. Þess í stað
greiðist fyrir viðgerðir samkvæmt reikningi. Til þessa hefur
viðgerðarkostnaður verið innifalinn í rekstrargjaldi ef um
eðlilegt slit er að ræða.
Viðgerðarþjónusta er að öðru leyti boðin á sama hátt og áður,
en símnotendum bent á, að ódýrara er að koma með símatæki,
sem fengin hafa verið hjá stofnuninni, til viðgerðar á næstu
símstöð eða aðra þá staði hjá stofnuninni þar sem tekið verður
á móti símatækjum til viðgerðar.
Póst- og símamálastofnunin.
M. Benz 240 D árg. 1979,
hvítur, sjálfsk., vökvastýri, ek.
207.000 km.
Verð kr. 400.000,-
Toppbfll - Skipti ath.
Citroen Pallas GSA árg. 1980,
koparsans., útvarp, segulband,
ek. aðeins 43.000 km.
Toppbfll.
Galant 1600 GL árg. 1980, silf-
ursans., vetrardekk, ek. 78.000
Datsun pick-up árg. 1979,
rauður, ek. 56.000 km.
km.
Verð kr. 190.000,-
Toppbfll.
Verð kr. 130.000,-
Skipti á ódýrari.
Scout II árg. 1979, rauður, 8
cyl., sjálfsk., vökvastýri, velti-
stýri, útvarp, segulband, ek.
aðeins 40.000 km, pluss-
klæddur, topplúga, ný dekk og
önnur fylgja.
Verð kr. 400.000,
Toppbfll - Skipti ath.
Nú er tækifærið, snjóbfllinn
GOSI til sölu. Skipti á bfl eða
vélsleða. (Til sýnis á staðnum).
Benz Unimog árg. 1960,
grænn, mjög góð dekk, ek.
31.000 km.
Verð kr. 210.000,-
Skipti á ódýrari ath.
Einnig á staðnum:
BMW 520i árg. 1983, sjálfsk. /
vökvastýri, ek. 19.000 km.
Peugeot 305 GLS árg. 1982,
útvarp/segulband, ek. 33.000
km.
Mazda 323 árg. 1981, ek.
24.000 km.
Subaru 1800 4 x 4 árg. 1982,
útvarp/segulband, ek. 32.000
km.
VW Golf árg. 1982, ek.
10.000 km.
Toyota Carina árg. 1982,
sjálfsk., ek. 4.000 km.
Opel Record dísil árg. 1981,
ek. 70.000 km.
Rat 127 Special árg. 1982, ek.
8.000 km.
Opið virka daga kl. 10 til 19.
Laugardaga kl. 10 til 18.
BILASALAN BLIK
Skeifunni 8, sími 86477.
Útvarpslagafrumvarpið:
Emm aó skoða sam-
keppnisaðstöðu RÚV
— segir fulltrúi Framsóknarflokks
Fulltrúar Framsóknarflokksins eru
enn að skoða frumvarpið að útvarps-
lögum í þeirri endurskoðuðu útgáfu
sem það kom frá menntamálaráð-
herra fyrir u.þ.b. tveimur vikum.
Olafur Þ. Þórðarson og Haraldur
Olafsson, fulltrúar Framsóknarflokks,
hittust ásamt þriðja manni sl. föstudag
og fóru yfir einhverja þætti frumvarps-
ins. Akveðið hefur verið að Haraldur
Olafsson gangi fljótlega á fund
menntamálaráðherra og kynni henni
viðhorf Framsóknarflokks til nýju út-
gáfunnar á frumvarpinu. ,,Þaö eru
vissir þættir sem við höfum verið að
athuga sérstaklega,” sagði Olafur Þ.
Þórðarson, ,,m.a. samkeppnisaðstaöa
ríkisútvarpsins og Haraldur Olafsson
mun spyrja menntamálaráðherra
hvort hún sé tilbúin að aflétta kostnaöi
við Sinfóniuna af „heröum” Ríkisút-
varpsins en sem stendur berRíkisút-
varpið 25 prósent af kostnaöinum við
Sinfóníuhljómsveitlslands.” -HÞ
Á myndinni sjást stjórnarmeðlimir Félags fasteignasala. Frá vinstri: Atii Vagnsson, Þóróifur Halldórsson,
Magnús Axelsson, formaður félagsins, Dan V. S. Wiium og Viðar Böðvarsson.
