Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Síða 31
31
DV. MIÐVKUDAGUR 8. FEBRUAR1984.
Sandkorn Sandkúrn Sandkorn
Hver vill
JL-húsið?
Nýlega barst vikublaðtnu
Víkurfréttum í Keflavik
undarlegt bréf frá Fasteigna-
mati ríkisins. Var þar tii-
kynnt að Víkurfélagið hf. í
Keflavík væri eigandi að JL-
búsinu við Hringbraut í
Reykjavík og bœri að greiða
af því fasteignagjöld.
Nafnnúmer Víkurfrétta var á
tilkynningunni.
Forráðamenn brugðu
skjétt vlð og höfðu samband
við Fasteignamatið. Þegar
þeim hafði verið vísað miill
þriggja aðila kom í ljós að
þeir urðu að kæra bréflega til
að fá húsið skráð á annan eig-
anda. Ef þeir gerðu það ekkl
myndu þeir verða að greiða
öll gjöld af „eigninni” án þess
þó að njóta ávaxtanna af arði
hennar.
Þetta mun ekki í fyrsta
skipti, sem Víkurfréttamenn
komast í álnlr á pappírunum
því að í sumar áskotnaðist
þelm forláta sumarbústaður
úti á landi. 1 það skiptið voru
þeir rukkaðir um trygginga-
gjöld af fasteigninni og
sluppu með skrekklnn.
Tilboð í hlutafé rikissjóðs i
Eimskipafélagi tslands hafa
verið allmiktð til umræðu að
undanförnu. Astæðan er m.a.
sú að Helgarpósturinn
greindi frá því að öttarr Möll-
er, fyrrum forstjóri Eim-
skips, stæði að baki einu til-
boðanua. Hafi hann að auki
óskað eftir því vlð f jármála-
ráðherra aö fá setu í stjóm
félagsins.
Nú hefur komið í ljós að
f éttaflutningur þessi átti ekki
við rök að styðjast. Hefur Ött-
arr fengið birtarleiðréttingar
í blöðum og m.a. mun rit-
stjóri Helgarpóstsins hafa
Ottarr Möller, fyrrverandl for-
stjórl Eimskips.
lofað honum að draga „frétt-
ina”tli baka.
Og nú velta menn því fyrir
sér hver standi að bakl þessu
umrædda tilboði i Elmskip.
Er aimælt að það muni vera
Benedlkt Sveinsson, stjómar-
formaður Sjóvá og stjóraar-
maður í Nesskipi.
Spilað á
kerfið?
Það mun ekkl vera algengt
að heil biiasala sé flutt heim á
einkalóð og starfrækt þar.
Þetta gerðist þó á dögunum
þegar Guðfinnur Haildórsson
bílasail flutti fyrirtækl sitt i
einbýiishús við Kambsveg.
Þar starfrækir hann bílasöl-
una með miklum umsvlfum
um þessar mundlr.
Hlnlr framsýnu telja þetta
sterkan leik hjá Guðflnni.
Telja þelr gang mála verða á
þann veg að þegar taki að
Guðfinnur verslar á Kambs-
veginum.
vora setji nokkum óróa að
nágrönnum Guðfinns. Þyki
þeim lítt við hæfi að sjá mis-
fagrar bifreiðar meðal trjá-
girðlnga og rósarunna.
Kvartanir taki því að
streyma til borgaryfirvalda
sem bregði hart við og úthluti
bilasalanum umsvlfalítið lóð
undlr vlðsklptin. Og þar með
sé tarkmarkinu náð, segja
sjáendur vorir.
Svona er
fátæktin
Slggi kom óvenjusnemma
úr vinnunni elnn daglnn.
Hann sá sér til furðu, konu
sina fremur léttklædda uppi í
rúmi.
„Hvers vegna liggurðu
þarna, góða mín?” spurði
Siggi.
„Ég á engan kjól til að
fara í,” svaraði eiginkonan.
„Það getur nú bara ekki
verið,” sagði Siggi, sviptl
upp hurðlnni á klæðaskápnum
og byrjaðl að telja: „Einn,
tveir, þrír, fjórir, sæll Jón,
fimm... ”.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndahátíð — Ameríkuhótelið:
ÞAU HIHUST AF TILVIUUN...
Kvikmyndahátíð—Querelle:
ITÁKNI reðursins
Querelle.
Frakkland—V-Þýskaland 1982.
Leikstjórn: Rainer Werner Fassbinder.
Handrit: RWF, byggt á skóldsögu Jean Genet.
Kvikmyndataka: Xaver Schwarzenberger.
Tónlist: Peer Raben.
Sviðsmynd: Rolf Zehetbauer.
Aðalhlutverk: Brad Davis, Jeanne Moreau,
Franco Nero, GUnther Kaufmann, Laurent
Malet, Hanno Pöschl.
Each man kills the thing he loves
syngur Jeanne Moreau angurværri
röddu fyrir gesti hórubarsins La
Feria í Brest-böðuð gulleitri birtu.
Já, ástin gengur ekki átakalaust
fyrir sig hjá Fassbinder og hefur
aldrei gert.
Sjóliðinn Querelle hefur loks fundið
manninn sem hann elskar en veit
ekki hvernig hann á að tjá ást sína.
Þess vegna sigar hann lögreglunni á
hann.
Querelle er síðasta kvikmynd
Fassbinders, byggð á skáldsögu
franska rithöfundarins Jean Genet.
Þetta er saga um ástir og ástríður og
eins og svo margar myndir höfund-
arins gerist hún á meðal homma;
dulinna, bældra og opinskárra.
Ungur sjóliði er í landlegu og lendir í
ýmsum ástarævintýrum. Á Feria-
bamum hittir hann hina þokkafullu
Lysiane sem allir karlmenn gimast.
En til þess að fá hana þurfa menn að
Heiti: Amerikuhótelið (Hotei des Amóriques).
Leikstjóri: Andró Tóchine.
Kvikmyndun: Bruno Nuytten.
Tónlist: Philippe Sardo.
Handrit: Andró Tóchine og Gilles Taurand.
Aðalhlutverk: Catherine Denevue, Patrick
Dewaere.
Borgin Biarritz í Suöur-Frakklandi
er vettvangur kvikmyndar André
Techine, Ameríkuhótelið. Tvær per-
sónur hittast af tilviljun þegar
Helene (Catherine Denevue) verður
þess valdandi að keyra á Gilles
(Patrick Dewaere)). Þetta er
byrjunin á rómantísku og imi leið
dramatísku sambandi þeirra.
Helen er læknir að mennt en Gilles
er hálfgerð flökkukind sem starfar
að ferðamannaleiðsögu fyrir hótelið
sem hann býr á. Það myndast fljót-
lega sterkt tilfinningasamband milli
þeirra tveggja en þrátt fyrir ítrek-
aðar tiiraunir á báöa bóga ná þau
aldrei saman nema stutta stund. Sér-
staklega er það Gilles sem getur ekki
sætt sig við samband þeirra þegar
Helene (Catherine Deneuve) gætir að sáram Gilles (Patrick Dewaere).
liða tekur á myndina. Kemur bæði til
að honum finnst hann vera notaður
af Helene til að græða gömul sár og
eins er þaö að vinur hans sem hafði
verið mjög háður honum finnst hann
vera að svíkja sig og lætur hann
heyra það í tíma og ótíma.
Þótt Gilles í enda myndarinnar
ætli sér að finna Helene og byrja upp
á nýtt, gleyma öllu ööru, þá hefur
maður á tilfinningunni að þessar
tvær ólíku persónur eigi lítið orðið
eftir sameiginlegt og sama sagan
muni fljótt endurtaka sig.