Forsendur skapast fyrir breytt greiðslukjör ífasteignaviðskiptum:
Útborgun 60% og eft-
irstöðvar til 10 ára
„Viðhorf fólks til greiðslukjara í
fasteignaviðskiptum hafa breyst sam-
fara skyndilegri hjöðnun verðbólgu og
lækkun vaxta. Hátt útborgunarhlutfall
og hraðar útborganir hafa undanfarið
einkennt þessi viðskipti. Nú virðist
sem forsendur hafi skapast til að út-
borgunarhlutfall lækki og lánstími eft-
irstöðva lengist. En til að hægt sé að
lengja lánstímann, til dæmis til 10 ára,
þarf að trygg ja að raungildi eftirstöðv-
anna haldist. Ef það er gert, þá gæti út-
borgun lækkaö niður í 60% af heildar-
verði, svo dæmi sé nefnt.” Þetta kom
fram á fundi sem stjórn Félags fast-
eignasala hélt með blaðamönnum.
„Þessar breytingar eru bæði æski-
legar og mögulegar. En fasteignasalar
geta ekki ákveðið hvaða greiðslukjör
skuli gilda í fasteignaviöskiptum, þau
segir Félag fasteignasala
hafa ávallt mótast af frjálsum samn-
ingum kaupenda og sel jenda. ”
„Félagsmenn í Félagi fasteignasala
geta ekki beitt sér fyrir neinum breyt-
ingum á venjum í fasteigna-
viðskiptum, þeir vilja aðeins benda á
að aðrir möguleikar hafa skapast
vegna breyttra aðstæðna. Ekki er
lengur ástæða til að útborgunarhlutfall
sé allt að 75% þar sem óðaverðbólga er
ekki lengur fyrir hendi,” sagði Magnús
Axelsson, formaður félagsins.
Þessar breytingar kæmu til góða hjá
þeim sem eru aö kaupa sína fyrstu
fasteign og breyttu litlu fyrir hina, þar
sem flestir seljendur eru jafnframt
kaupendur. Þau greiðslukjör sem fé-
lagsmenn tala um eru ekkert nýmæli,
þau hafa tiðkast í einhverjum mæli við
sölu á atvinnufyrirtækjum en ekki náð
útbreiðslu á hinum almenna fasteigna-
markaði.
Félag fasteignasala var stofnaö
síðastliðið sumar og eitt af aðalmark-
miðum félagsins er að auka öryggi i
fasteignaviðskiptum með samræm-
ingu á starfsháttum og viðskiptavenj-
um félagsmanna. Og um leið aö stuðla
að heilbrigðum viðskiptaháttum við
fasteignasölu. Félagsmenn geta þeir
einir oröiö sem hafa lögmæt réttindi til
að kalla sig fasteignasala og hafa fast-
eignasölu að aðalstarfi. Félagsmenn
eru nú þegar 17 að tölu og er Magnús
Axelsson, löggiltur fasteignasali, for-
maður félagsins. Aðrir í stjóm eru þeir
Atli Vagnsson lögfræðingur, Dan V.S.
Wiium lögfræðingur, Viðar Böðvars-
son viðskiptafrseðingur og Þórólfur
Halldórsson lögfræöingur. -öþ
Reykjavíkurborg:
Styrkir fyrirtæki víð dagvistun
„Með þessu móti viljum við virkja
fleiri aðila til að standa aö upp-
byggingu og rekstri dagvistunar,”
sagði Ingibjörg Rafnar borgarfulltrúi
um ákvörðun sem staðfest var af
borgarstjóm sl. fimmtudag um
rekstur einkafyrirtækja á dagvistar-
heimilum.
„Við vorum að endurskoöa reglur
um rekstrarstyrki til einkadagvistar-
aðila og bættum við ákvæði um að gera
einkafyrirtækjum kleift að reka dag-
vistarheimili,” sagði Ingibjörg
Rafnar.
Framkvæmd þessarar nýju
ákvörðunar, sem tekin var af félags-
málaráði og staðfest af borgarstjóm,
er fólgin í 25 prósent styrk af kostnaði
viö dagheimili og skóladagheimili en
17 prósent við leikskóla. Er tekið mið
af meðaltalskostnaði á bam á dag-
vistarheimilum borgarinnar.
Sagði Ingibjörg Rafnar að sambæri-
legar tölur við foreldrasamtök og önn-
ur samtök einkaaðila væru 50 prósent
kostnaður við dagheimili og skóladag-
heimili og 34 prósent við leikskóla. Fá
fyrirtækin nákvæmlega helmingi
minnistyrk.
-HÞ