Það er í raun fátt nýstárlegt við
efni þessarar kvikmyndar. Þetta
hefur allt verið sagt og sýnt áður. Og
André Téchiné fer troðnar slóðir í
efnismeðferð og þrátt fyrir fallega
kvikmyndatöku og frábæran leik
aðalleikendanna er Ameríkuhótelið
frekar bragðdauf kvikmynd og á
köflum jaðrar hún við væmni.
Það sem bjargar Ameríkuhótelinu
frá því að vera hreint út sagt leiðin-
leg er leikur þeirra Denevue og
Dewaere. Chatherine Denevue er
stórgóð sem læknirinn, köld á yfir-
borðinu, en tilfinningarík og hin
trausta stoð sem samband þeirra
Gilles hefði getaö lifað á. Patrick
Dewaere leikur einnig mjög vel hinn
veikgeðja Gilles, sem er hlý persóna,
en áhrifagjarn og hættir til afbrýði-
semi. Hilmar Karlsson.
Jeanne Moreau og Brad Davis í hiut verkum sinum i Querelle.
fara í teningaspil við eiginmanninn,
Nono. Ef gesturinn vinnur fær hann
konuna, ef ekki f ær Nono hann. Quer-
elle tapar og kann því ekki illa. Fleiri ‘
persónur koma til sögunnar, Róbert,
bróðir Querelle, verkamaðurinn Gil
og Seblon liðþjálfi, yfirmaður Quer-
elle, en samskipti þeirra verða ekki
rakin hér.
Persónur myndarinnar lifa í heimi
sem er úr tengslum við allt í kringum
þær. Athafnir þeirra og orð snúast
aðeins um tvennt, rejur og rass. Um-
gjörð myndarinnar undirstrikar enn
frekar þennan óraunveruleikablæ.
Myndin er að öllu leyti tekin í stúdíói
og ríkjandi litir eru gulir og orange.
Leikmynd og leikmunir leggja enn-
fremur mikla áherslu á reðurinn.
Það eru ekki aðeins byssur og hnífar
sem flæða um allt heldur pár á
veggjum og síðast en ekki síst tveir
heljarmiklir bellir sem standa fyrir
utanbarinn.
Leikstjóm Fassbinders tekur mið
af öllu þessu. Leikarar (persónur)
eru miklu fremur á eintali en í sam-
tali, allar hreyfingar hægar þegar
ekki eru hreinar uppstillingar.
Querelle er á margan hátt heill-
andi mynd og verðug eftirskrift eftir
höfundinn. Leikaraval hefur heppn-
ast einkar vel. Þar er valinn maður í
hverju rúmi. Það sem kemur þó
kannski einna mest á óvart er
frammistaða Brad Davis sem þekkt-
astur er fyrir leik sinn í Midnight
Express. Hann er eins og sniðinn
fyrir hlutverk sitt sem og aðrir sem
þarna komafram.
A kvíkmyndahátíð er einnig sýnd
myndin Töframaðurinn frá Babýlon
sem er heimildarmynd um gerð
Querelle. Þar eru m.a. viðtöl við
nokkra helStu leikarana, og skal
engum koma á óvart þau hrósyröi
sem þeir nota um leikstjórann. Þá er
viðtal við Fassbinder, tekið aðeins
nokkrum tímum áður en hann lést.
Maðurinn er útúrdópaður en samt
furöulega skýr í kollinum er hann
viörar hugmyndir sínar um afstöðu
sína til bókar Genet og fleira.
Tvær myndir sem vert er aö sjá.
Guðlaugur Bergmundsson.
Reykjavík:
Akureyri:
Borgarnes:
Víðigerði V-Hún.:
Blönduós:
Sauðárkrókur:
Siglufjöröur:
Húsavík:
Vopnafjörður:
Egilsstaðir:
Seyðisfjörður:
HöfnHornafirði:
91-31615/86915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4136
95- 5175/5337
96- 71489
96- 41940/41229
97- 3145/3121
97-1550
97-2312/2204
97-8303
interRent